24.7.08

Styttist í Lofer

Já Austurríki er á næsta leiti með blóm í haga, og vonandi stórskemmtilegu námskeiði. Veðrið er gott og útlit fyrir að svo verði næstu daga. Við erum búin að panta bílaleigubíl í tvo daga til að skjótast eitthvað útfyrir borgina með BKBen, ætli ferðinni verði ekki heitir til Wannsee, þar sem búið er að gera svakalega flott útivistarsvæði.

Nú Barack Obama er að koma til Berlínar í dag og búist er við talsvert mörgum að horfa. Upp komu sterk mótmæli gegn því að hann talaði við Brandenborgarhliðið og því verður hann við Siegssäule sem er svosem ekki langt frá. Ætlunin er að kíkja, þar sem ég fann loksins píanóleikara sem getur unnið með mér, en hann heitir Pawel og er píanóleikari við Komische Oper, og það verður einmitt þar sem ég ætla að hitta hann í dag, það er einmitt ekki langt frá Brandenborgarhliðinu. Auk þess að Soffía og gestur hafa ætlað sér að berja goðið augum.

Óléttuhornið: GLEÐITÍÐINDI
E101 vottorð ásamt E106 vottorðum bárust í dag í pósti, nú er bara að vona að þar með sé öllum erfiðleikum lokið sem snúa að tryggingum og peningum, nenni ekki lengur að standa í þessu. Það sem er líka magnað í þessu öllu saman er að við báðum um að fá staðfestingu frá Þjóðskrá á því að við værum gift, og það var beðið um það fyrir rúmum 2 vikum og ekkert er enn komið í pósti. Það tók okkur ekki nema um 2 daga að fá þetta frá TR! Jæja Soffía verður bara að hringja aftur og skammast :) Það er því útlit fyrir að við getum haldið upphaflegu plani hér og það er mikill léttir.

1 ummæli:

  1. Frábært, Pawel skilst mér að sé alveg frábær. Og gott að heyra þetta með óléttuvesenið. Óska annars góðrar helgar, heyri kannski frá þér áður en þú ferð í næstu viku ;)

    SvaraEyða