16.7.08

Ein í albúmið

Það varð úr að ég ákv að henda inn einni mynd af væntanlegum erfingja. Hversu rétt í hlutföllum hún er kann ég ekki að segja, en varirnar virðist barnið erfa frá móður sinni :)Það er kannski helst að gerast þessa daganna að veðrið er algerlega að gera útaf við mann, það er almannarómur hér í Berlín að fólk er almennt þreytt og þungt í geði þessa daganna, sökum mikilla skýja og rigninga. Þar er ég enging undantekning, og langar manni helst að vera bara undir sæng að horfa á videó og horfa á einhverja góða þætti. EN, maður þarf að vinna og standa við skuldbingingar sem er ekki alltaf það skemmtilegasta. Ég hentist í hádeginu í dag í skólann til að taka þátt í leikstjórnarprófi eins af leikstjórunum sem var með Fledermaus, og gekk það bara ágætlega held ég. Allavega skemmtum við Ivi(sópranin sem var að syngja á móti mér) okkur ágætlega. En nú er nóg komið, ekki meira svona rugl.

Ég var búinn að segja frá símtali sem ég fékk fyrr í sumar um einhverja tónleika sem á að halda hérna í Berlín, og það var einhver Kim, sem hringdi í mig. Nú í fyrradag hringdi hún svo í mig aftur til að ítreka þetta og við mæltum okkur mót, og ég fór til hennar í gær. Þá er það svo í pottinn búið að tveir stjórnendur, annar frá Ísrael og hinn frá Brazilíu höfðu mælt með mér í þetta, hvernig það gat gerst er ofar öllum mínum skilningi, þar sem þessir stjórnendur höfðu bæði númerið mitt og nafn og alltsaman, og það sem meira er ég veit EKKERT hverjir þetta eru og hef aldrei unnið með þeim. Líklegast er það bara gott mál :) EN allavega þetta lítur svosem ekkert illa út þetta verkefni. Þessi Kim, er búinn að vera skipuleggja svona "Hauskonzert", og er víst búin að gera þetta 8 sinnum, að eigin sögn, og það komast um 80-100 manns á hvern konzert, hún segir að alltaf hafi verið fullt hús og þetta hafi alltaf mælst vel fyrir. Nú það er Berlínarborg, eða hverfið sem sér um að auglýsa þetta og að veita húsnæði, þannig að þetta er ekki eitthvað alveg útúr kú. Þessi Kim er mjög indæl kona, og syngur......jahh, hvað skal segja, allt í lagi held ég, hún var reyndar óupphituð, og ég reyndar líka, þegar við rendum stuttlega yfir einn dúett úr "Il trovatore". En það er svosem ekki það sem skiptir máli hér, hún með fullt af agentum sem hún er búin að bjóða, og svo er að vinna með henni leikstjóri frá Komische Oper, plús annar af þessum stjórnendum sem bentu á mig :) Þannig að þetta hljómar bara sehr gut, allavega sagði ég já við þessu og við listafólkið deilum svo aðgangseyrinum okkar á milli, þannig að þetta verður ekki alveg ókeypis.

Nú bankinn er búinn að hringja í mig og segja mér að peningurinn hafi komist til skila til Mörtu Sharp, en ég hef enn ekki heyrt frá henni hvort þetta sé rétt. Þannig að spennan liggur enn í loftinu varðandi það.

Nú svo hef ég versnað umtalsvert í brákuðu rifbeini mínu, líklega af því að ég er ekkert búinn að vera hvíla mig eins og mælst er til, þannig að ég þarf að fara reyna taka því rólega næstu daga, sjáum til hvort það gangi upp.

14.7.08

Engin fer út á Paradestrasse

Frumsýning var í gærkvöldi og gekk líka svona svakalega vel, adrenalínið varð til þess að ég fann ekkert fyrir brákuðu rifbeininu meðan ég var á sviði, en ég er heldurbetur að finna fyrir því núna :) Það fór ekkert úrskeiðis, og þetta var allt tekið upp á videó af þeim í skólanum, þannig að ég þarf að nálgast það hjá þeim og fara yfir áður en ég tek ákvörðun um hvort þetta sé birtanlegt hér á þessu bloggi. En það getur tekið langan tíma að fá þetta í hendurnar þannig ég bíð þolinmóður. Janet og maðurinn hennar mættu ásamt einhverjum samnemendum mínum en fóru í hléi vegna þess að þeim líkaði ekki sviðsetningin!! Svona fór þá um stuðninginn frá þeim! EN mín ágæta eiginkona, og Einar sátu allan tímann og heilsuðu upp á mig eftir sýninguna, sem var mjög gaman. Eftir á fór svo stór hluti af hópnum á tælenskan stað sem var svona í dýrari kantinum en mjög góður. Þar spjallaði ég nú aðallega við hana Dísu, sem var líka í sýninginunni, er ekki alveg viss um að ég hefði haft orku í að tala þýsku og hlusta allt kvöldið, það var því kærkomið að geta slakað á tungumálinu líka :)

Nú ég vaknaði svo bara snemma í morgun og fór að vinna. Von er á ljósmóðurinni hérna eftiir klukkutíma og er frúin á fullu að taka til :) Megum ekki líta út eins og eitthvað rónabýli. En tilgangur heimsóknar hennar er að taka niður sjúkrasögu og annað, eitthvað sem getur tekið langan tíma. Við erum enn ekki búin að heyra neitt frá TR, sem kemur mér svosem ekki mikið á óvart, en það verður fróðlegt að sjá hvað kemur útúr því.

Nú svo er ég ekkert búinn aðheyra ennþá frá bankanum varðandi þessar Evrur sem ég millifærði vegna námskeiðsins í Lofer, þær hafa allavega ekki skilað sér til baka á reikninginn minn og bankinn er ekki búinn að hafa samband eins og var lofað, því ætla ég að hendast uppeftir í dag og tékka á þessu aftur.

Annars er bara allt eins og það á að vera, og við í góðum fílíng.................. og varðandi fyrirsögnina, þá er þetta rétt, það virðist engin fara úr eða í U-Bahn á Paradestrasse, það er eitthvað dularfullt við það.... þarfnast eflaust einhverrar rannsóknar, sem ég mun fara í síðar :)

12.7.08

General, og ýmislegt...

Í dag er generalprufa á Fledermaus, og ég bara arfaslakur, þar sem þetta á ekki eftir að verða neitt mál. EN það sem er ölluverra er að mér hefur tekist að bráka rifbein í æsingnum á sviðinu. Það verður því ekki mjög þægilegt að hlaupa um í dag, og syngja meðan maður stendur upp! EN svona er það nú bara, blóð sviti og tár, allt fyrir listina.

Við Soffía hentumst í littla bæjarferð á miðvikudaginn, fórum m.a í H&M og frúin verslaði einhverskonar óléttufatnað, sem er ansi fyndin í sniðinu verð ég að segja, en hann virkar, og það er kannski það sem skiptir mestu máli. Við fórum svo á steikarstaðinn Maredo, og fengum okkur að borða áður en heim var haldið. Nú gær var svo heimagerð Pizza a la Soffia, og var hún ljúffeng sem áður, ef ekki bara betri. Það fór nú smá vinna í þá pizzu þar sem ekki var keypt rétt sósa á hana og fór ég þá í leiðangur að finna nýja sósu, í þeirri ferð minni komst ég að því að Kaiser's (annað af Hagkaupunum nálægt okkur), var bara hætt. Þá fór ég í Lidl, sem er einskonar "Bónus"-búð, og þar var ekki til sósan góða, þvínæst var haldið í Plus, sem er eiginlega ódýrari en Lidl, eða svipuð, og þar var heldur ekkert til. Þá fór ég að lokum í Reichelt, sem átti til 2 tegundir af umræddri sósu, sem ég keypti bara báðar.

Óléttuhornið:
20 vikna sónar er yfirstaðinn og allt lítur vel út, nema einhverjir áhættuþættir á "pre-eclampsia" (meðgöngueitrun), sem á að doubletékka eftir 4 vikur, þannig að það er ekki eitthvað sem þarf að fara hafa áhyggjur af strax. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál en svosem ekkert annað að gera en bíða, en læknirinn veit allavega af þessu. Í sónar tel ég mig hafa greint hvers kyns barnið er, en það er ekki rétt að upplýsa það hér :) Gaman verður að sjá hversu klár ég er að lesa sónarmyndir. Við erum aðsjálfsögðu byrjuð að reyna að hugsa upp einhver nöfn á hvort kynið sem er, en líklegast er það þannig hjá öllum að ekki erum við nú sammála. Það verður því gaman að sjá hvað kemur útúr þessu á endanum

Annars er bara allt gott að frétta, virðist vera hætt að rigna........allavega í einn dag, og það er bara gott mál, þar sem maður verður hálf þunglyndur á svona skammdegisveðri. Frumsýning á morgun, og svo skilst mér að flestir ætli á eitthvað fáránlegt fyllerí eftir á........sem er ekki líklegt að ég taki þátt í að svo miklu leiti, þar sem ég þarf að mæta í vinnuna daginn eftir, en hjá flestum þarna þá er skólinn bara búinn eftir þetta, þannig að maður skilur það svosem vel.

9.7.08

Stanslausar æfingar og veturinn að koma????

Já, það má nú alveg segja að það sé búið að vera mikið að gera undanfarna daga. Æfingar daglega, og í gær lauk ég 11 tímaæfingu, sem er náttúrulega bara rugl. En í dag er ég í fríi sem betur fer.......þ.e fríi frá æfingum. Ég er að sjálfsögðu að vinna hörðum höndum.
Veðrið hér í höfuðborg evrópu er ekki það besta sem maður hefur upplifað. 19°c og vindasamt. Það er í raun mjög kalt, og maður fer kannski ekki alveg út á bolnum. Það er því eins og hér sé að koma vetur, mikið af laufum út um allt og hvassviðri, svona þetta klassíska íslenska haustveður.
Það er komin mikið tilhlökkun eftir 14.júlí, en þá er þessu skrítna og pirrandi æfingaferli lokið, og við tekur daglegur lærdómur fyrir Lofer námskeiðið. Það verður voðalega gaman, er búinn að vera syngja yfir melodrama hlutann af Pagliacci sem er mitt stærsta framlag til þessa námskeiðs, og það er bara ótrúlega flott og skemmtilegt að læra. Mikið drama á ferðinni.

Af óléttu og barna málum er það að frétta, að ljósmæðra dótið er búið að segja að íslenska sjúkratryggingaskírteinið dekki ekki kostnað við þjónustu ljósmæðra.........samt segir TR að við eigum rétt á allri þeirri þjónustu sem íbúar þessa lands eiga rétt á! Þetta er eins óskiljanlegt og framast getur verið. Við erum með íslenska sendiráðið í málinu, og erum að vona að ekki þurfi að koma til þess að við þurfum að fara að leita að nýjum stað til að ganga í gegnum þetta alltsaman. Líklegast þurfum við þá að punga út einhverjum fjárhæðum til að geta gert þetta svo sómi sé að, og ekki eitthvað andskotans rugl. Ég átta mig bara ekki alveg á því hvernig þetta getur verið svona flókið. Annaðhvort virkar þetta sjúkratryggingaskírteini eða ekki.......!! Helvítis rugl sem er svosem týpískt fyrir bæði Ísland og þýskaland.

Jæja, nenni ekki að hugsa um þetta meira bili.

Hér hafið þið svo plakatið vegna sýnngarinnar á sunnudag.


5.7.08

Á þessum Drottins laugardegi

Já ég sit nú hér með annan fótinn upp í loftið vegna þess að mér tókst að tábrjóta mig(ef tær bæru fingranöfn héti hún Baugtá. En Litla-Gerður, skv einhverju Dalasýslu - Skagafjarðardæmi, Nú veit ég ekki hvort tengdó og co kannast eitthvað við þetta, en þetta fann ég eftir gúgglun, þegar ég fattaðaði að miðtærnar virðast ekki heita neitt!!?!?). Ekki er það gæfulegt þar sem aðeins er um ein vika í frumsýningu.....þetta er svosem týpískt! Og æfingar á hverjum degi í næstu viku, sem er fínt því það er svo rosalega gaman að labba svona. Það er sérstklega skemmtilegt líka að vita til þess að í hvert skipti sem ég fer að labba eitthvað aukast líkurnar umtalsvert að þetta grói seint og illa auk þess að líkurnar á gigt og einhverri svona vitleysu. Get ekki sagt að þetta ástand gleðji mig sérstaklega. Þetta gerðist í gær uppúr hádegi, og ég var þvímiður búinn að bóka mig í tíma hjá Herr Goldberg, og svo í bíó strax á eftir. Þannig að það var mikið pína að labba um í allan gærdag.

Ein af nemendunum sem eru að leikstýra ruglinu sem ég er að fara syngja í á sunnudag, hringdi í mig í gær og vildi hitta mig til að útskýra karakterinn minn, sem á að vera rosa flókinn. Ég er alveg búinn að fá hundleið á þessu rugli með þessa sýningu, og get ekki beðið eftir að þetta verði búið. Ég sagði henni náttúrulega að ég hefði verið að slasa mig, og ég ætli mér ekki að ferðast mikið, hún sagðist þá geta bara hitt mig einhversstaðar á kaffihúsi eða eitthvað, en það er sama fyrir mig versti kaflinn er að labba að heiman og í lestina. Það er nú reyndar gott veður, kannski get ég bara hjólað, það reynir ekkert á tærnar. Jahh, það er aldrei að vita hvað maður gerir, the agony of choice.

Annar kíkti ég á kvikmyndina "Hancock" í gær, hún kom mér verulega á óvart. Var ekki alveg eins og ég bjóst við. Hún var nú samt frekar týpísk að mörguleiti, og þannig séð ekkert sérstakt kvikmynda afrek, en ég skemmti mér bara nokkuð vel.

Í kvöld er ég svo með hvítlauks og gyrokrydds marineraðar strúta medallíur, kartöflusalat, kartöflubáta og 3.pipra sósu. Eflaust dásamlega gott, þar sem kjötið er búið að liggja í marineringunni síðan á fimmtudag.........*slurp*, þessu verður svo skolað niður með einu áströlsku. Það er langur og erfiður dagur framundan á morgun, en þá er ég á æfingu frá kl 10 til 18. Það er hinsvegar ljós í myrkrinu að núverandi eiginkona og verðandi barn snúa aftur til síns heima, verst að geta ekki tekið á móti þeim.

Nóg er það af blaðrinu í dag, veriði sæl.

2.7.08

Hefði ég lýs væru þær dauðar!

Önnur orð þarf vart til að lýsa undran minni á viðbrögðum leigumiðlunarinnar minnar.

Ég hringdi í gær til að "kvarta" yfir klósettkassanum, eins og glöggir lesendur hafa séð. Og í morgun kl 9:30 kom maður og skipti bara hreinlega um, verkið tók hann um klukkustund og eftir stendur þessi fíni nýji hreini kassi. Jahh ég held ég verði bara ekki eldri :)

Það er hægt að segja margt um Þjóðverjana, en í þessu held ég að þeir séu alveg skotheldir.

1.7.08

Ævintýrin eins og þau gerast best....

Héðan hefur ekki mikið vatn runnið til sjávar síðan ég bloggaði síðast, heldur má eiginlega segja að mikið vatn hafi runnið úr klósettkassanum hérna inni baðherberginu okkar. Það er nefnilega þannig að kassinn er mjög forn, og því verulega viðbjóðslegur (sjá mynd). (Ef vel er að gáð sjást vatnsdropar á vegnum, ég hef nú komið í veg fyrir þetta með því að setja plastpoka yfir)

Hann er farinn að leka, ásamt því að loka ekki nægjanlega vel fyrir eftir að sturtað hefur verið niður, þetta þýðir að kassinn þarf að vera alltaf opinn svo hægt sé að loka handvirkt fyrir vatnsflauminn. Ég gerði mér því lítið fyrir í dag og hringdi í okkar ágæta leigufyrirtæki, og þeir ætla að senda mann á morgun milli 9 og 12, eins gott að menn bregðast hér hratt við......nenni ekki að vera standa í svona rugli.

Nú svo til að bæta rugli ofan á rugl, þá tókst þeirri ágætu konu sem sér um námskeiðið sem ég er að fara á í sumar að senda okkur vitlaust IBAN númer, sem þýðir að hún er ekki búin að fá neina greiðslu frá okkur, sem þýðir að ég þarf að fara upp í banka á morgun og forvitnast um það hvert 200 evrurnar mínar fóru þá eiginlega. Ég get ekki séð í einkabankanum að það hafi verið bakfært eða eitthvað slíkt......það er því svakalega spennandi dagur í vændum. Eiginkonan er svo væntanleg á sunnudag, og eðalfrænkan þann 22 annan, þannig að það eru ekki dauðir tímar framundan, auk þess sem ég er að sjálfsögu að frumsýna (alsýna) þann 13. Æfingar ganga bara nokkuð vel verð ég að segja, maður er ekki alltaf með allt rétt, en ég hef 2 vikur c.a :) Ég fékk einnig á síðustu æfingu sérstakt hrós frá öllum sem þar voru fyrir þýskan framburð minn sem er algjörlega hreimlaus, og mjög skýr og skiljanlegur. Sem er betra en hjá sumum þarna verð ég að segja :)

Nú er ég búinn að uppgötva sniðugar vörur til að elda flotta ítalska rétti þar á meðal einn af mínum uppáhalds "Penne/spaghetti Arrabbiata Pomodori Secchi" sem gæti hugsanlega útlagst sem "Penne/spagettí Reiðir sólþurkaðir tómatar" :) En reiðin á að vera chillið sem er í þessu :) Fyndnir þessir rugluðu ítalir. EN þetta er nú bara basically "Sólþurkaðir tómatar, Eggaldin, Chilli, Basil, Zucchini og hvítlaukur" Þetta eru bara þurrkaðar jurtir saman í pakka, sem maður hitar létt í extra virgin ólífuolíu í smá stund, og hellir smá vatni yfir og svo hendir þeirri pasta tegund saman við sem maður er með við hendina. Aægjör snilld og verður jafnvel betra daginn eftir.........svo kosta herlegheitin ekki nema rétt rúman 200 kall. Þetta er að sjálfsögðu líka hægt að gera bara með sama innihaldi, nema bara ferskt...og það er sko fátt sem toppar það, en það tekur bara allt tíma, sem ég þykist ekki hafa :)

Jæja góða nótt héðan frá ævintýramiðstöðinni að Kurfürstenstrasse 75 í bili..............verði sæl.