12.3.08

Evran dottin í 107 og ég veit ekki hvað.....!!!

Hér hefur verið leiðindaveður undanfarna daga og lítið að gerast annað en vinna á fullu. Ég er þó búinn að vera reyna að skipuleggja mig og vinna eftir einhverjum áætlunum sem ég set mér fyrir, en það er bara ekki alveg að ganga. Við að breyta mataræðinu líkt og ég hef gert, fylgja alveg svakaleg fráhvörf, það er eiginlega með ólíkindum að manni líði svona, það læðast inn hugsanir eins og "hversvegna er ég að þessu?", sama hvað maður borðar maður er alltaf einhvernvegin svangur og það skapar bara ákveðin pirring í manni, sem er ekki gaman. Kannski/vonandi er þetta bara tímabundið. Ég er því búinn að taka þá ákvörðun að vera ekki alveg svona grófur í þessu eins og ég ætlaði mér upphaflega. Núna ætla ég að borða bara góðan mat, en þó sleppa sykri og glúteini eins og ég framast get. Brauð og kornmeti eru þó mikilvæg uppistaða fyrir mig, og því mun ég líklegast ekki sleppa því svo glatt.

Ég er komin á það að fara hreifa mig aftur, eins og komið hefur fram á þessari síðu, það felst í því að að loknu páskafríi mun ég hefja daglegar ferðir í ræktina þar sem ég ætla að reyna að fylgja einhverju plani í þetta skiptið. Maður hálf öfundar þau gömlu að vera að komast í gott form, þegar maður sjálfur hefur alla burði til að halda sér flottum líkamlega, en gerir það ekki. Jæja, en maður er þó byrjaður að hugsa þetta, því allt hefst jú á einni hugsun.

Ég henti mér svo í dag og lét tryggja allt draslið mitt, auk þess að tryggja okkur Soffíu gegn öllum þeim skaða sem við gætum hugsanlega valdið öðrum. Við erum því tryggð núna í bak og fyrir, fyrir 14 þús á ári, eins og staða evrunar er í dag. Svolítið mikið finnst mér, og kannski er þetta bara vitleysa, en það er búið og gert.

"Tilraunaeldhús Egils - matur fyrir hugsandi fólk"
Austurlenskt stir-fry að hætti tenorsins

Gulrætur
Paprika
Laukur
Engifer
Hvítlaukur
Kjúklingabringur
Black bean sauce
Soja sósa
Baunaspírur
Núðlur (má nota hvað sem er)
Kjúklinga/nauta soð

Skera kjúklingabringur í teninga, steikja á pönnu ásamt hvítlauk og engiferi. Eftir 3-4 mín setja saman við gróft skornar gulrætur, papriku og lauk (og eitthvað annað það grænmeti sem á hugan sækir) og svo auðvitað Black Bean sauce, sem gerir bragðið. Þetta er steikt saman í nokkra stund og smakkað til með kjöt eða kjúklingakrafti.

Sjóða þarf núðlurnar þegar maturinn er að verða tilbúinn. Gott er að byrja á að sjóða upp kjötkraft, þannig er hægt að nota hann bæði til að smakka til matinn, sjóða núðlurnar upp úr og svo er hægt að henda smá bok choi og jafnvel gulrótum eða öðru grænmeti samanvið og nota sem súpu á undan matnum. Nú má svo sturta matnum af pönnunni í eitthvað ílát, setja smá olíu á pönnuna, hella vatni/soði af núðlum og steikja þær á pönnunni ásamt baunaspírunum og smá soja sósu til að fá bragð. Hollt gott, ódýrt og einfallt.

9.3.08

í Sól og sumari..

Ekki nóg með það að við séum að fara í páskaferð niður til Ítalíu (já það er búið að ákveða það), þá erum við einnig búin að panta okkur ferð til Rhodos í maí, þar sem stendur til að hitta súperfrænku Beggu og hennar föruneyti :) Voða fínt að vera búinn að ganga frá þessu. Þetta verður líklegast bara sumarfríið mitt í sumar, þó maður þurfi nú varla að fara langt til að vera hér í sumar og sól allt sumarið, sem verður vissulega svolítið öðruvísi.

Nú við erum að hugsa um að fara skrá okkur í líkamsræktarstöð sem er hérna ekki langt frá, það er um 29 EUR á mánuði, en þá má maður mæta hvernær sem er fyrir kl 13 á daginn, sem er alveg fínt fyrir mig, því ég er ekki kvöld workout maður, og hef aldrei verið. Þetta verður líka ótrúleg fjölbreytni fyrir mig, þar sem ég er heima allan daginn að vinna og maður er að verða svolítið leiður á að fara ekki almennilega í gang. Heima gat maður stuðað sig í gang með því að keyra í ruglinu sem þar fyrirfinnst, en hérna er þetta svo miklu rólegra eitthvað að maður veit ekki alveg hvernig maður á að haga sér!!

Helgin fór í að hjóla alveg gífurlega mikið, á föstudaginn eftir vinnu, skellti ég mér í heimsókn til Gunnars og frúar, sem búa í um 20mín hjólafjarlægð frá okkur, mjög vel staðsett, og eru nálægt Bergmannstrasse, sem er mjög flott og lifandi veitingahúsagata hér í Berlín. Þau búa á efstu hæð með útsýni á Sjónvarpstunrinn og einnig sést glitta í Berliner Dom. Verð að viðurkenna að þó það séu margir kostir sem fylgja því að búa á fyrstu hæð er margt til að öfundast út í þá sem búa á efstu hæðunum. Rólegheit í öllum herbergjum, gott útsýni osfrv. En svona er það bara, er ekki alltaf grasið grænna annarsstaðar? Nú við fórum svo öll út að borða um kvöldið á Mexikanska staðinn Cancún hérna á Mantauffelstrasse, sem er ekki ýkja langt frá Kurfürsten.

Hér er náttúrulega verkfall lestarstjóra næstu 10 daga, náist ekki að semja, og því hefur verið algert helvíti að ferðast hér um, þó ganga einhverjar lestar og við nýttum okkur það með því að fara í smá miðbæjarferð, svo var hjólað heim sem var um 45 mín ferð. Fín hreyfing þennan daginn og ekki laust við að maður kæmi samt endurnærður heim eftir þetta. Soffía reyndar alveg dauð, því hún hjólar almennt mjög mikið til og frá skóla, en fyrir mér var þetta algert afrek :)

Svo á sunnudeginum var farið í léttan hjólatúr að flottum garði hér í nánd, og þar þurfi að labba þar sem hjól eru bönnuð. Það kostaði 2 EUR í garðinn og ekki laust við að hann sé ansi flottur, gaman verður að kíkja þangað í sumar. Svo var farið á hinn steikar staðinn hérna nálægt og ég henti mér á dýrindis kengúrusteik, og Soffía fékk sér eitthvað 120gr smádót með kartöflu.

"Tilraunaeldhús Egils - matur fyrir hugsandi fólk"
Þetta var prufað á síðasta fimmtudag:

Hollustu karrí Egils:
Kjúklingabringur (skornar í teninga)
Hvítlaukur
Engifer
Eðalkarrí
Kanill
Negull
Kókosfeiti
Laukur
Paprika
Jógúrt 1,5%
Sýrður rjómi
Stevia (eða sykur)

Meðlæti:
Hvítlaukssteikt brokkolí
Brokkolí
hvítlaukur
salt og pipar

Hita pönnu með kókosolíu, steikja á henni örstutt puréaðan eða smáttskorinn hvítlauk, lauk og engifer. Henda kjúkling saman við eftir 1-2 mín, og láta léttbrúnast. Þvínæst hella samanvið papriku, og öðrui því grænmeti sem hugurinn girnist (ekki samt brokkolí, því það stelur bragði), hérn væri svo tilvalið a setja saman við kjúklingakrafti eða kjötkrafti, en ég gerði það ekki. Ég setti bara vatn, svo má henda saman við þetta karrí, bara góðum slatta, svo kanil og negul. Bara smakka þetta til. Eftir svona 10 mín, hella saman við jógúrt 0,5.ltr og 1-2 msk sýrðum og Stevía, bara rétt hnífsodd, eða 1 msk sykur. Láta helst malla í 30 mín.
Setja brokkolí í matvinnsluvél, og mauka það, ekki alveg í puré, en bara þangað til fínt sxað. Svo setja puréaðan hvítlauk og engifer á pönnu (50/50 engifer/hvítl), hvítlaukurinn má byrja að brúnast, henda svo brokkolí á og hræra grimmt. Salta og pipra eftir smekk. Algjör snilld sem meðlæti með mat, og svakalega hollt og gott.

6.3.08

Nýtt frá Valfurstagötu 75

Tekin hefur verið lýðræðisleg ákvörðn um að fara í páskafrí hérna á götu valinna fursta. Búið er að panta bíl, og er ætlunin að keyra sem leið liggur annaðhvort í gegnum Danmörk og til Svíþjóðar, nú eða bara niður til Salzburgar og Ítalíu. Ferðin hefur ekki verið skipulögð, og er það bara hið besta mál. Þetta verður svona óvissuferð bara með öllu sem því tilheyrir. Ferðavélin verður tekin með og bloggað ef þurfa þykir :)

Þar sem ég er hættur að borða sykur, gerjað, hveiti og ávexti í bili, þá fær maður aldeilis að finna fyrir því að til er eitthvað sem heitir fráhvarfseinkenni. Þetta þekki ég vegna þess að ég hef gert þett áður. Þetta er rúm vika af algjöru helvíti (kannski alveg svo slæmt), en þetta er erfitt, því líkaminn öskrar á eitthvað gerjað eða sykur, eða bara eitthvað sem er óhollt :) En ég stenst freystingar því það er bara komið að því. Það er ekki gaman að vera ekki við 100% heilsu, bæði andlega og líkamlega. Svo er bara svo tilvalið að breyta um lifnaðarhætti þegar maður er á nýjum stað, og ég tala nú ekki um, heima hjá sér allan daginn, maður hefur heldurbetur tækifæri til að elda og útbúa þann mat sem manni hentar við þær aðstæður.

Hér á eftir kemur létt uppskrift af mjög hollum millimálarétti sem ég er að hakka mig þessa dagana:
Sjóða saman
CousCous
Brokkolí
Eðalkarry (ekki eitthvað drasl)
Búa bara til nógu mikið af þessu, því þetta geymist í góðum ísskáp.

Svo þegar manni langar í eitthvað, einfaldlega tekur maður það sem maður þarf, skellir því í örbylgjuna og hitar, svo bara sulla yfir þetta hreinni jógúrt (þýska jógúrtin bragðast eins og AB mjólk), og sítrónusafa eftir smekk. Einnig er hægt að sleppa karríinu út í CousCousið og bæta bara kryddum við jógúrtina áður en henni er hellt yfir.....mmmmmm

Ég ætla mér svo að vera með reglulegan þátt sem heitir:
"Tilrauna eldhús Egils - matur fyrir hugsandi fólk"
þar sem ég mun birta þær uppskriftir sem mér dettur í hug að prófa.
"Næst verð ég með Brokkolí puré.....fylgist með"

4.3.08

Snjókarl með nef og með hatt

Já hérna er bara farið að snjóa.....merkilegt hvað þetta er líkt Íslandinu að vissuleiti. Veðrið gefur fögur fyrirheit um batnandi veður og hlýrri tíma, en svo er það allt rifið af manni og dempt yfir mann snjókomu. Hún er nú reyndar ekki mikil eins og sjá má á meðfygljandi mynd. Rétt hvítt á fótboltavellinum.
Nú staða evrunnar er farin að valda mér hugarangri, þar sem allt er orðið margfallt dýrara hérna en það var þegar við komum, tildæmis hefur söngtíminn farið úr rúmum 4200. kr í rúmar 5000.kr sem er alveg upphæð sem maður finnur fyrir. Nú svo til að bæta gráu ofan á svart, er Janet að fara hækka gjaldið í 60 EUR pr tíma, sem þýðir að miðað við stöðuna er farið að kosta jafn mikið fyrir mig að fara í tíma til hennar eins og að fara í tíma til David Jones, ég er því að hefja skoðun á flugi til NY, í lok sumars. Söngur gengur hægt, og ég er ekki alveg að átta mig á því hversvegna þessi ládeyða er yfir mér. Líklegast er það þó veðrið, en þó gæti það verið ýmislegt annað. Ég hef því tekið þá lýðræðislegu ákvörðun að hætta að drekka áfengi í bili og fara pína í mig mat sem ég hef ekki ánægju af því að borða, auk þess að hreyfa mig að lágmarki 40 mín á dag og stunda hugleiðslu. Gaman verður að sjá hvort ég komist ekki í betra andlegt og líkamlegt ástand við það.

Ég hef einnig komist að þeirri "groundbreaking" staðreynd að ég þarf bara einfaldlega að skipuleggja mig betur til að koma öllu sem ég vil og þarf að gera fyrir á einum degi.

2.3.08

Helgin sem var.......

Jahá, þá er langri helgi lokið, á miðvikudaginn komu foreldrarnir ásamt yngstu systkinum í heimsókn. Dagurinn hófst á því að fara út á Tempelhof Flugvöll að ná í bílinn, sem var hvorki meira né minna en Renault Espace, fínasti bíll og nokkuð kraftmikill. Ég keyrði Soffíu í skólann og fór svo beint á Tegel til að sækja fólkið, einhver seinkun var á flugi, þannig að ég keypti mér hálfan líter af vatni á 300 kall og m&m poka á 200 meðan ég var að bíða. Merkilegt hvað það er sem veldur því að verðlagið sé svona á flugvöllum!!!! það er allavega ekki skortur á viðskiptum sem skapar hátt vöruverð. Þetta er bara einhverskonar rugl efnahagssvæði, sem er svosem ekki nýtt, fyrir mér allavega.

Nú við byrjuðum helgina á að fara í Kurfürstenstr og borða smávegis góðgæti sem Soffía mín var búinn að útbúa fyrir þreytta gesti. Famílían átti góða stund saman hérna í 2-3 tíma, áður en ákveðið var að fara í smá bíltúr á Potsdammer Platz að skoða sig um. Eftir túrinn var farið að borða á Cancún, og það var sem fyrr nokkuð fínn matur. Daginn eftir var sofið út, eða alveg til kl 9:30, ég vaknaði þó rétt fyrir kl 8 til að vinna. Svo var haldið áleiðis niður að Beliner Dom, þar sem hún var skoðuð í bak og fyrir, eftir að tókst að finna bílastæði á skikkanlegu verði. Gengið var upp "Unter den Linden" sem er líklegast ein þekktasta gatan hérna um þessar mundir, stoppað var stuttlega í mat á "Cafe Via Nova" á Universitäts Strasse, þangað kíkti Hilmar Örn að hitta okkur. Við gengum svo öll saman upp að Brandenborgarhliðinu, þar sem Hilmar sýndi okkur "Raum der Stille" herbergið sem er einmitt í hliðinu sjálfu, mjög magnað að koma þangað.

Nú svo yfirgaf Hilmar okkur og við skelltum okkur í parísarhjólið sem búið er að setja upp nálægt Potsdammer Platz, sjá má skemmtilegt vídeó af þeirri för hérna :). Þvínæst var haldið í Alexa, verslunarmiðstöðina, þar sem fólk missti sig í innkaupum :) Eftir það var svo farið á frábæran steikarstað, sem er mjög þekktur og virtur hér í Berlín, "Block House". Daginn eftir var svo haldið á Kurfürstendamm, sem er ein aðal verslunargatan hérna, og er rétt við dýragarðinn. Þar fór kvenfólkið í fatabúðir og við strákarnir skelltum okkur í 6 hæða raftækjabúðina sem er svosem ekki í frásögu færandi. En þetta var stórskemmtilegt allt saman. Við hittum svo Hilmar og Andra son hans þegar við vorum að klára og keyrðum saman heim í kurfürsten, þar sem fólk fékk smá fordrykk áðurn en haldið var á "Buffalo steikhús", þar var borðað og rætt lífisins vandamál. Svo skildu leiðir og Hilmar og Andri héldu heim á leið á meðan við familían röltum okkur heim á Kurfürstenstr, þar sem fólk datt í svosem eins og eina rauða fyrir svefninn. Veðrið var bara held ég eins og best verður á kosið fyrir svona árstíma, og voru þau heppin að lenda ekki í roki og rigningu sem var komin í gang þegar ég skutlaði þeim á flugvöllin. Allt í allt frábær helgi og skemmtilegar stundir.

Nýjar myndir komnar hér til vinstri og meira síðar héðan frá Berlín.

24.2.08

Tropical Islands og bílaleigubíll

Helgin er búin að vera gífurlega skemmtileg, við ákváðum að leigja okkur bíl um helgina til að keyra aðeins um Berlín og nærliggjandi svæði. Nú ævintýrið hófst á bílaleigunni, þar komum við og ekkert mál að bóka bíl, nema þegar koma að heimilisfanginu okkar hérna í Berlín, þá var það allt í einu orðið eitthvað vandamál, þar sem ég þurfti helvítis anmeldungið...ég var farinn að sjá fram á að þurfa fara alla leið heim til að ná í það. En svo breytti ég bara í heimilisfangið mitt á Íslandi, og þá var allt í himnalagi!!! Ég endurtek, það er ekki í lagi með þjóðverja!! Við vorum búin að biðja um VW Passat eða sambærilegan, en fengum þess í stað Audi A3, sem er svívirðilega kraftmikill og flottur bíll, með innbyggðu leiðsögutæki(GPS). Ég stillti nú samt tækjunum hlið við hlið og þau voru ekki alltaf sammála sem setti mig stundum í smá klemmu, en það reddaðist nú allt :) Við fórum sem leið lág til Potsdam, sem er borg hérna rétt við Berlín, þar er mikil náttúrufegurð og risastór höll sem við kíktum lauslega á. Svo bar stoppað í Getränk Hoffman, sem er svona drykkjabúð hérna með mikið úrval af flestu drekkanlegu. Keyptum þar fullt, þar sem við vorum nú einusinni á bíl. Þvínæst var haldið heim á leið og í IKEA!! Þar sem við keyptum hillur í gestaherbergið, stofuna og ganginn.......en gleymdum aðal atriðinu!! sem voru gestarúmin :) Þannig að við förum aftur þangað rétt áður en við skilum bílnum á morgun og náum í það sem uppá vantar. Um kvöldið fórum við svo út að borða á fínum Mexíkóskum stað sem heitiir Cancún, þar var bara ansi gott að borða, svo var haldið heim og alls ekki var erfitt að finna stæði hérna nálægt heimilinu, allavega ekki eins erfitt og ég hélt.

Í dag var svo keyrt að Wannsee, sem er svona ein stærsta úti ströndin hérna í Berlín, rosalega flott svæði, förum þangað þegar fer að sumra aðeins. Þvínæst var ekið sem leið lá að skoða eitthvað sem heitir Tropical-Islands, algjörlega ótrúlegt mannvirki hérna ekki langt frá okkur. Það má sjá meira um það ævintýri hérna við hliðina ef þú smellir á myndir. Við erum búin að keyra tæpa 400 km í dag, á hraðbrautinni og í litlum bæjarfélögum hér við hliðina. Ótrulega gaman og ótrúlega gleðjandi. Það er greinilega nóg að skoða.

Jæja, hætta að blaðra og fara setja saman síðasta af IKEA húsgögnunum.

22.2.08

Live for nothing, or die for something!

Eftirminnileg setning úr Rambo 4, en þvímiður ekki eins eftirminnilega og "Fuck'em" úr númer 3. Þessi mynd var að mínu mati helvíti góð skemmtun, sem er í raun það sem maður var að leita að. Fyrir þá sem halda að kvikmyndir eigi að snerta við manni á einhvern tilfinningalegan hátt geta bara sleppt því að fara á þessa. Þarna var margt sem fór gersamlega fyrir ofan garð og neðan í bæði klippingu og tölvugrafík, en samt sem áður er þessi mynd vel þess virði að fara sjá ef maður er á annaðborð hrifin af svona myndum. Eitt sem mér þótti þó skrýtið að sjá var að 61 árs gamall Stallone fór ekki úr að ofan í þetta skiptið, enda svosem allt í lagi þar sem nóg var af hasar til að bæta fyrir það. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þessa mynd, þar sem fólk vill eflaust sjá hana "ómengaða".