Elstu börnum refsað mest (tekið af MBL)
Frumburðir bera meginþunga af agaviðurlögum foreldra sinna, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birtist í Economic Journal. Komust vísindamenn að því að yngri börn í fjölskyldu þyrftu mun sjaldnar að þola refsingu en þau elstu.
Leiðir þetta til þess að öðru, þriðja og fjórða barni í fjölskyldu hættir til að leiðast af réttri braut þegar aldurinn færist yfir. Segja skýrsluhöfundar þau líklegri til að hætta í skóla, neyta áfengis eða eiturlyfja eða eignast börn á táningsaldri.
Ekki frá því að þetta sé nokkuð rétt :)
Búið er að henda okkur inn á dagskrá Nordischer Klang
Áætlað er að hittast á morgun til að fara æfa eitthvað fyrir þetta, og maður er að lesa og læra texta fyrir tilefnið, það er stórgaman auðvitað :)
Sem fyrr er veðrið hérna eins og í leiðinilegustu lygasögu sem samin hefur verið, rigning, rigning og aftur rigning. Það er eitthvað að hlýna, og við megum eiga von á þrumuveðri á morgun eða um helgina. Þetta er náttúrulega bara stórkostlega frábært, svo ekki sé meira sagt.
Ekki gengur mikið né rekur í þyngdartapi, þrátt fyrir stífar æfingar og markvisst matarprógram, það er ekki nógu hvetjandi, en það að mér líður betur segir meira en mörg orð, því verður þessu haldið áfram þar til ég fer að æla blóði af ofreynslu. Söngur er allur að koma til, og í gær rendi ég yfir mjög erfiða aríu úr óperunni Le Cid eftir Massenet. Mjög falleg og frekar erfið. Ég er loksins að sjá fyrir endan á ákveðinum raddlegum erfiðleikum, og það er vissulega bjartara framundan með blóm í haga. Svo er David auðvitað að koma í næstu viku, og þá fæ ég vonandi sérstaka innspýtingu. Ég ætla að reyna að taka það upp á Videó, og ef það er sýnanlegt, þá birti ég kannski smá brot frá þessu öllu saman.
Í lokin birti ég hérna í anda karls föður míns, litla vísu,
Hvað er ég?
Ekki er ég valin úr hópum kvinna,
Ekki er ég valin úr hópum kvinna,
tilheyri samt, án þess að vinna.
Lítið ég gef nema kærleik í hjarta
Tek mér það leyfi aðeins að kvarta
þegar ég þarf þess því þannig ég lifi.
Hræðslu ég vek þó sumum í huga
þó er ég saklaus en næ fólk að buga
gefðu mér ást þína, líf og hjarta
ég hef mér þá eitthvað í lífin'að skarta.
því að ég þarf þess og þannig ég lifi.
-------