8.2.08

Dagurinn í dag er dagurinn á morgun! Búslóðin er komin :)

Don't work yourself into a tizzy, for your current deadlines are probably more flexible than you realize. Before getting totally bent out of shape, talk to the others involved and see what it will take to postpone final delivery and remove some of the pressure.
-
Ég setti þetta brot úr stjörnuspánni inn hérna á undan því ég tók ákvörðun í gær, sú ákvörðun snýr að áheyrnarprufunni sem er í dag. Ég ákvað í gær í samráði við Janet, að ég myndi ekki taka þátt í þessu að svo stöddu. Ég hefði getað mætt og ruddast í gegnum þetta, og verið skít óánægður en samt sungið ágætlega. EN, ég hef bara, að undangengnum síðustu vikum, hvorki orku né nennu í að bæta þessu við. Þið mynduð eflaust segja að ég sé aumingi og hræddur við þetta, en við þau ykkar segji ég bara, þið vitið ekki hvað þið eruð að tala um. Ég er ánægður með þessa ákvörðun en finnst samt eins og ég þurfi að réttlæta hana með útskýringum til ykkar sem lesið þetta blogg mitt, svona er það nú bara.

Annars er önnur audition í París um miðjan Mars, og ég er að sækja um að komast í það, það er að flestu leiti áhugaverðara en það sem ég er var að sækja um hérna. Þetta er það sem kallast Workshop, og það þýðir að þeir sem komast að (8 talsins) vinna með píanóleikurum og söngkennurum og leikstjórum, í 10 daga samfleytt og svo endar það alltsaman á tónleikum. Það þýðir að ég get hugsanlega sungið meira af tónlist sem er fyrir mína rödd, og það er gott. Nú svo skemmir ekki fyrir að David Jones, verður á sama tíma í París, þó það sé í raun allt uppbókað hjá honum, þá verður gaman að hitta hann.

Nú af Berlín er það að frétta að hér er fínasta veður þessa daganna, íbúðin að verða svo gott sem tilbúin, BÚSLÓÐIN kom í gær, loksins, og þetta var alls ekki eins mikið og mig minnti. OG með aðstoð góðs manns, kláraðist að bera þetta inn á tæpum 20 mínútum. Ég og Soffía hentum svo upp skrifstofunni minni og svefnsófanum í gærkvöldi, og það lítur bara helvíti vel út, og það var merkilega auðvelt að endursetja saman IKEA draslið, það bjargaði þó skrifborðinu að ég var svo gáfaður að taka nokkrar myndir af því þear ég var að rífa það í sundur....annars ekki líklegt að við hefðum komið því saman :)

Sjónvarpið kemur svo í dag, og ég hlakka til. Ég hlakka til að fara heim í dag, og slaka alveg á um helgina, líklega verður þú skroppið til helvítis(IKEA) og til baka en svona er það bara, ég er á síðustu dropunum og vona nú að ég hafi geðheilsu til að halda upp á afmælið mitt þann 12.feb.
Hér til hliðar eru komnar nýjar myndir, meira síðar.

7.2.08

Búslóð ekki komin!!!!

Helvítis bjánarnir komu kl 13 í gær og auðvitað var engin heima, þannig að þeir skildu bara eftir miða með símanúmeri, en Soffía greyið tók sér frí úr skólanum til að vera komin heim kl 15, þar sem búið var að segja okkur að þetta myndi koma milli 15 og 17. En ekki kom þetta. Ég hringdi náttla alveg snar í Samskip og skammaðist, og þeir fullyrða að við fáum þetta í dag kl 14 og það er líka einsgott fyrir þessi fífl.

Maðu er alveg að verða búinn að fá sig fullsaddann á þessu rugli hérna. Ég er með öll einkenni stress álags þessa dagana og það er ekki gaman. En það er líka að vissuleiti mér að kenna, þar sem ég ætti bara að geta slakað á......þetta kemur allt. En þannig er það bara ekki.

Áheyrnarprufa á morgun, og svo vona ég nú að allt fari að róast. Það eina sem verður þó vandamál við að vinna heima, þegar netið kemur, er að maður fer lítið út á meðal fólks og verður algjör innipúki. Ég vona að maður nái bara að yfirstíga það einhvernveginn.

Sjónvarpið mitt á að koma á morgun skv einhverjum tölvupósti sem ég fékk áðan. Verst að tímarammin er um 12 tímar!!! Ef ég fer að tapa geðheilsunni hérna, ekki láta ykkur bregða.

6.2.08

Búslóð? Sjónvarp? Geðveiki?

Það var rigningarlegt um að litast hérna í Berlín í morgun, og er enn. Ég held fast í þá von að búslóðin komi loksins í dag, og skv öllu ætti sjónvarpið mitt að koma líka í dag. Í gærkvöldi kom svo ísskápurinn og þvottavélin, ég borgaði 30 EUR fyrir að láta senda þetta heim, bera þetta upp stigann og tengja fyrir mig, það er nokkuð góður díll miðað við það sem fávitarnir í IKEA rukka! Nú það kom upp úr dúrnum þegar ísskápurinn var kominn í hús, ísskápur sem ég vildi helst ekki kaupa, smellpassaði þar sem hann átti að vera, og rúmlega það. Einhverrahlutavegna, hafði Soffía mælt rými sem er 60,2 cm á breidd, sem 55 cm. Og vandamálið var það að það voru bara 3 ísskápar í boði sem pössuðu í 55 cm, og við þurfum að taka einn af þeim. Við erum nú með SIEMENS ísskáp sem er um 1.70, og helmingurinn af því er frystihólf. Þetta hlítur að reddast, jákvætt við þetta er að hægt er að kæla meira af bjór í einu, og það hratt og örugglega :) En þetta virðist bara vera fínt.

Nú skápahurðirnar á fínu fataskápana sem við keyptum í IKEA koma án alls, engar festingar og ekki neitt!!! Sem þýðir að við þurfum að fara enn eina ferðina þangað til að versla, ég er satt best að segja búinn að fá mig skítsaddan af þeirri ágætu verslun. Nú önnur gleðitíðindi eru þau að ekki er búið að merkja fyrir eða bora göt fyrir höldurnar, þannig að það verður skrautlegur andskoti að fá það til að vera beint og fínt. En svona er þetta bara.

Audition er á föstudaginn kemur klukkan 14 í Deutsche Oper, ég er eins vel undirbúinn og ég get verið og hlakka til að prufa þetta. Svo er ég að skrá mig í Audition í París 15-16 mars nk, þannig að það verður nóg að gera hjá mér næstu daga. Ég er reyndar ekki búinn að skrá mig, en mun taka ákvörðun um það um eða fyrir helgi.

Svo fékk ég þær fréttir að parental units ásamt sibling units 3 og 4 ætli að koma í heimsókn til okkar þann 27.feb, og þá verður kátt í höllinni. Ætli maður reyni ekki að fara fá sér bílaleigubíl til að læra að keyra hérna með fína GPS tækinu :)

4.2.08

Búslóðin kemur ekki í dag!!!!!!!!!

Helv Samskip....

Frost og búslóðin kemur í dag

Þá er maður aftur kominn í almennilegt internet, að þessu sinni í Parkstrasse 3.

Erfið helgi er nú að baki, en það er mjög ánægjulegt að geta litið til baka og séð hverju maður er búinn að áorka. Búið er að taka allt IKEA draslið og setja það saman, ásamt því að setja upp gardínur og fleira rugl. Við Soffía vorum að frá 11 um morguninn til 20 um kvöldið, og loksins lítur þetta út eins og íbúð. Búslóðin á að koma í dag og mér líður eins og þegar ég var yngri og var að bíða eftir að fá að opna pakkana á aðfangadag.....ekki laust við að maður hlakki til. Ég er reyndar allur lurkum laminn eftir "skrúf" gærdagsins......ef ég ætti að segja eitt orð núna án þess að hugsa, um IKEA, þá væri það "skrúf". Harðsperrurnar valda því að ég er ekki alveg farinn að hlakka til að fá búslóðina. Nú svo eigum við von á þvottavél og ísskáp á morgun og fína sjónvarpið mitt á að koma á miðvikudag, þannig að þá loksins verðum við orðin að heimili :)

Fyrsti skóladagur Soffíu er í dag, en ekki er líklegt að hún fari, þar sem hún þjáist af einhverjum kviðverkjum sem gera henni erfitt að standa upprétt. Vonum bara að það lagist sem fyrst.

Af íbúðinni er það að frétta að í gær var sól, og ekki nær hún að skína á fínu veröndina okkar.......!!!!! Þó vona ég að staða stólar breytist eilítið við að sigla inn í sumarið. Annars verðum við bara að grenja úr okkur augun yfir því að vera ekki með kvöldsól. Þó held ég innst í hjarta mínu að maður eigi bara eftir að vera þakklátur fyrir það að vera ekki með endalausa sól allan daginn.

Það eru svo komin flott vídeó af Kurfusten str hér til hliðar.

2.2.08

Internetkaffi a Marienddorfer Damm

Tha er madur kominn i netsamband eftir sma fjarveru. Vid erum buin ad flytja ut af Hotel Berlin og komin i ibudina okkar Kurfüstenstr 75 (fyrir thau ykkar sem haldid ad thad se rosa snidugt ad kikja bara i heimsokn "unannounced", er snidugt ad vita ad thad tharf ad segja vid leigubilsstjorana ad thetta se Kurfustenstrasse i Tempelhof/Mariendorf) Thad eru nefnilega tvaer götur sem heita thessu nafni :) Og vid erum a theirri sem er minna thekkt.

Sidustu tveir dagar hafa verid erfidir a gedid, en madur er enntha lifandi. IKEA gedveiki #2 for fram i gaer, og tha var keypt bordstofubord, sem er mjog fallegt og odyrt.....god kaup held eg. Thad er dyrt ad lata send heim herna, en their bera allt fyrir mann i stadinn, sem er voda gott, vinnuthjarkurinn i mer kom tho upp og eg hjalpadi til :) Eftir daginn i dag erum vid komin med allt sem vid thurfum/langar i (nema sjonvarp), koma myndir af thessu a morgun. Setjum eitthvad saman i kvöld og liklega verdur thetta allt myndad i bak og fyrir... :) Eg hef ekki tholinmaedi til ad tja mig um thonustulund thjodverja, hun er allavega ekki god, svona heilt a litid. En madur getur nu sjalfum ser um kennt, ekki litid er madur buinn ad kvarta yfir helvitis utlendingunum a islandi sem nenna ekki ad laera tungumaldi, en samt......... ad geta bara bjargad ser a einu tungumali er soldid slappt, og thar er thjodverjanum vel lyst. Nenni ekki ad paela i thessu meir.

Thratt fyrir verkfall hluta lestastjornenda her i Berlin i gaer og i dag, komst eg samt i söngtima (med leigara), thar nadi eg loksins otrulegum skilningu a hugtaki sem hefur verid mer erfitt i gegnum tidina, "tilting of the larynx", thad small loks i dag og fyrir mer er thetta ekki beint tilting, heldur meira eins og "forcefully rotating" :) Vid verdum vist öll ad finna okkar leid. I hoptimanum i gaer, var folk aenagt med mig tho eg hefdi ekki verid buinn ad hita upp, og thad er jakvaett ad vissu leiti, en eg var nattla ekki anaegdur med thetta, thar sem eg get miklu betur.

Von er a skemmtilegum myndum og video innan skamms og vona ad thid litid vid sem oftast. Thad er gott ad vita ad einhver fylgist med.

1.2.08

1.febrúar......við flytjum inn!!

Þá er komið að endalokum tæplega 4 vikna tímabils óvissu, flutninga, geðveiki og labbs. Við fórum í IKEA í gær eftir vinnu hjá mér og völdum hina ýmsu skrautmuni til að fylla nýju íbúðina okkar. Við spöruðum í hvívetna...til að hafa efni á sjónvarpinu :) En það fóru næstum 4 tímar í einhverja IKEA geðveiki sem ég nenni ekki að rifja upp. Það endaði allavega þannig að þegar við fórum þaðan, þá var maður ekki alveg viss um hvað myndi gerast næst. En það er nú komið í ljós, og við eigum von á dótinu frá þeim milli 9:45 og 11:45 í dag. Hefði verið betra á öðrum tíma og eflaust hefði ég getað breytt þessu, en ég hafði hvorki tíma né þolinmæði til að standa í því, nógu erfitt var að fara í gegnum sendingaferlið. Nú svo er búslóðin væntanleg eftir kl 14 á mánudag, þannig að það fer nú að styttast ískyggilega í þetta allt saman. Internettengingin er þó það sem skiptir mestu máli og þeir sögðu bara lágmark 2.vikna bið, nema ég væri sérstaklega heppinn. Og í millitíðinni er Janet búin að vera svo elskuleg að leyfa mér að nota aðstöðuna hjá sér þangaðtil.....sem er auðvitað æðislecht.

Þegar við fengum lyklanna að íbúðinni, fékk ég hálfgert sjokk, sem maður mátti nú ekki við! En ég hafði sterklega á tilfinningunni eins og við værum að flytja til helvítis, þar sem allt í einu fannst mér þetta ekki vera eins spennandi og í minningunni. Íbúðin er þó stór og mjög björt. Í ljós kom að við eigum bara um 6 fermetra af flottu stóru veröndinni sem er þarna, og þurfum að deila henni með 2 öðrum íbúðum. Þannig að ekki er nú líklegt að maður verði mikið þar í kvöldsólinni, eins og búið var að gera ráð fyrir og var einn stærsti sölupunkturinn við þessa íbúð, eiginlega eini sölupunkturinn í mínum huga. Nú svo er þarna "þýskt" klósett, sem ég hata meira en allt það leiðinlega í íbúðinn samanlagt. Hvaða útúrdópaði sturlaði einstaklingur kom þessu helvíti inn hjá þjóðverjum???????

Í gær var svo hóptími hjá Janet, sem þýðir í raun það að hún býður öllum nemendum sínum að koma einusinni í mánuði og syngja fyrir hvert annað, sem er aljör snilld, því þarna getur maður farið og æft sig með aríur og annað sem maður er að fara með í fyrirsöng. Ég var nú búinn að sjá eitthvað af þessu liði áður, en hafði ekki heyrt. Þarna voru þó tvær stelpur sem var ánægjulegt að hlusta á. Hinir voru svona meira "work in progress" :)

Nú styttist óðum í áheyrnarprufu (8.feb), og ég er að undirbúa það að segja þeim sem sjá um þetta að ég sé í raun ekki að sækja um neitt hlutverk í óperunum sem þeir eru að setja upp, heldur frekar í tónleikunum sem eru líka haldnir. Veit ekki hvort það mun ríkja almenn ánægja með það, en þeir bjóða uppá það og því sé ég ekkert því til fyrirstöðu að fara þá leið.