15.4.09

Páskahelgi lokið

Hér var löng Páskahelgi í boði.  Á páskasunnudag var haldið í kökuveislu hjá skötuhjúunum að Dudenstrasse 15.  Vel var veitt og fórum við vel södd þaðan.  Þá var haldið heim á leið þar sem við tók svo undirbúningur matarveislu kvöldsins.  En það var nautafillet í marineringu með salt og hvítlauksmarineruðum kartöflum, salat og sósa að sjálfsögðu.  Hér mættu svo íslendingarnir uppúr klukkan 18 með góða skapið og hér var svo  heljarinnar gleðskapur fram eftir nóttu.  Mjög gaman!  Langt síðan maður hefur leyft sér svona nokkuð.

Daginn eftir tók svo við gönguferð í blíðskaparveðri um Treptow Park, sem er ekki langt frá.  Gunnar og Erla voru með í för og var gengið ansi mikið.  Á þriðjudeginum var svo lagt snemma af stað að ná í bílaleigubíl til að keyra í Tropical Islands, sem er í uþb 60km fjarlægð frá Berlín.  Komið var við á McDonalds í morgunmat og svo var haldið af stað.  Ungfrúin var nú ekki upp á sitt besta í bílferðinni en það lagaðist þegar við vorum komin vel af stað.  Þegar í TI var komið var heljarinnar biðröð fyrir utan og maður fékk smá sjokk yfir hvað þarna voru margir.  Við komumst þó inn á endanum og það verður að segjast að þetta er nú helvíti flott.  Við byrjuðum á að henda okkur á Sauna svæðið sem við vissum ekki að væri nektarnýlenda, en þar er semsagt bannað að vera með myndavélar eða í sundfötum, sérstaklega skemmtilegt, þar sem maður gat ekki alveg nýtt sér það sem var í boði þar.....kannski seinna :)   En restin var mjög fín, þó aðeins of mikið af fólki allsstaðar og því kannski ekki eins afslappandi og þetta gæti verið.   Svo var haldið heim á leið og komið við á "Gulastaðnum" 
sem heitir núna La Rosa, eða eitthvað svoleiðis.  Ekki klikkaði það frekar en fyrridaginn.  Hér er að hefjast spergiltími, þannig að hann verður í boði á öllum veitingastöðum í einhverju formi, ég fékk mér að sjálfsögðu svoleiðis með hollandaise og kengúrukjöti, klikkar ekki.

Svo var það bara læra, læra, læra í dag og á morgun er það Wolfgang, Eddy og ungbarnasund á Föstudag....... veit ekkert hvenær ég á að hafa tíma til að slappa af :)

Alllavega, það eru komnar inn nýjar myndir á myndasvæði Júlíu hérna

11.4.09

Hitinn hækkar og hækkar

Jæja í dag er það dagurinn sem farið verður á The Bird, sem ég hef reyndar farið 2svar á áður, en alltaf er tilhlökkunin jafn mikil.  Ég veit að fólk trúir því ekki að það geti verið satt að það séu til betri hamborgarar en það sem það hefur smakkað!  En þvímiður fyrir ykkur, þá eru þeir til, og þið eruð að missa af :)

Hér var verið að henda nautafillet í marineringu fyrir morgundaginn og ég er með smá upplýsingar fyrir ykkur sem eruð ekkert mikið að spá í mat, en þetta eru mikilvægir punktar:

1. Ef þú veist ekki fyrir víst að kjötið sem þú ert að fara borða sé nógu meyrt, þá er um að gera að henda því í marineringu í 24 tíma.  Til að ná fram meyringu er mikilvægt að notast við einhverskonar sýruvökva (vín, vínedik, appelsínusafa, sojasósu osfrv) Mitt uppáhald er Worcestershire sósa.

2.  Rósapipar er allt of lítið notað, að mínu mati.  Ég nota rósapipar mikið.  Bragðið gengur eiginlega með öllu.  Sérstaklega þótti mér hann fara vel með grilluðum túnfisk(rauðum), og svo svívirkar hann með kjöti líka.

3. Hvítlaukur segir sig nú bara sjálfur þegar maður fer að velta fyrir sér matargerð, alltaf að nota hvítlauk í marineringu :)

Ég er bara farinn að hlakka til á morgun, en þá fyllist hér húsið af fólki í matarveislu.  Bæði í kaffi og kvöldmat.  Við keyptum okkur lítið rafmagnsgrill í gær líka og það verður áhugavert að sjá hvernig það gagnast við grillun á kjötinu góða.

Svo er bara spáð allt að 25 stiga hita hérna eftir helgina, og það þýðir yfirleitt í kringum 30°C. þannig að það er margt að hlakka til :)

Júlíuhornið:
Júlía skellti sér í ungbarnasund í gær og þótti það nú bara hin besta skemmtun, allvega voru þau bara tvö sem busluðu alveg á fullu, og líklega var hún yngst þarna líka.  Þetta tekur nú ekki langan tíma en maður sá það að þetta var mjög góð skemmtun og afþreying fyrir hana.

9.4.09

Tumi

Tumi var hvers manns hugljúfi og hans verður sárt saknað,  Greftrun fór fram í dag í Sigrúnarlundi í Kvistholti.
Tumi fannst látinn að heimili sínu í Flétturima 10, eftir baráttu við erfið veikindi.


7.4.09

Í hita dagsins

Helgi lokið þar sem farið var yfir ýmis atriði er varða einbeitingu og raddbeitingu.  Námskeið gekk vel og þó ég hafi ekki lært neitt beint af námskeiðinu vakti það mig til umhugsunar um ýmsa hluti í mínu fari sem betur mega fara.  Ég er nefnilega afskaplega auðtruflanlegur, þ.e ef ég er að læra er margt sem truflar einbeitinguna, og að mestu leiti er það nú karakter galli, þar sem ég hef áhuga á svo gríðarlega mörgu.  Að einhverju leiti er það líka leti, en það er gífurlega erfitt að koma sér í og halda "lærdóms-ástandi", en í dag tókst það nú, með hjálp dáleiðslu og gífurlega einbeitts vilja til að gera vel.  Það er að koma betur og betur í ljós að ég má ekki leyfa mér að láta hugan reika, það verður bara að setjast niður og gera hlutina!!  Þetta er ekki alltaf það skemmtilegasta, en þarf að gerast til að eitthvað verði úr þessu.   Ég hef greint mig með AADD (Adult Attention Deficit Disorder) og það þarf bara að taka á því........ seinna :)

Hér er verið að skipuleggja páskana og það lítur út fyrir að kíkt verði á tropical islands á þriðjudag eftir páska, maður nennir nú ekki að fara um páskana þar sem líklegt er að það verði vel sótt.  "The Bird" er á planinu á Laugardaginn með Gunnari og Erlu, kannski fleirum, svo ætlum við líka að hittast á Sunnudag og vera búin að baka eitthvað fínt.  Þannig að þetta er allavega vel skipulagt.

Ungfrúin hefur verið óvenju slæm undanfarið, það má eiginlega segja að óværðin hefjust kl 18, stundvíslega og það er lítið hægt að hugga hana.  Best er eiginlega bara að láta hana grenja þangað til hún verður of þreytt, þá sofnar hún smá.  Æ þetta er eigninlega bara orðið óþolandi. Í þessari stöðu er bara hægt að vona að þetta fari nú að hætta, en ég hef grun um að þetta verði bara svona út árið!!  Kæmi mér alls ekkert á óvart.

Hér er annars bara mjög hlítt og hitatölur virðast haldast um og yfir 20°C eins langt og veðurspá nær.... sem er alltaf gott.  Ég er líka búinn að fá endanlegt plan fyrir Góðgerðartónleikana í Maí, sem er mikill plús, þá er allavega hægt að fara æfa fyrir  það líka.

Allavega hérna er ein mynd af ungfrúnni og það eru líka komnar inn nokkrar myndir á albúmið hennar

Guð blessi Ísland.

2.4.09

Vorið er loksins komið! ....á horni Kurfürstenstrasse.

Hér allt að byrja að springa út og veðrið er með besta móti.  Þannig líður mannig nú bara ágætlega, ég fór að taka eftir því fyrir um viku að röddin var ekki alveg að láta að stjórn, og ég skildi ekkert afhverju, en svo fór ég að tengja þegar mig byrjaði að klæja í augun og vakna með kvef, þetta er að sjálfsögðu frjómagnið í loftinu þessa dagana, og við því er aðeins eitt að gera, en það er að fá sér ofnæmistöflu og viti menn, allar truflanir eru hættar.

Hér sjáum við af og til sjónvarp frá Íslandi og ég hef nokkrum sinnum rekist á auglýsingu frá Lífstykkjabúðinni, sem er alveg hræðilegt nafn á verslun, en auglýsingunni lýkur einhvernvegin svona "Lífstykkjabúðin..... á horni Barónstígs" !!!!!!  Þetta fer mjög mikið í taugarnar á mér, þar sem fyrir mér er svona lagað ekki til.  Í fyrsta lagi er ekkert húsnúmer og í öðru lagi, ef þú ert á horni einhversstaðar er það þá ekki alltaf tvær götur sem krossa?  Nema gatan beygji og verslunin er þar á horninu, en þá hlítur að vera húsnúmer!  Jæja nóg um það, þetta er allavega óþolandi í mínum huga.

Nú svo er það að frétta af Júlíu að hún er að taka eitthvað svakalegt pirringsskeið núna, mér til ótrúlega mikillar ánægju.  Þetta er nú alvega að vera komið nóg.  Hún er í raun hætt að sofa meira en svona 1-2 tíma á dag og er í staðin mjög pirruð og vælandi.  Hún á mjög góða spretti á morgnanna og þá er virkilega gaman að vera með henni.  En svona upp úr 17-18, þá byrjar gamanið og því líkur ekki fyrr en eftir miðnætti, sem er bara æðislegt.   Við fórum í dag í smá ferð með ungfrúnna til að kíkja í "Toys'r'Us", það kom á óvart að þarna var hægt að fá fína barnavagna og kerrur sem kosta ekki mikið meira en 60 EUR!!  Magnað, bara ef maður hefði vitað af þessu fyrr, en líklega förum við og kaupum eitthvað létt til að nota í sumar, því vagninn er eiginlega of þungur.  Svona er það nú bara.    En við keyptum svona skemmtilegt mótadót til að taka mót af fótunum á Júlíu, það verður gaman að prufa það.   

Helgin fer svo í Námskeið hjá Janet Williams og tíma hjá Wolfgang, það er eiginlega synd, þar sem það á að vera svo gott veður, en þetta er í raun bara ennþá Íslenska hugsun, þar sem það er eiginlega bókað að við fáum fleiri sólardaga hér en á Íslandi :)

Guð blessi Ísland

29.3.09

Nördlingen gegn Berlín

Jæja þá erum við komin 2 tímum á undan Íslandi og verð ég að segja að það er ansi sniðugt að flýta klukkunni svona, þar sem núna er klukkan að verða hálfátta og það er ennþá bjart og fínt úti. Skrítið að þetta skuli ekki vera gert á Íslandi þar sem þetta myndi líklega gagnast ansi mörgum og gera margt skemmtilegra og auðveldara.

Nú annars er það að frétta að ég fór á námskeið í dag í einhverju sem kallast Gyrokinesis, og má eiginlega segja að þessu svipið mikið til Alexandertækni. Ég fékk það útúr þessu að ákv vandamál sem ég hef allatíð verið með í bakinu er hugsanlega leyst, en ég á nú eftir að prufa nokkrar góðar æfingar í nækkra daga/vikur til að sjá hvað gerist. Eins sá ég þarna sérstaka skó sem eru ansi merkilegir að því leiti að þeir styrkja rétta stöðu baksins og eiga að laga bara nánast öll stoðkerfisvandamál :) Nei kannski ekki alveg svo gróft en þetta er allavega helvíti sniðugt og aldrei að vita nema maður prufi þetta. Það verður líklega seint sagt að þetta séu skór klipptir úr tískutímariti, en það eina sem ég fann er þessi mynd.

Hér er annars allt gott að frétta og hitinn hækkar dag frá degi. Við erum búin að bóka flug til DK í Apríl og erum að fara til Malmö að heimsækja frænku Soffíu og Júlíu, það verður nú gaman, það sem gerir þetta svo senn skemmtilegra er að M&P plús G&B verða þarna líka á sama tíma þannig að maður hittir fólkið sitt í leiðinni sem er aldrei slæmt. Júlía er að fara í annan tímann sinn á morgun í Cranio og það er vonandi að það skili góðum árangri.

Annars langar mig í lokin að minnast á eitt sem hefur verið að angra mig, en það er Sjálfstætt fólk þáttur sem ég sá um daginn, þar var Auður Haralds gesturinn, og það sem gerði mig eiginlega smá reiðan var að hún reykir eins og strompur á dekkjabrennsluverkstæði og svo var alveg á kafi í því að lýsa því yfir að hún lætur nú ekki ofan í sig aukaefni og sneiðir algerlega framhjá slíku í mat og var nánast að hneykslast á því hvað væri mikið af aukaefnum í mat!!! Hversu mikil er sjálfsblekkingin hjá svona fólki. Reyndar má svosem taka punktinn um það að hún er allavega ekki að gera illt verra með því að borða aukaefni ofan á það sem hún reykir þau!

Ekki meira í dag EN......

NÝJAR MYNDIR

25.3.09

Samir við sig...

Þá er búið að staðfesta við mig breytingu á hlutverkum og má sjá upplýsingar um þetta allt hérna.  Svo er búið að færa "Benefiz-Gala" tónleikana fram um einn dag, þetta verður semsagt 13.Maí kl 19:50 í Mercedes Autowelt við Salzufer.  Og við erum 4 eða 5 sem komum þar fram, sem er magnað, hélt að við yrðum mun fleiri, en þetta eru ss sigurvegarar í Kammeroper keppninni, sem ég var ekki alveg klár á að ég væri að taka þátt í :)  En svona gerast hlutirnir, þegar maður á síst von á þeim.  Annað sem kom mér á óvart er að þarna verður hljómsveit undir stjórn Fischer-Dieskau eftir því sem ég kemst næst!!!  Sem er nú ekkert lítið!  Þannig að nú þarf að fara taka á því, það er alveg dagljóst.

Af þjóðverjum:  
Í morgun kl  7:30 kom "viftukallinn" til að mæla kraftin á viftunum hérna í íbúðinni, ekki skil ég nú alveg tilganginn með því, það er nú ekki eins og við köfnum ef þær virka ekki!!   Ég var svo á leið heim í dag eftir tíma hjá Wolfgang og ákvað að koma við og versla kleinuhringi á Dunkin, þar voru komnir einhverir páska kleinuhringir sem ég ákvað að kaupa, þetta var eitthvað svona skreytt dót, og afgreiðslustelpan spurði hvort ég væri að kaupa þetta fyrir börn, og ég sagði nú bara að þetta væri fyrir sjálfan mig, það fannst henni voða fyndið og vildi að ég myndi kaupa eitthvað annað í staðinn!!  Þjónustufólk hérna í Berlín er voðalega ókurteist á köflum og það er oft mjög pirrandi að eiga samskipti við það.

Júlíuhornið:
Júlía er búin að fara í fyrstu bólusetninguna sína og það voru tvær sprautur takk fyrir í hvort lærið, ekki þótti það nú gott en hún var snögg að jafna sig.  Hér gengur allt sinn vana gang með hana og virðist hún nú sofa mest og lengst þegar við bindum hana utan á okkur og löbbum með hana, fín hreyfing svosem, en ekki alltaf það skemmtilegasta.