Hér er verið að skipuleggja páskana og það lítur út fyrir að kíkt verði á tropical islands á þriðjudag eftir páska, maður nennir nú ekki að fara um páskana þar sem líklegt er að það verði vel sótt. "The Bird" er á planinu á Laugardaginn með Gunnari og Erlu, kannski fleirum, svo ætlum við líka að hittast á Sunnudag og vera búin að baka eitthvað fínt. Þannig að þetta er allavega vel skipulagt.
Ungfrúin hefur verið óvenju slæm undanfarið, það má eiginlega segja að óværðin hefjust kl 18, stundvíslega og það er lítið hægt að hugga hana. Best er eiginlega bara að láta hana grenja þangað til hún verður of þreytt, þá sofnar hún smá. Æ þetta er eigninlega bara orðið óþolandi. Í þessari stöðu er bara hægt að vona að þetta fari nú að hætta, en ég hef grun um að þetta verði bara svona út árið!! Kæmi mér alls ekkert á óvart.
Hér er annars bara mjög hlítt og hitatölur virðast haldast um og yfir 20°C eins langt og veðurspá nær.... sem er alltaf gott. Ég er líka búinn að fá endanlegt plan fyrir Góðgerðartónleikana í Maí, sem er mikill plús, þá er allavega hægt að fara æfa fyrir það líka.
Allavega hérna er ein mynd af ungfrúnni og það eru líka komnar inn nokkrar myndir á albúmið hennar

Guð blessi Ísland.
Ekkert Adult neitt - bara ADD :)
SvaraEyðaVel nothæfar myndir að vanda.
VBB var nú búin að greina undirritaðann sveimhuga. Veit ekki hvort það sé til en það er í grunninn MJÖG svipað AADD eða ADD :)Held ég bæti þessu auka A-i ekki við fyrr en eftir tuttugugfimm...
SvaraEyða