Það var rigningarlegt um að litast hérna í Berlín í morgun, og er enn. Ég held fast í þá von að búslóðin komi loksins í dag, og skv öllu ætti sjónvarpið mitt að koma líka í dag. Í gærkvöldi kom svo ísskápurinn og þvottavélin, ég borgaði 30 EUR fyrir að láta senda þetta heim, bera þetta upp stigann og tengja fyrir mig, það er nokkuð góður díll miðað við það sem fávitarnir í IKEA rukka! Nú það kom upp úr dúrnum þegar ísskápurinn var kominn í hús, ísskápur sem ég vildi helst ekki kaupa, smellpassaði þar sem hann átti að vera, og rúmlega það. Einhverrahlutavegna, hafði Soffía mælt rými sem er 60,2 cm á breidd, sem 55 cm. Og vandamálið var það að það voru bara 3 ísskápar í boði sem pössuðu í 55 cm, og við þurfum að taka einn af þeim. Við erum nú með SIEMENS ísskáp sem er um 1.70, og helmingurinn af því er frystihólf. Þetta hlítur að reddast, jákvætt við þetta er að hægt er að kæla meira af bjór í einu, og það hratt og örugglega :) En þetta virðist bara vera fínt.
Nú skápahurðirnar á fínu fataskápana sem við keyptum í IKEA koma án alls, engar festingar og ekki neitt!!! Sem þýðir að við þurfum að fara enn eina ferðina þangað til að versla, ég er satt best að segja búinn að fá mig skítsaddan af þeirri ágætu verslun. Nú önnur gleðitíðindi eru þau að ekki er búið að merkja fyrir eða bora göt fyrir höldurnar, þannig að það verður skrautlegur andskoti að fá það til að vera beint og fínt. En svona er þetta bara.
Audition er á föstudaginn kemur klukkan 14 í Deutsche Oper, ég er eins vel undirbúinn og ég get verið og hlakka til að prufa þetta. Svo er ég að skrá mig í Audition í París 15-16 mars nk, þannig að það verður nóg að gera hjá mér næstu daga. Ég er reyndar ekki búinn að skrá mig, en mun taka ákvörðun um það um eða fyrir helgi.
Svo fékk ég þær fréttir að parental units ásamt sibling units 3 og 4 ætli að koma í heimsókn til okkar þann 27.feb, og þá verður kátt í höllinni. Ætli maður reyni ekki að fara fá sér bílaleigubíl til að læra að keyra hérna með fína GPS tækinu :)
vívíví!!!!
SvaraEyðaJá IKEA er ódýrt.. en kemur það ekki bara á sama stað, tímalega séð, allt vesenið sem fer í að redda hlutum sem eru ekki til og koma ekki fyrr en eftir margar vikur oþh ;)
En já það verður nú frábært að fá inn búslóðina, þá geturu loksins sest í Lazy með einn kaldan í einari og sjónvarpsfjarstýringuna í hinari :)