15.2.08

hætt að vera fyndið hvað?!?!?

Nú er þetta orðið aftur fyndið!!

Ég fékk þráðlausa routerinn í dag, og þegar ég opnaið hann, þá sé ég að ekki var neitt tengi fyrir asnalegu símatengin sem eru hérna í Þýskalandi. Ég fer þá af stað í hálftíma ferð til að spyrjast fyrir um þetta í Vodafone búiðinni sem ég hef alltaf farið í og það voru þeir sem sögðu mér að skila módeminu sem ég fékk fyrst og þeir ætluðu svo að panta nýtt fyrir mig. Nú þetta nýja kom, og ég fór og spurði hvernig á þessu stæði eiginlega, afhverju fylgja ekki neinar snúrur? Þá vissu þeir ekki neitt og bentu mér á Vodafone búð sem er neðar á Tempelhofer Damm, sem er reyndar nær mér, þannig að ég fór þangað, og þar voru tvær stelpur að vinna, ekki tveir miðaldra karlar eins og í hinni búðinni, þannig að ég gæti hugsanlega notað minn óendanlega kynþokka til að koma mér eitthvað áfram í þessu máli. Nú þegar þangað kom, var það nánast sama sagan, nema hvað að þær sögðust geta reddað þessu stykki sem uppá vantaði ef ég vissi viðskiptamanna númerið mitt, sem ég andskotann vissi ekki!!!!!! Og hérna var ég orðin svo bálreiður að mér sortnaði fyrir augum, ég fór því heim sem er um 20 mín ferðalag fram og til baka, að mestu fótgangandi, og náði í allar upplýsingar sem mér datt í hug að þau myndu vilja. Þegar ég kom svo til baka í búðina var komin einhver ný stelpa, sem virtist leiðinleg, en sem betur ber blekkja "first impressions" oft. Hún var bara fín, og hringdi í þjónustuverið fyrir mig og spurði um allan andskotann, og komst svo að því að mér hefði verið sendur rangur þráðlaus router, þar sem ekkert símatengi var á honum og hvergi hægt að tengja heimasíma!!!! Ég þarf því að gjörasvovel að fara með þann router á póstuhúsið og endursenda hann, á meðan ætlar Vodafone að senda mér nýja og vonandi rétta routerinn. Ég spurði hvort ég gæti ekki bara farið og sótt þetta sjáldur og flýtt soldið fyrir þessu, en svarið var auðvitað "nei", þá bauðst ég hreinlega til að borga fyrir hraðsendingu með DHL eða UPS, og svarið var "nei það er ekki hægt"!!! Ég verð því bara að gjörasvovel og bíða eftir þessum helvítis routers andskota, þangað til þriðjudag/fimmtudag í næstu viku.

Þetta er ekki gaman eða skemmtilegt að standa í þessu endalausa rugli, en svona er þetta bara.

Það skal kannski tekið fram að ég steytti skapi mínu alls ekki á starfsfólki verslanna, þar sem þau voru vissulega liðleg, en svona er bara kerfið hérna og það er ekkert sem þau geta gert í því.

Ég fór svo út með afsökunar beiðni frá þeim stelpum, og mér tjáð að ég myndi eflaust fá þetta bætt á einhvern hátt frá Vodafone........ég á nú eftir að sjá það gerast.

Ég fór svo seinni partinn í dag og hitti hann Hilmar Örn, organista sem býr nú hérna í Berlín eftir að hafa verið hrakin úr starfi sínu í Skálholti með stanslausu einelti ráðamanna þar á staðnum. Það var bara nokkuð gott hljóð í kallinum og hann er búinn að bjóða okkur Soffíu í brunch á morgun.

Meira síðar af hrakförum í Berlín.

2 ummæli:

  1. Úff, skil þig mjög vel. Hringdi einmitt í fyrradag í internetfyrirtækið okkar, Alice, talaði við fjórar manneskjur, alltaf vísað á nýja og kemur í ljós að öllu infoi um okkur hér hafði verið eytt og ég þarf að senda til baka routerinn sem við fengum (en var aldrei búið að tengja því við gátum ekki verið heima þann daginn sem tæknimanni þóknaðist að koma - á milli 8 og 5) bara til að það sé hægt að senda okkur hann aftur... Og já, þetta tekur 2-4 vikur... Þýskaland ha!

    SvaraEyða
  2. Ég vona svo sannarlega að þið getið hlegið að þessu, en þjónustulundin er nú bara alveg í mínus hjá þessu liði!

    SvaraEyða