2.7.08

Hefði ég lýs væru þær dauðar!

Önnur orð þarf vart til að lýsa undran minni á viðbrögðum leigumiðlunarinnar minnar.

Ég hringdi í gær til að "kvarta" yfir klósettkassanum, eins og glöggir lesendur hafa séð. Og í morgun kl 9:30 kom maður og skipti bara hreinlega um, verkið tók hann um klukkustund og eftir stendur þessi fíni nýji hreini kassi. Jahh ég held ég verði bara ekki eldri :)

Það er hægt að segja margt um Þjóðverjana, en í þessu held ég að þeir séu alveg skotheldir.

3 ummæli:

  1. Þeta er sérlega lystaukandi uppskrift: ítalskur pastaréttur, óperuæfingar og grafísk lýsing á klósettkassa.
    Tenórinn að dundasér við að þetta allt saman á sömu stundu,smakka pastaréttinn með sleif, troða plastpoka ofaní lekan klósettkassann og syngja á meðan: Trinke, Liebchen, trinke schnell.
    Ó, já.

    SvaraEyða
  2. Ja, hérna hér - og virkar kassinn já? það er gott. Var næstum búin að yrkja handa þér klósettkassavísu, en hætti við. Annars byrjaði hún svona:
    kósetts á kassann ég mæni
    og klappa' honum þegar ég spræni...

    svo fannst mér þetta ekki viðeigandi og hætti

    En nú tók lítt betra við þegar táin brotnaði, þá rann mér blóðið til brag-skyldunnar og byrjaði aftur að yrkja fyrir þinn munn

    Baugtáin er brotin mín
    brast við hátt, svon' upp á grín
    ...
    svo datt mér ekkert í hug nema eitthvað með svín. Fannst það ekki viðeigandi og hætti...

    Það er erfitt að vera penn...

    SvaraEyða
  3. Ég geri ráð fyrir að H.Ág. hafi átt færsluna hér á undan.
    Helga: Þú ert óborganleg...

    Bestu kveðjur,
    AÐalheiður

    SvaraEyða