Nú þegar heim var komið var svo farið að borða á hinum svokallaða "Gula stað", sem er einn af betri stöðum hérna, þegar tekið er tillit til verðs og gæða. Þar áttum við góða kvöldstund, og héldum svo heim á leið þar sem við horfðum á "margverðlaunaða" kvikmynd sem heitir "Before the Devil knows Youre Dead", hún er vægast sagt leiðinleg tímasóun.
Í dag var svo tekin rúntur um Berlín, og kíkt í Viktoria park, þvínæst á Hackescher Markt, þar sem komið var við í Haagen Dazs. Svo á röltiinu var tekin sú góða ákvörðun að fara í siglingu um ánna Spree sem liggur í þarna í gegnum svæðið, við sjáum sannarlega ekki eftir því. Ótrúlega gaman og fróðlegt. Auðvitað skemmdi ekki 36 stigi hiti fyrir deginum sem er bara búinn að vera rosalega fínn.
Nú í fyrramálið er ég svo að fara hendast til Lofer, og á enn eftir að ganga frá hinu og þessu til að taka með, en svona er það bara. Bröttför er um 10 í fyrramáli og því þarf ég að vakna bara nokkuð snemma til að hendast af stað. Það er komin tilhökkun í mann og ekki laust við að maður vorkenni bara SJ að þurfa að hanga hérna alein í 13 daga, ólétt og ég veit ekki hvað.
Óléttuhornið: Hér má hérna sjá eina létta mynd af frúnni og hvernig þetta lítur út í dag :)
Ég er annars bara reddí og til í hasarinn sem er framundan, ég tek fartölvuna með og ef ég kemst í samband hendi ég kannski inn uppfærslum en við sjáum til með það.
Þangað til 13.ágúst
Tschuuuuuuuus!
Gute reise nach Lofer
SvaraEyðaSæll elskulegur.
SvaraEyðaVildi bara þakka enn og aftur fyrir frábærar móttökur í Berlín. Vonandi gengur vel í Lofer.
Frænkan.