Já ég sit nú hér með annan fótinn upp í loftið vegna þess að mér tókst að tábrjóta mig(ef tær bæru fingranöfn héti hún Baugtá. En Litla-Gerður, skv einhverju Dalasýslu - Skagafjarðardæmi, Nú veit ég ekki hvort tengdó og co kannast eitthvað við þetta, en þetta fann ég eftir gúgglun, þegar ég fattaðaði að miðtærnar virðast ekki heita neitt!!?!?). Ekki er það gæfulegt þar sem aðeins er um ein vika í frumsýningu.....þetta er svosem týpískt! Og æfingar á hverjum degi í næstu viku, sem er fínt því það er svo rosalega gaman að labba svona. Það er sérstklega skemmtilegt líka að vita til þess að í hvert skipti sem ég fer að labba eitthvað aukast líkurnar umtalsvert að þetta grói seint og illa auk þess að líkurnar á gigt og einhverri svona vitleysu. Get ekki sagt að þetta ástand gleðji mig sérstaklega. Þetta gerðist í gær uppúr hádegi, og ég var þvímiður búinn að bóka mig í tíma hjá Herr Goldberg, og svo í bíó strax á eftir. Þannig að það var mikið pína að labba um í allan gærdag.
Ein af nemendunum sem eru að leikstýra ruglinu sem ég er að fara syngja í á sunnudag, hringdi í mig í gær og vildi hitta mig til að útskýra karakterinn minn, sem á að vera rosa flókinn. Ég er alveg búinn að fá hundleið á þessu rugli með þessa sýningu, og get ekki beðið eftir að þetta verði búið. Ég sagði henni náttúrulega að ég hefði verið að slasa mig, og ég ætli mér ekki að ferðast mikið, hún sagðist þá geta bara hitt mig einhversstaðar á kaffihúsi eða eitthvað, en það er sama fyrir mig versti kaflinn er að labba að heiman og í lestina. Það er nú reyndar gott veður, kannski get ég bara hjólað, það reynir ekkert á tærnar. Jahh, það er aldrei að vita hvað maður gerir, the agony of choice.
Annar kíkti ég á kvikmyndina "Hancock" í gær, hún kom mér verulega á óvart. Var ekki alveg eins og ég bjóst við. Hún var nú samt frekar týpísk að mörguleiti, og þannig séð ekkert sérstakt kvikmynda afrek, en ég skemmti mér bara nokkuð vel.
Í kvöld er ég svo með hvítlauks og gyrokrydds marineraðar strúta medallíur, kartöflusalat, kartöflubáta og 3.pipra sósu. Eflaust dásamlega gott, þar sem kjötið er búið að liggja í marineringunni síðan á fimmtudag.........*slurp*, þessu verður svo skolað niður með einu áströlsku. Það er langur og erfiður dagur framundan á morgun, en þá er ég á æfingu frá kl 10 til 18. Það er hinsvegar ljós í myrkrinu að núverandi eiginkona og verðandi barn snúa aftur til síns heima, verst að geta ekki tekið á móti þeim.
Nóg er það af blaðrinu í dag, veriði sæl.
5.7.08
2.7.08
Hefði ég lýs væru þær dauðar!
Önnur orð þarf vart til að lýsa undran minni á viðbrögðum leigumiðlunarinnar minnar.
Ég hringdi í gær til að "kvarta" yfir klósettkassanum, eins og glöggir lesendur hafa séð. Og í morgun kl 9:30 kom maður og skipti bara hreinlega um, verkið tók hann um klukkustund og eftir stendur þessi fíni nýji hreini kassi. Jahh ég held ég verði bara ekki eldri :) 

Það er hægt að segja margt um Þjóðverjana, en í þessu held ég að þeir séu alveg skotheldir.
1.7.08
Ævintýrin eins og þau gerast best....
Héðan hefur ekki mikið vatn runnið til sjávar síðan ég bloggaði síðast, heldur má eiginlega segja að mikið vatn hafi runnið úr klósettkassanum hérna inni baðherberginu okkar. Það er nefnilega þannig að kassinn er mjög forn, og því verulega viðbjóðslegur (sjá mynd). (Ef vel er að gáð sjást vatnsdropar á vegnum, ég hef nú komið í veg fyrir þetta með því að setja plastpoka yfir)

Hann er farinn að leka, ásamt því að loka ekki nægjanlega vel fyrir eftir að sturtað hefur verið niður, þetta þýðir að kassinn þarf að vera alltaf opinn svo hægt sé að loka handvirkt fyrir vatnsflauminn. Ég gerði mér því lítið fyrir í dag og hringdi í okkar ágæta leigufyrirtæki, og þeir ætla að senda mann á morgun milli 9 og 12, eins gott að menn bregðast hér hratt við......nenni ekki að vera standa í svona rugli.
Nú svo til að bæta rugli ofan á rugl, þá tókst þeirri ágætu konu sem sér um námskeiðið sem ég er að fara á í sumar að senda okkur vitlaust IBAN númer, sem þýðir að hún er ekki búin að fá neina greiðslu frá okkur, sem þýðir að ég þarf að fara upp í banka á morgun og forvitnast um það hvert 200 evrurnar mínar fóru þá eiginlega. Ég get ekki séð í einkabankanum að það hafi verið bakfært eða eitthvað slíkt......það er því svakalega spennandi dagur í vændum. Eiginkonan er svo væntanleg á sunnudag, og eðalfrænkan þann 22 annan, þannig að það eru ekki dauðir tímar framundan, auk þess sem ég er að sjálfsögu að frumsýna (alsýna) þann 13. Æfingar ganga bara nokkuð vel verð ég að segja, maður er ekki alltaf með allt rétt, en ég hef 2 vikur c.a :) Ég fékk einnig á síðustu æfingu sérstakt hrós frá öllum sem þar voru fyrir þýskan framburð minn sem er algjörlega hreimlaus, og mjög skýr og skiljanlegur. Sem er betra en hjá sumum þarna verð ég að segja :)
Nú er ég búinn að uppgötva sniðugar vörur til að elda flotta ítalska rétti þar á meðal einn af mínum uppáhalds "Penne/spaghetti Arrabbiata Pomodori Secchi" sem gæti hugsanlega útlagst sem "Penne/spagettí Reiðir sólþurkaðir tómatar" :) En reiðin á að vera chillið sem er í þessu :) Fyndnir þessir rugluðu ítalir. EN þetta er nú bara basically "Sólþurkaðir tómatar, Eggaldin, Chilli, Basil, Zucchini og hvítlaukur" Þetta eru bara þurrkaðar jurtir saman í pakka, sem maður hitar létt í extra virgin ólífuolíu í smá stund, og hellir smá vatni yfir og svo hendir þeirri pasta tegund saman við sem maður er með við hendina. Aægjör snilld og verður jafnvel betra daginn eftir.........svo kosta herlegheitin ekki nema rétt rúman 200 kall. Þetta er að sjálfsögðu líka hægt að gera bara með sama innihaldi, nema bara ferskt...og það er sko fátt sem toppar það, en það tekur bara allt tíma, sem ég þykist ekki hafa :)
Jæja góða nótt héðan frá ævintýramiðstöðinni að Kurfürstenstrasse 75 í bili..............verði sæl.

29.6.08
Heimsspekiblogg
Skrifað meðan em leikur Þjóðverja og Spánverja er i "fullum gangi".
Maður veltir því fyrir sér á þessum tímapunkti hversu virði allt er sem maður tekur sér fyrir hendur.....að fara til annars lands til að læra það sem virðist óendanlegt. Hvað þarf maður að gera þetta lengi til að fara líða eins og þetta sé eitthvað sem maður vill gera að eilífu. Reyndar langar mig að gera þetta að eilífu, en mig langar að gera það vel og þannig að sómi sé að hvar sem maður stingur niður fæti! Ekki það að maður sé ósáttur við það sem maður hefur gert hingaðtil, heldur, snýst þetta meira um tilgang manns í þessu lífi. Ég veit það að tilkoma lífs í mína umsjón mun breyta einhverju, en mun það hafa áhrif á tilgang lífsins? Það verður að koma í ljós, aðeins þeir sem hafa upplifað þetta geta vitað það. Ég tel að ég mundi róast á geðinu, og verða sáttari með það sem ég hef í dag, sem er í raun það sem ég þarf núna. En hvað það verður kemur í ljós. ´
Þessi einhver gerir mann íhugulli en áður, og því blogga ég þetta blogg til að hlæja að þegar ég verð fimmtugur :) Maður veit jú alltaf best þeim mun eldri sem maður verður, en maður veit að sjálfsögðu aðeins betur en maður sjálfur, ekki aðrir :) Held að það sé svolítið mikilvægur punktur. 70 mín núna liðar af leiknum, og ekkert að gerast. Það verður virkilega gaman að sjá hvað verður skv draumum mannsins........hingaðtil segja þeir að fyrsta barn verði strákur........skv síðustu draumum, feitur strákur með himinblá augu :) En, það sem mann dreymir um er oftast öfugt við það sem maður sér, því veit maður auðvitað ekki, en hvort sem það er er það alltaf velkomið í minn heim :)
Æfingar ganga eins og skíturinn, og breytingar eru nánast daglegt brauð, sem er mjög ömurlegt, en eins og áður sagðu, þá er ekki við það ráðið í þessum bransa. Nema maður sé frægari en djöfullinn sjálfur........sjáum hvað setur :)
Í gær var partý hjá þeim gömlu við hliðina á okkur, og þau fengu lánað hjá okkur borð og stóla. Ég fékk svo uppábank um átta leitið, þar sem þau færðu mér disk með ýmsu grilluðu góðgæti, sem var bara ótrúlega gott. Þetta er yndislegt fólk hérna við hliðina á okkur, það er ekki hægt að segja annað. Ég er búinn að vera euitthvað veikur síðustu daga og hef ekki getað sungið eins og fullkomið er, enda hef ég verið að hvíla mig. Nú er málið allt annað og ég farinn að sygja eins og ég á að mér.
Lífið er gott og við eigum að njóta þess.

26.6.08
Ég er sigurvegari, ég er bestur (afþví að ég vann í fótbolta)
Ég setti saman lítið myndband í tilefni gærdagsins, og þið sem þetta lesið geti notið þess hérna.
Þetta er aðallega gert fyrir þann næstelsta og Vater.

25.6.08
Stór dagur í dag
Stórleikur Þýskalands og Tyrklands í kvöld, og búist er við rúmlega 500.þús manns við Brandenborgarhliðið til að horfa á leikinn. Hvort ég verði þar á meðal er ekki ákveðið á þessari stundu, en ég get glatt hann karl föður minn að ég mun horfa á leikinn, en bara afvþví að ég er "í róm". Þetta verður vissulega spennandi ef tyrkirnir ná að redda sér fyrir horn eins og þeir hafa gert í síðust tveimur leikjum sem ég hef séð. Þeir spila leiðinlegasta fótbolta sem ég hef séð lengi.
Ég er allavega með rissjónvarpið mitt hérna og er búinn að bjóða íslendingunum að kíkja hingað að horfa ef þeir vilja. Eigum þó eftir að heyrast frekar í dag og ræða þessi mál. Held að það verði gaman að kíkja í bæinn, en spurning hvort maður eigi eftir að sjá eitthvað eða njóta þess......ég meina það verður umtalsvert meira af fólki þar en er á öllu íslandi :) Jæja sjáum hvað setur.
Æfingar fyrir "Die Fledermaus" ganga bara sæmilega, þó finnst mér soldið skipulagsleysi einkenna æfingaferlið hjá þessu fólki. Það var t.d sent út æfingaplan fyrir rúmum mánuði, sem ég prentaði út og hengdi upp hjá mér til að muna þetta allt saman og til að skipuleggja tímann minn þannig að ég verði ekki mikið fjarverandi frá vinnu. Það gekk allt vel, þangað til þau sendu annað plan, og annað og annað, sem við erum að vinna eftir í dag. Þetta er orðið allt of ruglingslegt, og varð til þess að ég gleymdi æfingu sem ég átti að vera á í gær! Það er eflaust erfitt að setja svona saman svo öllum líki, en svona er það bara. Svo er ein leikstýran þarna sífellt blaðrandi að útskýra sína sýn á málið og hvernig hún sér atriðin og það fer stundum bara fullt af mikilvægum tíma í blaður og vitleysu. En þau eru svosem ekki ein um það, svona virðist þetta bara vera allsstaðar sem ég hef komið. Þetta er bara framtíðin í þessu, ef maður kemst inn í þennan bransa.
Jæja þarf að fara dusta rykið af þýsku fótboltasöngvunum svo maður sé liðtækur í kvöld:
Zieht den Bayern die Lederhosen aus,
Lederhosen aus, Lederhosen aus
Zieht den Bayern die Lederhosen aus,
Lederhosen aus, Lederhosen aus
(við lagið Yellow Submarine)

---------------------------------
Freude schöner Fußballzauber,
das ist unser Sankt Pauli,
Zuckerpässe, Zaubertore, Fußballgötter allesamt,
Kurzpassspiel und Übersteiger, so kriegt das nur einer hin,
Freudeschöner Fußballzauber,
das ist unser Sankt Pauli,
La, La, La, La, La, La, La, La, La, La
--------------------------------

Steht auf, wenn ihr deutsche seid.
Steht auf, wenn ihr deutsche seid.....
Steht auf, wenn ihr deutsche seid.....
-----------------------------
Auf geht's Deutschland–schiesst ein tor'

23.6.08
Blogg til að blogga
Helgin flaut ljúflega hjá, og ég leyfði mér ýmsan ólifnað, þar sem ég er svo óvanur að vera einn heima :) Sökum anna síðustu daga hef ég ekki verið að sinna líkamsræktinni eins og vera ber, en hef nú aftur tekið upp þráðinn. Því var kærkomið að klára þann litla bjór sem þó var eftir í ísskápnum.....og jafnvel kaupa aðeins meira því það var svo lítið til. Nú en Gunnar kíkti hérna við á föstudaginn, og við skelltum okkur á "gula staðinn" svokallaða þar sem við snæddum dýrindis steikur, og drukkum dýrindis bjóra með, auk þess að fá okkur góðan eftirrétt. Á staðnum var sjónvarp, og við, sem erum litlir fótboltaáhugamenn festumst yfir leik Króata og Tyrkja, þar sem við búum nú nánast í Tyrklandi hérna. Ég reyndar hélt með Króonum allan tímann, því mér fannst bara Tyrkir spila leiðinlegan bolta. Við fórum svo heim á leið í byrjun seinni hálfleiks, og keyptum okkur öl á leiðinni. Svo horfum við á seinnihlutann hérna heima á Kurfürsten, voða gaman, en svekkjandi. Svo kíktum við á nokkur óperubrot áður en hann hélt heim á leið.
Laugardagur og sunnudagur fór svo bara í að læra eins og góðum námsmanni sæmir. Hitastigið á Sunnudeginum var svo bara alveg fáránlegt, þá var það nú aðallega rakinn sem náði til manns. Þetta endaði svo allt með heljarinnar þrumuveðri um kvöldið, sem var nú gaman að upplifa, þó maður nú nokkrum sinnum gert það áður. Ég tók einhverjar myndir af því, og mun henda þeim hérna inn við tækifæri, ásamt fótboltaólátamyndum, lúðrasveitar vakningu og rigningamyndum.
Æfing í kvöld, og ég tilbúinn eftir helgina, að takast á við það sem súrkálið hendir að mér :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)