18.4.09

Af sem áður var

Lærdómur gengur upp og ofan, þó skellti ég mér í tíma hjá píanóleikara í gær og það gekk aðeins betur en ég þorði að vona, þetta er því allt á réttri leið...vonandi.   Framundan er svo nokkurra daga ferð til DK og SE.  Ekki endilega kærkominn lærdómstími, en það verður eflaust gaman. Það styttist óðum í Galatónleika, rétt rúmar 4 vikur og ég er eiginlega að verða tilbúinn með efnið fyrir það.

Þetta er því vonandi eins og það á allt að vera.

Júlía:
Í gær skellti ég mér með ungfrúnna í ungbarnasund, Soffía var illa sofin og er það farið að hafa áhrif á ónæmiskerfið, þar sem einhver létt veikindi höfðu gert vart við sig.  Við Júlía ákváðum þá að fara bara ein.  Það var nú bara gaman hjá okkur og hún var bara hin rólegasta, þó ekki þegar við komum uppúr, þá var grenjað.  Í bakaleiðinni var komið við í Toys'R' Us og keypt sólhlíf á vagninn hennar og hoppiróla.  Hoppirólan er strax orðin uppáhald hjá ungfrúnni og hún hefur það gaman af að hún helst róleg aðeins lengur.

Það má eiginlega segja það að hér sé farið að róast eilítið.  Og þá á ég við daglegt form ungfrúarinnar.  Það er þó fjarri lagi að segja að þetta sé orðið gott.  Hún er farin a purra og babbla, auk þess sem óþarfa pirringsgrátur yfir daginn hefur snarminkað.  Hún er samt ekki farin að sofa eðlilega og nánast minna en venjulega.......ef það er þá á annað borð hægt.  Við sátum hérna á miðvikudagskvöld og Júlía grét ekkert allt kvöldið, við sátum bara og störðum á hana og hlóum taugaveiklunarhlátri, því við skildum ekki hvað var að gerast.  Það var skrítin tilfinning.

2 ummæli:

  1. Sæll frændi

    Veit ekke hvort mamma thín var búin ad segja thér, en thad verdur kerra/vagn ykkur til rádstöfunar, á medan thid erud hér í DK. Ég verd búin ad koma kerrunni yfir til mömmu. Thá sleppid thid vid ad drösslast med ykkar eigin ;o)

    Bkv.
    Ása

    P.S. Vonandi náum vid nú ad hitta ykkur ádur en thid farid aftur til Malmö

    SvaraEyða
  2. Já ég var búinn að fá þær fregnir, takk kærlega fyrir það.

    Já já við hljótum nú ad hittast, vid verdum þarna allan föstudaginn.

    SvaraEyða