Helvítis bjánarnir komu kl 13 í gær og auðvitað var engin heima, þannig að þeir skildu bara eftir miða með símanúmeri, en Soffía greyið tók sér frí úr skólanum til að vera komin heim kl 15, þar sem búið var að segja okkur að þetta myndi koma milli 15 og 17. En ekki kom þetta. Ég hringdi náttla alveg snar í Samskip og skammaðist, og þeir fullyrða að við fáum þetta í dag kl 14 og það er líka einsgott fyrir þessi fífl.
Maðu er alveg að verða búinn að fá sig fullsaddann á þessu rugli hérna. Ég er með öll einkenni stress álags þessa dagana og það er ekki gaman. En það er líka að vissuleiti mér að kenna, þar sem ég ætti bara að geta slakað á......þetta kemur allt. En þannig er það bara ekki.
Áheyrnarprufa á morgun, og svo vona ég nú að allt fari að róast. Það eina sem verður þó vandamál við að vinna heima, þegar netið kemur, er að maður fer lítið út á meðal fólks og verður algjör innipúki. Ég vona að maður nái bara að yfirstíga það einhvernveginn.
Sjónvarpið mitt á að koma á morgun skv einhverjum tölvupósti sem ég fékk áðan. Verst að tímarammin er um 12 tímar!!! Ef ég fer að tapa geðheilsunni hérna, ekki láta ykkur bregða.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli