5.7.08

Á þessum Drottins laugardegi

Já ég sit nú hér með annan fótinn upp í loftið vegna þess að mér tókst að tábrjóta mig(ef tær bæru fingranöfn héti hún Baugtá. En Litla-Gerður, skv einhverju Dalasýslu - Skagafjarðardæmi, Nú veit ég ekki hvort tengdó og co kannast eitthvað við þetta, en þetta fann ég eftir gúgglun, þegar ég fattaðaði að miðtærnar virðast ekki heita neitt!!?!?). Ekki er það gæfulegt þar sem aðeins er um ein vika í frumsýningu.....þetta er svosem týpískt! Og æfingar á hverjum degi í næstu viku, sem er fínt því það er svo rosalega gaman að labba svona. Það er sérstklega skemmtilegt líka að vita til þess að í hvert skipti sem ég fer að labba eitthvað aukast líkurnar umtalsvert að þetta grói seint og illa auk þess að líkurnar á gigt og einhverri svona vitleysu. Get ekki sagt að þetta ástand gleðji mig sérstaklega. Þetta gerðist í gær uppúr hádegi, og ég var þvímiður búinn að bóka mig í tíma hjá Herr Goldberg, og svo í bíó strax á eftir. Þannig að það var mikið pína að labba um í allan gærdag.

Ein af nemendunum sem eru að leikstýra ruglinu sem ég er að fara syngja í á sunnudag, hringdi í mig í gær og vildi hitta mig til að útskýra karakterinn minn, sem á að vera rosa flókinn. Ég er alveg búinn að fá hundleið á þessu rugli með þessa sýningu, og get ekki beðið eftir að þetta verði búið. Ég sagði henni náttúrulega að ég hefði verið að slasa mig, og ég ætli mér ekki að ferðast mikið, hún sagðist þá geta bara hitt mig einhversstaðar á kaffihúsi eða eitthvað, en það er sama fyrir mig versti kaflinn er að labba að heiman og í lestina. Það er nú reyndar gott veður, kannski get ég bara hjólað, það reynir ekkert á tærnar. Jahh, það er aldrei að vita hvað maður gerir, the agony of choice.

Annar kíkti ég á kvikmyndina "Hancock" í gær, hún kom mér verulega á óvart. Var ekki alveg eins og ég bjóst við. Hún var nú samt frekar týpísk að mörguleiti, og þannig séð ekkert sérstakt kvikmynda afrek, en ég skemmti mér bara nokkuð vel.

Í kvöld er ég svo með hvítlauks og gyrokrydds marineraðar strúta medallíur, kartöflusalat, kartöflubáta og 3.pipra sósu. Eflaust dásamlega gott, þar sem kjötið er búið að liggja í marineringunni síðan á fimmtudag.........*slurp*, þessu verður svo skolað niður með einu áströlsku. Það er langur og erfiður dagur framundan á morgun, en þá er ég á æfingu frá kl 10 til 18. Það er hinsvegar ljós í myrkrinu að núverandi eiginkona og verðandi barn snúa aftur til síns heima, verst að geta ekki tekið á móti þeim.

Nóg er það af blaðrinu í dag, veriði sæl.

4 ummæli:

  1. "snillingur, algjööör snillingur"

    SvaraEyða
  2. Ja það er ekki annað að sjá en að þetta verði ógleymanlegt stykki.

    SvaraEyða
  3. Sé fyrir umsagnir um verkið:

    Tenórin söng frábærlega um leið og hann valhoppaði um sviðið...

    SvaraEyða
  4. Tókstu það ekki full alvarlega þennan "breikaleg frasa?"

    Ég hef tví-tábrotnað þ.e. á sínhvorri litlutánni svo að ég veitað þetta er ekki gott. "Teipaðu" tánna við næstu tá og þá kemur þetta, vont en það venst.

    Bestu kveðjur,og toíj, toíj.
    Aðalheiður

    SvaraEyða