Hér sjáum við af og til sjónvarp frá Íslandi og ég hef nokkrum sinnum rekist á auglýsingu frá Lífstykkjabúðinni, sem er alveg hræðilegt nafn á verslun, en auglýsingunni lýkur einhvernvegin svona "Lífstykkjabúðin..... á horni Barónstígs" !!!!!! Þetta fer mjög mikið í taugarnar á mér, þar sem fyrir mér er svona lagað ekki til. Í fyrsta lagi er ekkert húsnúmer og í öðru lagi, ef þú ert á horni einhversstaðar er það þá ekki alltaf tvær götur sem krossa? Nema gatan beygji og verslunin er þar á horninu, en þá hlítur að vera húsnúmer! Jæja nóg um það, þetta er allavega óþolandi í mínum huga.
Nú svo er það að frétta af Júlíu að hún er að taka eitthvað svakalegt pirringsskeið núna, mér til ótrúlega mikillar ánægju. Þetta er nú alvega að vera komið nóg. Hún er í raun hætt að sofa meira en svona 1-2 tíma á dag og er í staðin mjög pirruð og vælandi. Hún á mjög góða spretti á morgnanna og þá er virkilega gaman að vera með henni. En svona upp úr 17-18, þá byrjar gamanið og því líkur ekki fyrr en eftir miðnætti, sem er bara æðislegt. Við fórum í dag í smá ferð með ungfrúnna til að kíkja í "Toys'r'Us", það kom á óvart að þarna var hægt að fá fína barnavagna og kerrur sem kosta ekki mikið meira en 60 EUR!! Magnað, bara ef maður hefði vitað af þessu fyrr, en líklega förum við og kaupum eitthvað létt til að nota í sumar, því vagninn er eiginlega of þungur. Svona er það nú bara. En við keyptum svona skemmtilegt mótadót til að taka mót af fótunum á Júlíu, það verður gaman að prufa það.
Helgin fer svo í Námskeið hjá Janet Williams og tíma hjá Wolfgang, það er eiginlega synd, þar sem það á að vera svo gott veður, en þetta er í raun bara ennþá Íslenska hugsun, þar sem það er eiginlega bókað að við fáum fleiri sólardaga hér en á Íslandi :)

Guð blessi Ísland

Guð blessi Ísland
Engin ummæli:
Skrifa ummæli