15.4.08

Allt er rugl

Jaaaaaaæja, þetta er nú alveg að verða komið gott!! Þegar veðurfarið á Íslandi er orðið betra en hérna, þá finnst mér nóg komið. Púff, getur maður endalaust pirrað sig á veðrinu? Já ég held það, þar sem það hefur bein áhrif á skapið.....allavega í mínu tilviki.

Ég átti tíma með Janet í morgun, og fór hjólandi af stað í grenjandi rigningu sem er hér núna, og verður í dag, og hugsanlega næstu daga. Þegar ég kom svo á staðinn, þá var annar nemandi hennar líka mættur, og taldi að hún ætti tíma núna, það reyndist vera svo að ég átti í raun tímann, en hún átti að vera á morgun. Hún var fullbókuð út vikuna, þannig að ég bauðst bara til að taka tímann hennar á morgun í staðinn. Svo hjólaði ég heim á leið, það er fínt að hafa frelsi til að hliðra til og þurfa ekki að vera alvega fastbundinn. Þó ég sé það að vissu leiti vinnunnar vegna. Ég samdi um að vera hérna í 70% vinnu, en raunin hefur verið sú að ég hef nánast verið að skila um 95-100% síðan ég kom, því það hefur verið mikið að gera, það er vissulega bæði jákvætt og neikvætt. EN það er eins og það er. Ég sé það sem jákvætt, þar sem án vinnunnar gæti ég ekki verið hérna að "leika mér", ég er því mjög þakklátur því trausti sem EJS sýnir mér með því að leyfa mér að vinna svona í fjarvinnu.

Hilmar er búinn að breyta æfingunni sem átti að vera á nk fimmtudag yfir á föstudag, þar sem hann er að fara til Leipzig. Skiptir litlu fyrir mig, ég hef nægan tíma, þá hef ég líka einn dag í viðbót til að reyna að læra músíkina sem við ætlum að flytja.

Janet var að biðja mig að syngja 20 mín tónleika ásamt 2-3 af hennar nemendum í Finlandia Zentrum, sunnudaginn 11.maí. Ég sagði að sjálfsögðu já, þar sem mig þyrstir í eitthvað að gera hérna. Þetta er reyndar daginn eftir að ég kem heim frá tónleikunum í Gristow. EN þetta hlítur að smella allt saman. Nú svo svo var ég að heyra í Hilmari með hugsanlegt annað gigg á svipuðum stað, en það myndi verða 17. eða 18.maí. Það er ekki alveg komið á hreint, en auðvitað væri það gaman.

Nú það styttist óðum í innflutningspartýið, 26. apríl, og þeim sem lesa þetta blogg og þekkja mig er að sjálfsögðu líka boðið, hef fengið kvartanir um að fólki, sem hvortsem er ætlar ekki að mæta hafi ekki verið boðið. En þarna verður góðra gesta vant eins og vanalega þegar við höldum léttar veislur/partý, m.a og mér til mikillar gleði ætlar David Jones að mæta, Janet mætir að sjálfsögðu ásamt sínum manni, og svo Íslendingarnir sem ég þekki hérna, Hilmar, Einar, Davíð, Gunnar og Dísa. Patricia Wiszniewski, sem hjálpaði okkur mikið þegar við vorum nýkomin, mun einnig mæta. Þessa dagana er maður að hugsa um hvernig við ætlum að framkvæma þetta, og erum komin með góðar hugmyndir sem vonandi komast í framkvæmd. Það versta er að ég held að ekki sé hægt að fá rúllutertubrauð hérna.........kemur mér svosem ekki mikið á óvart. En eins og einn góður segir: "If life gives you lemons, make lemonade", maður gerir bara það besta úr því sem manni er gefið, og þá ætti þetta að ganga upp :)

Þangað til síðar........

3 ummæli:

  1. flott flott, allt að gerast !

    góða skemmtun í partýinu :)

    SvaraEyða
  2. Ég tek undir með Guðnýju. Þetta er er allt að gerast .)

    SvaraEyða