Það er kannski helst að gerast þessa daganna að veðrið er algerlega að gera útaf við mann, það er almannarómur hér í Berlín að fólk er almennt þreytt og þungt í geði þessa daganna, sökum mikilla skýja og rigninga. Þar er ég enging undantekning, og langar manni helst að vera bara undir sæng að horfa á videó og horfa á einhverja góða þætti. EN, maður þarf að vinna og standa við skuldbingingar sem er ekki alltaf það skemmtilegasta. Ég hentist í hádeginu í dag í skólann til að taka þátt í leikstjórnarprófi eins af leikstjórunum sem var með Fledermaus, og gekk það bara ágætlega held ég. Allavega skemmtum við Ivi(sópranin sem var að syngja á móti mér) okkur ágætlega. En nú er nóg komið, ekki meira svona rugl.Ég var búinn að segja frá símtali sem ég fékk fyrr í sumar um einhverja tónleika sem á að halda hérna í Berlín, og það var einhver Kim, sem hringdi í mig. Nú í fyrradag hringdi hún svo í mig aftur til að ítreka þetta og við mæltum okkur mót, og ég fór til hennar í gær. Þá er það svo í pottinn búið að tveir stjórnendur, annar frá Ísrael og hinn frá Brazilíu höfðu mælt með mér í þetta, hvernig það gat gerst er ofar öllum mínum skilningi, þar sem þessir stjórnendur höfðu bæði númerið mitt og nafn og alltsaman, og það sem meira er ég veit EKKERT hverjir þetta eru og hef aldrei unnið með þeim. Líklegast er það bara gott mál :) EN allavega þetta lítur svosem ekkert illa út þetta verkefni. Þessi Kim, er búinn að vera skipuleggja svona "Hauskonzert", og er víst búin að gera þetta 8 sinnum, að eigin sögn, og það komast um 80-100 manns á hvern konzert, hún segir að alltaf hafi verið fullt hús og þetta hafi alltaf mælst vel fyrir. Nú það er Berlínarborg, eða hverfið sem sér um að auglýsa þetta og að veita húsnæði, þannig að þetta er ekki eitthvað alveg útúr kú. Þessi Kim er mjög indæl kona, og syngur......jahh, hvað skal segja, allt í lagi held ég, hún var reyndar óupphituð, og ég reyndar líka, þegar við rendum stuttlega yfir einn dúett úr "Il trovatore". En það er svosem ekki það sem skiptir máli hér, hún með fullt af agentum sem hún er búin að bjóða, og svo er að vinna með henni leikstjóri frá Komische Oper, plús annar af þessum stjórnendum sem bentu á mig :) Þannig að þetta hljómar bara sehr gut, allavega sagði ég já við þessu og við listafólkið deilum svo aðgangseyrinum okkar á milli, þannig að þetta verður ekki alveg ókeypis.
Nú bankinn er búinn að hringja í mig og segja mér að peningurinn hafi komist til skila til Mörtu Sharp, en ég hef enn ekki heyrt frá henni hvort þetta sé rétt. Þannig að spennan liggur enn í loftinu varðandi það.
Nú svo hef ég versnað umtalsvert í brákuðu rifbeini mínu, líklega af því að ég er ekkert búinn að vera hvíla mig eins og mælst er til, þannig að ég þarf að fara reyna taka því rólega næstu daga, sjáum til hvort það gangi upp.


