21.2.08

What do you say John?............Fuck 'em!!!

Án efa ein af svalari línum kvikmyndasögunnar, hún er mér sérstaklega minnistæð einhverra hluta vegna. Og fór ég að rifja þetta upp vegna þess að í kvöld er stefnan tekin á eina kvimyndhúsið í Berlín sem sýnir myndir á upprunalegu tungumáli. Þar er verið að fara sýna fjórðu Rambo myndina. Við ætlum að fjölmenna á hana, nokkrir strákar úr söngnum hérna. Svona rétt að gera sér glaðan dag.

Í gærkvöldi fór ég svo út að borða með Janet og vini bróður hennar, sem er læknir +i L.A og öðrum nemanda Janet sem heitir Aviv. Þetta var svaka fínt kvöld, byrjuðum á að fara í KaDeWe, sem ég var eiginlega búinn að gleyma hvað er rosalegt, maður þarf að fara oftar þangað til að versla sérvöru. Það er bókstaflega allt til þarna. Nú við settumst við Möet barinn og fengum okkur eitt glas af Vintage Rose kampavíni, og var það hverrar evru virði. Næst var svo haldið á .......................já getiði hvert? Shushi-Circle, þar sem var borðar vel rúmlega af sushi og dýrindis Chardonnay drukkið með. Að því loknu var svo haldið á gamaldags bar hérna sem heitir "Green Door", eftir að panorama lounginn í Mercedes byggingunni var lokaður fyrir einkasamkvæmi, hefði verið gaman að kíkja þangað í einn drykk. En það er svosem hægt að gera það seinna. Svo kom maður bara eldhress heim, alveg búinn í röddinni sem er talsvert veik fyrir, því það er auðvitað reykt hérna á öllum stöðum, og við hliðina á okkur sat einmitt talsvert ljótt hommapar sem keðjureykti. Ég er búinn að vera uppskera unaðssemdir þess að fara út að skemmta sér í dag.

Nú svo uppgötvaði ég nýjan stórmarkað, sem er styttra frá okkur en hinn stórmarkaðurinn sem við förum alltaf í, og hann er bara nokkuð flottur, og miklu fjölbreyttara vöruúrval en annarsstaðar sem við höfum skoðað.


Ég lýk þessu bloggi í dag á einni af svalari línunum kvikmyndasögunar.

20.2.08

Mikil gleði hér :)

Jæja, það hefur marg gerst á síðustu tveimur dögum, eiginlega allt...þannig séð.

Nú þar er kannski best að byrja á byrjuninni, en á mánudags eftirmiðdag fórum við frúin að versla okkur hjól. Leiðin lá sem áður sagði í verslun við Berliner Dom sem heitir "Big Johns Bikes", það voru fín hjól þarna en engin sem var stór og engin sem hét John...sem er svosem aukaatriði :) En það var 20% afsláttur á þeim hjólum sem ekki voru þegar með afslætti, og það var bara fínn díll. Ég keypti mér svakalega fínt Kalkhoff Voyager Fitness hjól, og er súper ánægður með það þó það sé einni stærð of stórt, þá líður það áfram eins og silkiþráður í mildri hafgolu. Fyrsta alvöru hjólið sem ég eignast um ævina og ég er bara nokkuð ánægður með að fara fitness leiðina í staðin fyrir sightseeing leiðina sem Frau Jonsdottir fór. Reyni að henda inn myndum af gæðingnum við fyrsta tækifæri.

Nú annað stóra málið sem leystist í vikunni er internettengingin. Routerinn kom á þriðjudaginn, og við komin í samband 10 mín síðar. Mikill hraði er hérna og ég er ekki frá því að það sé hraðvirkara að vinna héðan í fjarvinnu en heima á íslenska vinnustaðnum!! Alveg hreint ótrúlegt! Það litla sem ég er búinn að nota torrent hérna segir mér að ég sé að dl þar á bilinu 250-450 kB/s, sem er bara fínt. Routerinn virðist reyndar eiga eitthvað erfitt með það og gefst upp af og til, en líklega þarf ég bara að stilla þetta eitthvað aðeins til að fá þetta í balance.

Heilsufarið er ekki mjög gott til söngs þessa dagana, mér líður bara nokkuð vel, en röddin er frekar hás og viðkvæm. Janet sagði að ég ætti bara að hvíla mig og mæta frekar alveg heill heilsu, þýðir ekkert að vera ana af stað í eitthvað rugl. Ég er að gera það og er byrjaður aftur að reyna að hugleiða eins og ég gerði alltaf í gamladaga, þar sem ég nú alla daga heimavið. Eins ætla ég að fara í góða hjólatúra í hádeginu, og létt Yoga hérna í stofunni. Mataræðið er tekið nokkuð vel í gegn en þó ætla ég ekki að neita mér um allt, aðeins draga verulega úr því, og hef byrjað á bjórnum, hann verður ekki drukkin hérna daglega eins og áður, heldur hugsanlega aðeins til hátiðarbrigða, ef ég þarf að verðlauna mig með einhverju og eins ef gesti ber að garði, þá drekkur maður til samlætis eins og góðum gestgjafa sæmir.

Nú er ég að skoða flug til Parísar, til að komast í audition þar 15-16 mars nk, fann eitthvað um daginn á 89 Evrur fram og til baka, en það er nú komið í 120EUR, þannig að þetta fer hækkandi. Ég þarf helst að hafa hraðar hendur til að klára að útbúa umsóknina, og bóka flug. Ætla að reyna að klára þetta fyrir helgina og vonandi að senda þetta allt út líka.

Annars er ég að fara út í kvöld með Janet og fleirum, í KaDeWe þar sem á að fá sér kampavínsglas, og svo verður haldið út að borða, hvert? jahh, það veit ég ekki. Hendi því inn næst.

Bis Später

18.2.08

...neikvæðnin hættir hér og nú!

Fólk hefur áhyggjur af neikvæðni þeirri sem birtist hérna á þessu bloggi, en þetta er að einhverju leiti ýkt, þó vissulega séu vandamálin fyrir hendi. Ég tel að ég sé núna kominn á þann stað í geðinu að ég geti loksins farið að slaka aðeins á. Ég bíð þá bara eftir internetinu, það er ekki svo slæmt, svona er þetta bara :)

Nú helginni er lokið með tilheyrandi kulda, og hægt er að segja með sanni að ekki hefur verið svona kalt síðan við komum hingað þaðnn 7.janúar. En þetta er væntanlega bara svona eitthvað skammtíma rugl, sem leiðréttist fljótlega. Við hjónaleysin á Kurfürstenstrasse hentumst í Brunch hjá herra Hilmari Erni á laugardagsmorgun, en þetta er um 50 mín ferð með lestum frá heimili okkar. Fengum þar dýrindis brauð, egg, álegg og safa, bara svona hefðbundinn morgunverður og mjög góður. Nú að því loknu opnaði kallinn freyðivín með þeim orðum að svona lyki alltaf fínum morgunmatarboðum hér í Þýskalandi, ég veit svosem ekki með það, en mig rámar nú samt að ég hafi einhverstaðar heyrt það áður. Að loknum morgunverði var haldið í göngutúr um Penzlauer Berg, og í skransölu sem var líka með hjól, þar sem laugardagurinn átti jú að fara í það að versla hjól, svo maður geti nú farið að hreyfa sig eitthvað. Hjólin þar voru vægast sagt ljót og ekki heilbrigðu fólki bjóðandi, en það þykir víst fínt að vera á svona "antique" hjólum. Það var semsagt mjög fljótlegt að afgreiða þá búð, síðan var haldið að sjónvarpsturninum þar sem Hilmar var með einhver sambönd, en það er þýskur kínverji sem er með hjólaleigu, og hann er að selja hluta af hjólunum sínum á 100EUR, sem er svosem ekki mikið. En þetta eru 3 gíra viðbjóðir, sem eru mér ekki sæmandi og því var það fljótafgreitt líka. Við skelltum okkur svo bara á Starbucks, þar sem, í frostkuldanum, var pantaður karamellu frappuccino. Hilmar fékk aðsvif sökum kulda en þótti frappinn góður engu að síður. Síðast lá svo leiðin á "Big Johns Bikes" sem er bara rétt við Berliner Dom, þeir eru með notu hjól og ný, og allt á 20% afslætti þessa dagana, þvimiður var lokað hjá þeim þannig að við ætlum að reyna að fara í dag og gera einhver góð kaup.

Sunnudagurinn fór svo í göngutúr um svæðið umhverfis okkur, og það er ekki laust við að maður hlakki til að það fari að vora og sumra, þar sem umhverfið er gífurlega fallegt.

Ég er sjálfur greinilega að fara uppskera heilsubrest eftir allt ruglið hérna, þar sem maður er loksins farinn að slaka vel á, og líkaminn er að byrja að vinna úr því núna, með tilheyrandi veikindum, ég er sárþjáður í hálsinum með einhverskonar þurrkdæmi, og eins er ég með höfuðverk sem er þó ekki óþolandi eins og er. Ég vona bara að þetta taki fljótt af, þar sem styttist óðum í Frakkland. Líklegast þarf ég að aflýsa tímunum mínum í þessari viku, þar sem ég bara get ekki sungið í þessu ástandi, slím á raddböndum og þurr háls, er bara ekki málið þvímiður. En ég er duglegur að taka vítamínin mín og er hættur í áfenginu í bili, til að flýta fyrir bata. :)

15.2.08

hætt að vera fyndið hvað?!?!?

Nú er þetta orðið aftur fyndið!!

Ég fékk þráðlausa routerinn í dag, og þegar ég opnaið hann, þá sé ég að ekki var neitt tengi fyrir asnalegu símatengin sem eru hérna í Þýskalandi. Ég fer þá af stað í hálftíma ferð til að spyrjast fyrir um þetta í Vodafone búiðinni sem ég hef alltaf farið í og það voru þeir sem sögðu mér að skila módeminu sem ég fékk fyrst og þeir ætluðu svo að panta nýtt fyrir mig. Nú þetta nýja kom, og ég fór og spurði hvernig á þessu stæði eiginlega, afhverju fylgja ekki neinar snúrur? Þá vissu þeir ekki neitt og bentu mér á Vodafone búð sem er neðar á Tempelhofer Damm, sem er reyndar nær mér, þannig að ég fór þangað, og þar voru tvær stelpur að vinna, ekki tveir miðaldra karlar eins og í hinni búðinni, þannig að ég gæti hugsanlega notað minn óendanlega kynþokka til að koma mér eitthvað áfram í þessu máli. Nú þegar þangað kom, var það nánast sama sagan, nema hvað að þær sögðust geta reddað þessu stykki sem uppá vantaði ef ég vissi viðskiptamanna númerið mitt, sem ég andskotann vissi ekki!!!!!! Og hérna var ég orðin svo bálreiður að mér sortnaði fyrir augum, ég fór því heim sem er um 20 mín ferðalag fram og til baka, að mestu fótgangandi, og náði í allar upplýsingar sem mér datt í hug að þau myndu vilja. Þegar ég kom svo til baka í búðina var komin einhver ný stelpa, sem virtist leiðinleg, en sem betur ber blekkja "first impressions" oft. Hún var bara fín, og hringdi í þjónustuverið fyrir mig og spurði um allan andskotann, og komst svo að því að mér hefði verið sendur rangur þráðlaus router, þar sem ekkert símatengi var á honum og hvergi hægt að tengja heimasíma!!!! Ég þarf því að gjörasvovel að fara með þann router á póstuhúsið og endursenda hann, á meðan ætlar Vodafone að senda mér nýja og vonandi rétta routerinn. Ég spurði hvort ég gæti ekki bara farið og sótt þetta sjáldur og flýtt soldið fyrir þessu, en svarið var auðvitað "nei", þá bauðst ég hreinlega til að borga fyrir hraðsendingu með DHL eða UPS, og svarið var "nei það er ekki hægt"!!! Ég verð því bara að gjörasvovel og bíða eftir þessum helvítis routers andskota, þangað til þriðjudag/fimmtudag í næstu viku.

Þetta er ekki gaman eða skemmtilegt að standa í þessu endalausa rugli, en svona er þetta bara.

Það skal kannski tekið fram að ég steytti skapi mínu alls ekki á starfsfólki verslanna, þar sem þau voru vissulega liðleg, en svona er bara kerfið hérna og það er ekkert sem þau geta gert í því.

Ég fór svo út með afsökunar beiðni frá þeim stelpum, og mér tjáð að ég myndi eflaust fá þetta bætt á einhvern hátt frá Vodafone........ég á nú eftir að sjá það gerast.

Ég fór svo seinni partinn í dag og hitti hann Hilmar Örn, organista sem býr nú hérna í Berlín eftir að hafa verið hrakin úr starfi sínu í Skálholti með stanslausu einelti ráðamanna þar á staðnum. Það var bara nokkuð gott hljóð í kallinum og hann er búinn að bjóða okkur Soffíu í brunch á morgun.

Meira síðar af hrakförum í Berlín.

14.2.08

.......og koma svo!!!!!!

Jæja, þetta er hætti að vera fyndið fyrir svona 2-3 vikum. Nú er símakallinn búinn að koma, og ég er í raun kominn með tengingu.......eða svo heldur maður allavega. Þar sem ég er ekki enn búinn að fá rétta routerinn. Hann á sko að koma með póstinum í þessari viku, þá kemur fyrst í ljós hvort þetta virkar eða ekki. Ég er ekki viss um að ég nenni að taka þann slag ef þetta er ekki í lagi, en ég ætla bara að treysta því að það sé svo.

Mér finnst ég bara verða þreyttari og þreyttari með hverjum deginum sem líður, þetta er svona eins og að klífa fjall og sjá alltaf nýja hæð eftir eftir nýja hæð. Mig langar að fara prófa að klífa eitthvað annað fjall til tilbreytingar, og þetta módem er síðasta hæðin, og það skal andskotann koma á morgun!!!!

Annars er það að frétta héðan að það er orðið talsvert kaldara en á síðustu dögum, og jefnvel svolítið rigningalegt. Það er svosem allt í lagi, ekki drepst maður af smá vætu :)

Nú ekki bætir úr skák að ekki hefur verið að ganga allt of vel í söngtímum, er alltof stífur og byrjaður að frosera allt of mikið aftur, ég tel að það megi rekja þetta allt saman til ofsaþreytu sem ég þjáist nú af vegna álagsins við að koma öllu heim og saman. Ég merki það meðal annars í því að ég steinsofna nánast strax og ég leggst á koddann, það hef ég t.d aldrei gert!

Ég fann í dag upptöku úr fyrsta tímann sem ég fór í hjá David Jones í London 26.apríl 2003, ekki hægt að segja annað en ég heyri smá mun :) Það er vissulega gaman að heyra árangur, og þannig er það nú víst bara að læra að syngja tekur tíma, þrotlausar æfingar, staðfestu og sterkan vilja. Kannski hendi ég einhverju hérna inn þegar netið verðu komið í gagnið.

Nú við fórum út að borða á Sushi-Circle í tilefni afmælis míns á þriðjudaginn, það er víst "all-you-can-eat" alla daga frá kl 17 til lokunnar, á þessum stað, og það var því tekið hraustlega á því. Ágætis sushi, en jafnast ekki á við fína staðinn á Amsterdam Ave, í NY. Fínn afmælisdagur og ágætis endir án honum.

Biðst afsökunar á frekar neikvæðu bloggi þetta skiptið, en einhverstaðar verð ég að setja þetta, þýðir ekkert að byrgja þetta inni.

12.2.08

Afmælisdagurinn mikli!

Þá er rúmt ár liðið frá afmælistónleikum sem ég hélt í Aratungu. Það er ekki laust við að maður líti til baka og minnist þess tíma með stolti. Þetta var eitt mesta stórvirki sem ég hef unnið, og komst klakklaust í gegnum það með hjálp fjölskyldu og góðra vina.

Ég velti því fyrir mér á þessum tímamótum hvað það sé eiginlega sem manni er ætlað í þessum heimi? Er ég einhver stórsöngvari? er þetta kannski bara hækja til að draga mann í fjölbreyttni og upplifanir á lífinu? Ekki veit ég það, en það sem ég veit er að ég ætla að halda áfram að gera það sem mér þykir skemmtilegt að gera, þannig virðist mér ganga best. Þá gerist alltsaman einhvernvegin án þess að maður þurfi að hugsa, sem er alveg frábært.

Mér finnst lífið hérna í Berlín bara mjög fínt, og þó maður sé ennþá í einhverskonar "standstill" þessa stundina, þá hef ég á tilfinningunni að þetta eigi allt eftir að ganga upp, þrátt fyrir að ljóta Evran sé orðin allt of óhagstæð, vona nú bara að íslenska efnahagslífið fari nú aðeins að lifna við.

Nú ég vaknaði í morgun aðeins seinna en vanalega, og fékk þá flottan fatapakka frá Soffíu minni, allt eitthvað sem mig vantaði, sem fyrr :) Nú ég er svo bara að vinna í dag, og hendist í bloggskrif í hádegihléinu mínu, svo er það tvöfaldur söngími með Janet, og þvínæst út að borða í kvöld á Potsdammer Platz eða við Kurfürstendamm. Það á að reyna við sushi í kvöld, á stað sem heitir Sushi-Circle, en þar er hægt að komast í svona "all-you-can-eat" pakka milli held ég 17 og 19, en þá er nú ekki víst að við náum því, þar sem eg er í tíma til kl 19. En hverjum er svosem ekki sama, við eigum skítnóg af peningum eins og ég er alltaf að segja.

Sönglega ganga hlutirnir vel, ég er að byrja að læra "blóma aríuna" úr Carmen fyrir franska auditionið, og það er heilmikill texti sem þarf að setja inn í hausinn á sér. (Hérna fyrir neðan má svo sjá franska montrassgatið Roberto Alagna syngja þessa aríu rétt á pari)

Búið er að panta stóran 7 manna bíl undir Kvistholts unitið sem er að koma hérna í lok mánaðar, og ekki ofsögum sagt að ég kvíði örlítið fyrir að keyra hérna, þó þetta sé talin ein af umferðarvænustu borgum í Evrópu. Ég er þó að hugsa alvarlega um að leigja mér einn lítinn bíl til að sportast hérna um, næstu eða þarnæstu helgi, bara svona til að vera undirbúinn :)

Allavega njótið vel, og þangað til næst.......djísus kræst.

10.2.08

......og thad er ekki mikid eftir.

Jaeja, helgin er nu buin ad vera ansi fin og skemmtileg. Vedrid herna er bara buid ad vera guddomlegt, svo ekki se meira sagt. Logn og sol og 11 stiga hiti a laugardaginn. Vid eyddum tho slatta af deginum i IKEA sem fyrr, og tokst i thetta skiptid ad eyda um 45.thus ISK. Thad er erfitt ad atta sig a thvi umfangi af smadrasli sem madur er ad kaupa!!

Nu sjonvarpid mitt kom a fostudaginn, og thad er ad standast allar vaentingar og gott betur en thad. Thad versta vid thad er ad nu tharf eg ad fara fjarfesta i BlueRay eda HD-DVD spilara, til ad nyta thetta i botn, og thad er svona 30 thus i vidbot, plus diskarnir sem manni langar kannski i. Nu svo vaeri rad ad fa ser kannski XBOX, thar sem thad nytir svona FullHD daemi, uff nenni nu varla ad paela i thessu nuna :) Helgin for i thad ad setja hurdir a fataskapa, hengja upp ljos, skrufa saman kommodu a badid, hengja upp myrkvunar gluggatjöld i hjona og gesta herbergin, taka till alla helvitis kassana og ganga fra eftir sig. Thetta var enn ein busy helgin, en thad er ekki liklegt ad thaer verdi fleiri i brad, allavega ekki svona gedveikislegar.

Thad var bankad hja okkur i dag um half 3 og einhver retard, ad skammast yfir latunum i okkur, thar sem eg var ad bora osfrv. Thad er svo eitthvad herna sem heitir Ruhigzeit, eda eitthvad svipad rugl. Og tha a ad vera hljod milli 13 og 15 eda 16!!!! Vid vorum ad passa okkur ad byrja ekki fyrr en kl 13 til ad folk gaeti sofid i fridi!! Eg hata thetta thyska mentalitet.

Nu sidasta og vonandi SIDASTA ruglid sem eg er ad lenda i herna er netsambandid. Fekk pakka um daginn, fra Vodafone, thar sem eg fekk sendan routerinn fyrir netid.......og viti menn hann var ekki med thradlausum sendi eins og eg bad serstaklega um!!! OK, eg rölti bara med hann ansi langa vegalengd, i naestu Vodafone verslun, til ad ad skipta og fa nyjan og haldid thid ad thad hafi gengid upp??????? O NEI!!!, ekki thad ad thad aetti ad koma mer mikid a ovart i ruglinu sem vidgengst herna. SKO thad sem eg tharf ad gera er ad pakka öllu inn aftur og senda til baka til Vodafone. Svo tharf eg ad fara i naestu Vodafone bud og bidja um ad fa sendan nyjan router med WiFi. Afhverju get eg ekki bara farid med routerinn og skipt honum? Hvad er eiginlega ad morkna i hausnum a thessum thjodverjum.

Annars er bara allt tilbuid hja okkur til ad taka a moti gestum, vantar enntha svona hitt og thetta en vid erum i godum malum. Erum tvivegis buin ad elda dyrindis maltidir herna. Krydd og annad slikt her er af skornum skammti, en ekki vegna thess ad vid keyptum ekkert, heldur vegna thess ad thyskarinn er ekki med neitt urval!

Jaeja, naesta blogg verdur afmaelisblogg! Thangad til tha, Tschüss