7.4.08

Næturfrost, og leiðindi

Þá er ekki komið sumar hjá okkur. Í morgun var nístandi frost, þegar ég fór í klassann, það er alls ekki skemmtilegt, maður er bara svo óþolinmóður að bíða eftir sumrinu, þar sem þetta verður vonandi í fyrsta skipti þar sem maður fær sumar yfir sumartímann :)

Ég fór á laugardaginn á tónleika með karlakór kjalnesinga sem voru staddir hér í helgarferð. Kórinn var bara nokkuð góður, þetta var skemmtileg tilbreyting á laugardegi. Ætlunin var svo að skella sér í bæinn að gera bara eitthvað, en það varð ekki raunin, í staðinn héngum við bara heima við og horfðum á videó, sem var nú bara alveg ágætt.

Tvívegis, síðan við komum hingað í okkar íbúð, höfum við fengið einhverja tilkynningu í pósti eða blaði sem límt var á gluggann um að einhver væri að koma til okkar og við þyrftum að vera heima annars þyrftum við að borga fyrir endurkomu. Þetta finnst mér alveg magnað, í eitt skiptið kom maður að lesa af einhverjum svona mælum sem eru hérna á öllum ofnum, og ég hef ekki hugmynd um hvað gera. Í annað skiptið kom svo maður hérna kl 7 um morgununn til að mæla kraftinn í viftunum á baðinu og í eldhúsinu....!!! Maður skilur bara ekki alvega í hvaða rugli maður er eiginlega, en svona er þetta nú bara.

Ég kláraði svo í gær tölvuleikinn "The Witcher", sem er bara einn af skemmtilegri tölvuleikjum sem ég hef spilað. Tók reyndar afskaplega langan tíma, en ég naut þess, nú get ég loksins farið að einbeita mér að náminu :)

Vegna óhagstæðs gengis, og ákvörðunar kennara míns að hækka gjaldskránna sína, er ég tilneyddur til að fækka söngtímum úr 2 í 1 á viku, sem er alveg ömurlegt! EN maður verður víst að sníða sér stakk eftir vexti og það geri ég með þessu, í staðinn ætla ég að reyna að komast að hjá píanóleikara á móti söngtímum, það er helmingi ódýrara fyrir mig. Á síðasta föstudag var ég í söngtíma og má segja að það hafi verið stærsti söngtími sem ég hef upplifað síðan ég kom hingað, þar sem ýmislegt magnað gerðist, og þar fattaði ég í fyrsta skipti hvernig hægt er að tengja lágan barka, opin háls og háan mjúkagóm með stuðningi. Þetta er nú bara ekki nógu auðvelt, en ætti að verða það þegar maður er búinn að fatta, nú er það bara spurning um að æfa sig.

Það má einnig segja að myndbandið hér að neðan, með meistara Pavarotti, hafi kennt mér ÓTRÚLEGA mikið, hann er hérna að sýna muninn á að syngja í því sem heitir "cover"/"deckung"/"protection".

1 ummæli:

  1. ég hlakka til að heyra í þér í sumar þegar þú ferð að kvarta undan hita :)

    leiðinlegt hvað gengið er að fara illa með ykkur þarna í landi bjórsins en þetta er nú vonandi allt að ganga til baka !

    SvaraEyða