21.2.08

What do you say John?............Fuck 'em!!!

Án efa ein af svalari línum kvikmyndasögunnar, hún er mér sérstaklega minnistæð einhverra hluta vegna. Og fór ég að rifja þetta upp vegna þess að í kvöld er stefnan tekin á eina kvimyndhúsið í Berlín sem sýnir myndir á upprunalegu tungumáli. Þar er verið að fara sýna fjórðu Rambo myndina. Við ætlum að fjölmenna á hana, nokkrir strákar úr söngnum hérna. Svona rétt að gera sér glaðan dag.

Í gærkvöldi fór ég svo út að borða með Janet og vini bróður hennar, sem er læknir +i L.A og öðrum nemanda Janet sem heitir Aviv. Þetta var svaka fínt kvöld, byrjuðum á að fara í KaDeWe, sem ég var eiginlega búinn að gleyma hvað er rosalegt, maður þarf að fara oftar þangað til að versla sérvöru. Það er bókstaflega allt til þarna. Nú við settumst við Möet barinn og fengum okkur eitt glas af Vintage Rose kampavíni, og var það hverrar evru virði. Næst var svo haldið á .......................já getiði hvert? Shushi-Circle, þar sem var borðar vel rúmlega af sushi og dýrindis Chardonnay drukkið með. Að því loknu var svo haldið á gamaldags bar hérna sem heitir "Green Door", eftir að panorama lounginn í Mercedes byggingunni var lokaður fyrir einkasamkvæmi, hefði verið gaman að kíkja þangað í einn drykk. En það er svosem hægt að gera það seinna. Svo kom maður bara eldhress heim, alveg búinn í röddinni sem er talsvert veik fyrir, því það er auðvitað reykt hérna á öllum stöðum, og við hliðina á okkur sat einmitt talsvert ljótt hommapar sem keðjureykti. Ég er búinn að vera uppskera unaðssemdir þess að fara út að skemmta sér í dag.

Nú svo uppgötvaði ég nýjan stórmarkað, sem er styttra frá okkur en hinn stórmarkaðurinn sem við förum alltaf í, og hann er bara nokkuð flottur, og miklu fjölbreyttara vöruúrval en annarsstaðar sem við höfum skoðað.


Ég lýk þessu bloggi í dag á einni af svalari línunum kvikmyndasögunar.

3 ummæli:

  1. hahaha snilldin ein!

    ótrúlega sléttur eitthvað í framan samt, hvað ætli sé mikið af eitri í fési hans eiginlega?

    SvaraEyða
  2. HAHAHAHAHAHAHA. Þetta þótti manni í besta falli hæpið þegar maður var yngri. Þetta er bara fáránlegt í dag.

    SvaraEyða
  3. Hann er vægast sagt eftirminnilegur leikari.
    Bíð í ofvæni eftir nýju Rambó-myndinni...

    SvaraEyða