12.2.08

Afmælisdagurinn mikli!

Þá er rúmt ár liðið frá afmælistónleikum sem ég hélt í Aratungu. Það er ekki laust við að maður líti til baka og minnist þess tíma með stolti. Þetta var eitt mesta stórvirki sem ég hef unnið, og komst klakklaust í gegnum það með hjálp fjölskyldu og góðra vina.

Ég velti því fyrir mér á þessum tímamótum hvað það sé eiginlega sem manni er ætlað í þessum heimi? Er ég einhver stórsöngvari? er þetta kannski bara hækja til að draga mann í fjölbreyttni og upplifanir á lífinu? Ekki veit ég það, en það sem ég veit er að ég ætla að halda áfram að gera það sem mér þykir skemmtilegt að gera, þannig virðist mér ganga best. Þá gerist alltsaman einhvernvegin án þess að maður þurfi að hugsa, sem er alveg frábært.

Mér finnst lífið hérna í Berlín bara mjög fínt, og þó maður sé ennþá í einhverskonar "standstill" þessa stundina, þá hef ég á tilfinningunni að þetta eigi allt eftir að ganga upp, þrátt fyrir að ljóta Evran sé orðin allt of óhagstæð, vona nú bara að íslenska efnahagslífið fari nú aðeins að lifna við.

Nú ég vaknaði í morgun aðeins seinna en vanalega, og fékk þá flottan fatapakka frá Soffíu minni, allt eitthvað sem mig vantaði, sem fyrr :) Nú ég er svo bara að vinna í dag, og hendist í bloggskrif í hádegihléinu mínu, svo er það tvöfaldur söngími með Janet, og þvínæst út að borða í kvöld á Potsdammer Platz eða við Kurfürstendamm. Það á að reyna við sushi í kvöld, á stað sem heitir Sushi-Circle, en þar er hægt að komast í svona "all-you-can-eat" pakka milli held ég 17 og 19, en þá er nú ekki víst að við náum því, þar sem eg er í tíma til kl 19. En hverjum er svosem ekki sama, við eigum skítnóg af peningum eins og ég er alltaf að segja.

Sönglega ganga hlutirnir vel, ég er að byrja að læra "blóma aríuna" úr Carmen fyrir franska auditionið, og það er heilmikill texti sem þarf að setja inn í hausinn á sér. (Hérna fyrir neðan má svo sjá franska montrassgatið Roberto Alagna syngja þessa aríu rétt á pari)

Búið er að panta stóran 7 manna bíl undir Kvistholts unitið sem er að koma hérna í lok mánaðar, og ekki ofsögum sagt að ég kvíði örlítið fyrir að keyra hérna, þó þetta sé talin ein af umferðarvænustu borgum í Evrópu. Ég er þó að hugsa alvarlega um að leigja mér einn lítinn bíl til að sportast hérna um, næstu eða þarnæstu helgi, bara svona til að vera undirbúinn :)

Allavega njótið vel, og þangað til næst.......djísus kræst.

5 ummæli:

  1. Til hamingju með daginn!

    SvaraEyða
  2. Til hamingju med afmælid, frændi.

    Bkv.
    Ása og fjölsk.

    SvaraEyða
  3. Það er nú einhvernveginn þannig að þegar allt virðist vera ömurlegt er stutt í að allt leysist. Ekki það að allt sé ömurlegt eins og staðan er í dag (allavega ekki með nýja sjónvarpið). Vonandi var afmælis sushi-ið gott

    SvaraEyða
  4. til hammó með ammó í gær!!!

    gleymdi ekk að þú ættir afmæli - gleymdi bara að kommenta ...

    þú nærð alltaf að taka fram úr Matta - sama hvað hann reynir að ná þér ...ótrúlegt alveg hreint

    kveðjur frá klakanum

    SvaraEyða
  5. Innilega til hamingju með afmælið Egill minn! mikið er gaman að fylgjast með ykku þarna úti, hafið það frábært áfram.Bestu kveðjur.
    Þín frænka Sigrún.

    SvaraEyða