9.8.08

No! Pagliacci non son...

Jæja þá er svakalega skemmtilegum óperubúðum lokið. Sýndar voru 2 sýningar og gengu þær auðvitað misjafnlega eins og gerist og gengur, en allt gekk þó vel.Skemmtilegast þótti mér að syngja og leika hin brjálaða og svikna trúð, Pagliacci (sjá mynd). Stórt og flott hlutverk sem reynir gífurlega á leikhæfni og samþættingu leiks og söngs, þar sem of mikil dramatík getur haft skelfilegar afleiðingar á röddina ef maður missir tökin á því. Þetta er reyndar hlutverk sem ég er ekki að fara syngja að alvöru fyrr en eftir um 3-5 ár eða svo.

Námskeiðið var haldið í smábænum Lofer hérna í Austurríki. Hrikaleg náttúrufegurð alpanna og alveg hreint ótrúleg gestrisni fólksins sem hýstu okkur var umgjörðin utan um þetta alltsaman. Þetta var ss frábær lífsreynsla auk þess að vera rosalega góð söngreynsla. Martha Sharp, auk þess að vera stórskemmtileg kona, hélt vel utanum sviðsetningar og gaf góð ráð um leik og söng auk þess að veita okkur ómetanlega innsýn í það hvernig bransinn virkar hérna úti og hvernig maður á að haga sér í fyrirsöng og hverju við megum búast við. Ómetanlegt.
Nú ég er svo að hendast aftur til Berlínar á þriðjudaginn, og þá taka við æfingar fyrir húskonsert sem ég er að fara syngja í byrjun október. Meira er í farvatninu hjá mér sem ég á eftir að skoða betur og ákveða hvernig ég ætla mér að framkvæma, en það er m.a fyrirsöngur og leit að umboðsmanni.

30.7.08

Nyjar myndir...

eru komnar a myndasvaedi. Gleymdi theim sidast!!

Allt gott ad fretta fra Lofer, meira sidar.

27.7.08

Lofer í Austurríki

Þá er langri helgi lokið, í stuttumáli sagt var margt gert á stuttum tíma. Við leigðum bíl til að sporta um svæðið. Við ætluðum að hendast á sólbaðsstaðinn Wannseebad, en rétt áður en við fórum ákv ég að spyrja gömlu og hressu nágranna okkar hvert væri sniðugt að fara, og sú gamla sagði bara "alls ekki wannsee, það er svo ógeðslegt" :) Hún benti okkur því á aðra "strönd" sem væri mikið betri og úr alfaraleið. Það varð úr að við fórum þaðngað og það var bara nokkuð fínt. Það sem er þó óþolandi við þetta hérna er að þetta eru náttúrulega bara vötn, og þau eru græn af skít og öðru og því ekki girnilegt að fara stinga sér til sunds eins og margir virtust gera þarna. En þetta bara bara svakalega fínt. Þegar ský fóru að draga fyrir sólu, þá nenntum við ekki að hanga þarna lengur og hentumst af stað í bílinn sem beið okkar sjóðheitur. Þá heyrðum við allt í einu þrumur og læti og viti menn 1 mínútu eftir að við settumst inn í bílinn fór að hellirigna, sjaldan sem maður upplifir slíkt. Nú við fórum svo heim á leið og ætluðum að renna við í Wannsee og kíkja á hvernig þetta væri, nú þegar þangað var komið, var ekki þverfótað fyrir fólki og langar biðraðir í rútur og inn á svæðið. Þetta var vægast sagt ekki flott eða skemmtilegt, því vorum við hrikalega fegin að vera búin að þessu og bara á leið heim.

Nú þegar heim var komið var svo farið að borða á hinum svokallaða "Gula stað", sem er einn af betri stöðum hérna, þegar tekið er tillit til verðs og gæða. Þar áttum við góða kvöldstund, og héldum svo heim á leið þar sem við horfðum á "margverðlaunaða" kvikmynd sem heitir "Before the Devil knows Youre Dead", hún er vægast sagt leiðinleg tímasóun.

Í dag var svo tekin rúntur um Berlín, og kíkt í Viktoria park, þvínæst á Hackescher Markt, þar sem komið var við í Haagen Dazs. Svo á röltiinu var tekin sú góða ákvörðun að fara í siglingu um ánna Spree sem liggur í þarna í gegnum svæðið, við sjáum sannarlega ekki eftir því. Ótrúlega gaman og fróðlegt. Auðvitað skemmdi ekki 36 stigi hiti fyrir deginum sem er bara búinn að vera rosalega fínn.

Nú í fyrramálið er ég svo að fara hendast til Lofer, og á enn eftir að ganga frá hinu og þessu til að taka með, en svona er það bara. Bröttför er um 10 í fyrramáli og því þarf ég að vakna bara nokkuð snemma til að hendast af stað. Það er komin tilhökkun í mann og ekki laust við að maður vorkenni bara SJ að þurfa að hanga hérna alein í 13 daga, ólétt og ég veit ekki hvað.

Óléttuhornið:
Hér má hérna sjá eina létta mynd af frúnni og hvernig þetta lítur út í dag :)

Ég er annars bara reddí og til í hasarinn sem er framundan, ég tek fartölvuna með og ef ég kemst í samband hendi ég kannski inn uppfærslum en við sjáum til með það.

Þangað til 13.ágúst
Tschuuuuuuuus!

25.7.08

Um mikilvægi þess að taka afrit reglulega...!

Ég varð fyrir því óláni í fyrradag að annar af RAID 0 (RAID 0 er þegar tveir jafnstórir diskar eru sameinaðir í einn disk til að auka hraða og vinnslugetu, þeir líta þá út eins og einn stór diskur í Windows) diskum hjá mér bilaði og þar með óaðgengilegir. Sem þýddi það að ALLT var nánast horfið, eða ég segi það nú kannski ekki alveg. Þetta var ekki mechanísk bilun, þannig að diskarnir eru ekki ónýtir. En hágvær tikkhljóð hafa heyrst undanfarið.

Ég stóð frammi fyrir því að hafa líklegast tapað öllum ljósmyndum síðustu tveggja mánaða, því að er það langt síðan ég tók afrit. En það sem sveið mest var að tapa öllum þeim nótum sem ég hef eytt hundruðum klukkustunda í að skanna inn á PDF og Sibeliusar format. Tölvusnillingurinn ég dó ekki ráðalaus og greip til besta vopnsins í baráttunni við töpuð gögn sem ég tel að sé til í heiminum. EN það er hugbúnaður sem heitir "File Scavenger". Hann hefur bjargað mér svo oft, og er hrikalega áreiðanlegur og hefur bjargað gögnum sem annar hugbúnaður segir að sé ekki hægt! Ég þurfti þó áður að hendast í raftækjabúð og verlsa mér 4 í 7 pinna rafmang fyrir SATA diska og kaupa auka SATA kapal til að hægt væri að klára dæmið. Eins og staðan er núna eftir nokkrar tilraunir, hefur mér tekist að bjarga ÖLLUM gögnum og er á leiðinni að bakka þau upp á ytri HD.

Það er í raun ekki annað hægt en að ítreka mikilvægi þess að eiga alltaf 2 afrit af öllu, eitt á vélinni sjálfri og eitt á flakkara eða netafriti. ALDREI að setja öll eggin í sömu körfuna segir einhversstaðar og það er á hvergi betur við en í tölvunum, því þetta dót bilar fyrirvaralaust oft á tíðum, og stundum er bara hreinlega ekkert hægt að gera nema punga út að lágmarki 300.þús krónum fyrir viðvikið. Ég er því þakklátur núna og hef þegar sett í gang afritunar áætlun á því sem ég tel mikilvægt að eiga.

Fyrir þá sem eiga fullt af myndum á tölvutæku held ég að skynsamlegt sé t.d að kaupa geymslusvæði hjá google undir myndirnar, það er ekki svo dýrt, eða um 5-6000 krónur á ári fyrir 40 Gb geymslu. Er jafnvel að spá í slíku sjálfur, því maður tryggir ekki eftir á :)

24.7.08

Styttist í Lofer

Já Austurríki er á næsta leiti með blóm í haga, og vonandi stórskemmtilegu námskeiði. Veðrið er gott og útlit fyrir að svo verði næstu daga. Við erum búin að panta bílaleigubíl í tvo daga til að skjótast eitthvað útfyrir borgina með BKBen, ætli ferðinni verði ekki heitir til Wannsee, þar sem búið er að gera svakalega flott útivistarsvæði.

Nú Barack Obama er að koma til Berlínar í dag og búist er við talsvert mörgum að horfa. Upp komu sterk mótmæli gegn því að hann talaði við Brandenborgarhliðið og því verður hann við Siegssäule sem er svosem ekki langt frá. Ætlunin er að kíkja, þar sem ég fann loksins píanóleikara sem getur unnið með mér, en hann heitir Pawel og er píanóleikari við Komische Oper, og það verður einmitt þar sem ég ætla að hitta hann í dag, það er einmitt ekki langt frá Brandenborgarhliðinu. Auk þess að Soffía og gestur hafa ætlað sér að berja goðið augum.

Óléttuhornið: GLEÐITÍÐINDI
E101 vottorð ásamt E106 vottorðum bárust í dag í pósti, nú er bara að vona að þar með sé öllum erfiðleikum lokið sem snúa að tryggingum og peningum, nenni ekki lengur að standa í þessu. Það sem er líka magnað í þessu öllu saman er að við báðum um að fá staðfestingu frá Þjóðskrá á því að við værum gift, og það var beðið um það fyrir rúmum 2 vikum og ekkert er enn komið í pósti. Það tók okkur ekki nema um 2 daga að fá þetta frá TR! Jæja Soffía verður bara að hringja aftur og skammast :) Það er því útlit fyrir að við getum haldið upphaflegu plani hér og það er mikill léttir.

22.7.08

The Devil May Cry........

...er nafnið á tölvuleik sem ég tók upp á því að spila í fyrradag, hann er bara nokkuð skemmtilegur, þetta er að vísu svona einskonar console leikur, þ.e fyrr Playstation eða Xbox. Og það er bara fínt að nota lyklaborð í svona leik, maður er mikið sneggri heldur en með þessum leiðinda fjarstýringum......þó eflaust geti einhver búið til rifrildi úr því að vissulega sé lyklaborð líka fjarstýring :)

Nú ég sé það að bróðir minn heldur að ég muni setja upp barnalandssíðu, en ég get sannarlega róað fólk með orðunum "aldrei á meðan ég lifi!", hvað verður þá næst...... gerast "moggabloggari"??!?! Ég held ekki. Sumt er bara einum of mikið, ég er hér með fínt blogg, og get hent inn myndum og öðru slíku ef ég tel að slíkt eigi erindi við einhvern.... úff!

Hér segja allar veðurspár frá því að veðrið sé svo sannarlega að verða betra, og er næsta helgi nokkuð góð í kortunum. Begga frænka er á leiðinni þegar þetta er skrifað og á ég fastlega vona á því að það verði nóg að gera fram að brottför minni til Austurríkis næstkomandi mánudag.

Ég hef ekki enn fundið neinn píanóleikara til að vinna með fram að helginni, þannig að það er komið létt stress í mann, ég verð greinilega bara að leggja þeim mun harðar að mér hérna heima við og ekki missa mig alveg í tölvuleiki, það er nú bara svo mikið sem kemst að á einum degi, og þar er vinnan auðvitað númer eitt, þar sem það er líflínan mín. Jæja best að fara vinna...... tschüuuussss (sagt með leiðinlega syngjandi röddu)

20.7.08

Og það fer sem fer

Frá því að síðasta bloggi var hent inn hefur það gerst að ég fékk bréf frá Mörthu Sharp um að hún væri búin að fá peningana, þannig að það mál er úr veginum sem betur fer. Nú við Soffía hentumst svo í IKEA fyrir stuttu og keyptum ýmislegt smálegt í búið auk þess að gera það sem ég bjóst aldrei við að gera, en það var að fara skoða "barnadót", ss skiptiborð og eitthvað svona rugl, og fundum við þar auðvitað hrikalega ódýra og sniðuga lausn sen mun auðvelda okkur lífið. Nú við erum auðvitað búin að skoða ebay og finna þar ýmislegt mjög ódýrt og flott, þannig að við erum bara í góðum gír hvað allt þetta varðar.

Veðrið er ekki að skána hér og það er bara sama sagan, mér skilst að þetta hafi verið svipað leiðinlegt í fyrra, og þvímiður ekkert sem er hægt að gera í þessu nema bara bíða.

Ég var í tíma hjá Janet í fyrradag, og þar var gerð ein stór uppgötvun, líklegast sú sstærsta hingaðtil, en það snýr að því hvernig maður syngur "Pianissimo", þetta er hrikalega órætt og erfitt að nálgast, þrátt fyrir að það virðist kannski augljóst......að maður syngur bara með minna hljóði, en svo er það náttúrulega ekki, þetta er ákveðin fínstilling í raddböndunum og stuðninginum undir því, sem gerir þetta mögulegt, og notast við það sem ég hef kosið að kalla "Miss Piggy voice", því ef maður talar með þessari raddstöðu, þá hljómar þetta svolítið svipað og það, en þegar maður syngur á því, er um allt annað sánd að ræða, það er meiri sveigjanleiki í röddinni, og hún hljómar áreynsluminni, og þannig er auðvitað tilfinningin líka. EN þetta kemur auðvitað ekki strax, og mér er að það alveg orðið ljóst, að söngröddin getur ekki orðið alvöru professional fyrr en að loknu lágmarki 6 ára vinnu, það er bara staðreynd, og því skil ég vel að þeim mun fyrr sem maður byrjar, þeim mun betra. En auðvtað þarf þetta allt að vera í jafnvægi.

Í gærkvöldi vorum við Soffía búin að bjóða heim þeim Einari og Dísu í léttan málsverð og við söngvararnir ræddum svo um söng og horfðum á ýmis dæmi á Youtube eitthvað fram eftir, eða til kl 2, og þá héldu gestirnir heim á leið. Rosa fínt kvöld og gaman að fá fólk í heimsókn.

Í dag þarf maður svo bara að fara læra fyrir Lofer sem er nú bara eftir rétt rúma viku, það verður eflaust gaman, þó ég geti ekki sagt að ég hlakki mikið til að syngja Rigoletto kvartettinn sem er andskotanum erfiðari, en hitt verður frábært. Langt síðan maður hefur hitt Ásgeir og hina Íslendingana sem eru þarna.

Nú svo að lokum ef einhver er að koma hingað til Berlínar á næstu dögum þá þætti mér vænt um ef sá hin sami gæti tekið fyrir mig eina stóra flösku af Tópas :)