14.7.08

Engin fer út á Paradestrasse

Frumsýning var í gærkvöldi og gekk líka svona svakalega vel, adrenalínið varð til þess að ég fann ekkert fyrir brákuðu rifbeininu meðan ég var á sviði, en ég er heldurbetur að finna fyrir því núna :) Það fór ekkert úrskeiðis, og þetta var allt tekið upp á videó af þeim í skólanum, þannig að ég þarf að nálgast það hjá þeim og fara yfir áður en ég tek ákvörðun um hvort þetta sé birtanlegt hér á þessu bloggi. En það getur tekið langan tíma að fá þetta í hendurnar þannig ég bíð þolinmóður. Janet og maðurinn hennar mættu ásamt einhverjum samnemendum mínum en fóru í hléi vegna þess að þeim líkaði ekki sviðsetningin!! Svona fór þá um stuðninginn frá þeim! EN mín ágæta eiginkona, og Einar sátu allan tímann og heilsuðu upp á mig eftir sýninguna, sem var mjög gaman. Eftir á fór svo stór hluti af hópnum á tælenskan stað sem var svona í dýrari kantinum en mjög góður. Þar spjallaði ég nú aðallega við hana Dísu, sem var líka í sýninginunni, er ekki alveg viss um að ég hefði haft orku í að tala þýsku og hlusta allt kvöldið, það var því kærkomið að geta slakað á tungumálinu líka :)

Nú ég vaknaði svo bara snemma í morgun og fór að vinna. Von er á ljósmóðurinni hérna eftiir klukkutíma og er frúin á fullu að taka til :) Megum ekki líta út eins og eitthvað rónabýli. En tilgangur heimsóknar hennar er að taka niður sjúkrasögu og annað, eitthvað sem getur tekið langan tíma. Við erum enn ekki búin að heyra neitt frá TR, sem kemur mér svosem ekki mikið á óvart, en það verður fróðlegt að sjá hvað kemur útúr því.

Nú svo er ég ekkert búinn aðheyra ennþá frá bankanum varðandi þessar Evrur sem ég millifærði vegna námskeiðsins í Lofer, þær hafa allavega ekki skilað sér til baka á reikninginn minn og bankinn er ekki búinn að hafa samband eins og var lofað, því ætla ég að hendast uppeftir í dag og tékka á þessu aftur.

Annars er bara allt eins og það á að vera, og við í góðum fílíng.................. og varðandi fyrirsögnina, þá er þetta rétt, það virðist engin fara úr eða í U-Bahn á Paradestrasse, það er eitthvað dularfullt við það.... þarfnast eflaust einhverrar rannsóknar, sem ég mun fara í síðar :)

3 ummæli:

  1. Hamingjuóskir með að fyrstu óperufrumsýningunni er lokið. Eitt skref í einu.
    Það væri nú gaman að frétta af því hvað veldur því að fólk lætur sig hverfa í hálfleik út af óperusýningu með þig innanborðs. :)

    SvaraEyða
  2. Til hamingju, til hamingju!! og dásamlegt að beinin skyldu ekki plaga þig á sýningunni.
    Hafði annars séð þig fyrir mér gjöktandi um sviðið við illan leik.

    já, já sviðsetningin var vond, hehehehe!! EN það er ekki þitt vandamál.

    Og áfram gakk, upp allan stigann!
    Eða eins og Jón lögfræðingur sagði í skeytinu til látins arabaleiðtoga:

    I'm with you.
    Jón lögfræðingur,
    Barónsstíg 53,
    bakdyramegin.

    H.Ág

    SvaraEyða
  3. Elsku Egill og eiginkona,
    til hamingju með allar þessar frábæru fréttir sem er búið að vera ótrúlega gaman að lesa :)
    Gangi ykkur bara alveg ofsalega vel áfram - hlakka til að heyra í þér næst á einhverri stórsýningunni - góðir hlutir!
    Þórey

    SvaraEyða