4.2.08

Frost og búslóðin kemur í dag

Þá er maður aftur kominn í almennilegt internet, að þessu sinni í Parkstrasse 3.

Erfið helgi er nú að baki, en það er mjög ánægjulegt að geta litið til baka og séð hverju maður er búinn að áorka. Búið er að taka allt IKEA draslið og setja það saman, ásamt því að setja upp gardínur og fleira rugl. Við Soffía vorum að frá 11 um morguninn til 20 um kvöldið, og loksins lítur þetta út eins og íbúð. Búslóðin á að koma í dag og mér líður eins og þegar ég var yngri og var að bíða eftir að fá að opna pakkana á aðfangadag.....ekki laust við að maður hlakki til. Ég er reyndar allur lurkum laminn eftir "skrúf" gærdagsins......ef ég ætti að segja eitt orð núna án þess að hugsa, um IKEA, þá væri það "skrúf". Harðsperrurnar valda því að ég er ekki alveg farinn að hlakka til að fá búslóðina. Nú svo eigum við von á þvottavél og ísskáp á morgun og fína sjónvarpið mitt á að koma á miðvikudag, þannig að þá loksins verðum við orðin að heimili :)

Fyrsti skóladagur Soffíu er í dag, en ekki er líklegt að hún fari, þar sem hún þjáist af einhverjum kviðverkjum sem gera henni erfitt að standa upprétt. Vonum bara að það lagist sem fyrst.

Af íbúðinni er það að frétta að í gær var sól, og ekki nær hún að skína á fínu veröndina okkar.......!!!!! Þó vona ég að staða stólar breytist eilítið við að sigla inn í sumarið. Annars verðum við bara að grenja úr okkur augun yfir því að vera ekki með kvöldsól. Þó held ég innst í hjarta mínu að maður eigi bara eftir að vera þakklátur fyrir það að vera ekki með endalausa sól allan daginn.

Það eru svo komin flott vídeó af Kurfusten str hér til hliðar.

5 ummæli:

  1. Gaman að sjá að þú sért kominn á tækniöldina með okkur hinum og byrjaður að sýna vídeó á picasaweb. Hugguleg íbúð, risastór miðað við mína og aðeins minna af köngulóm á veröndinni. Verður gaman að koma í heimsókn þegar við komum yfir á norðurhvel aftur

    SvaraEyða
  2. Einhvernvegin hef ég þó á tilfinningunni að þú hafir bara rambað inn á þessa videólausn..... :) En engu að síður...þetta er blóm í þinn hatt. :)

    SvaraEyða
  3. Þetta er algert brill... Þarf að athuga þessa lausn fyrir sleikipinnann. Eru einhver stærðartakmörk á skránum sem fara þarna inn? Hvað er að frétta af audition málum??

    SvaraEyða
  4. hvað sagðiru Kurfürstenstrasse 75 oft í þessum 3 stuttu myndskeiðum :)

    SvaraEyða
  5. Ásgeir: Það er bara heildar stærðartakmörkun á svæðinu þínu ef ég skil þetta rétt. Ekki pr. videó

    Guðný:Það þarf að segja þetta oft þannig að fólk skilji......ég veit t.d ekkert hvað heimilisfangið hjá þorvaldi er.. :) En það vita allir heimilisfangið mitt :)

    SvaraEyða