Ég held að það sé í raunveruleikanum að byrja að sígjast inn að við séum að flytja burt, og hið venjulega tilfinningarót sem tengist breytingum er að byrja! Það er aldrei þægilegt og aldrei gaman. Það er allavega ljóst að ég mun ekkert fara að vinna fyrr en í Ágúst í fyrsta lagi, þ.e ef mér tekst að finna einhverja vinnu. Fyrsta merki þess að allt er að fara breytast er að færri blogg eru byrjuð að detta inn. Ég hef lítinn áhuga á að ræða vinnuna hérna meira og það sem hér gerist, þó það sé vissulega alltaf eitthvað að gerast, eins og t.d í gær þegar sviðskallið kom allt of seint og ég mætti ekki á svið fyrr en um 10 sekúndum of seint! Þetta er mjög vond tilfinning og má aldrei aftur endurtaka sig. Ég get rifið mig niður endalaust fyrir þetta, en þökk sé lyfjunum mínum, veldur þetta mér ekki eins miklu hugar angri og ég hélt. En kannski eru þetta ekki lyfin, kannski er þetta bara vegna þess að ég er hvort sem er að hætta hérna og þessvegna er mér skítsama? Hver veit? Ég er allavega feginn að vera fara.
Við erum líklegast búin að selja flest allt af stóru hlutunum sem við ætluðum að losa okkur við, og ef allt gengur upp erum við búin að fá upp í helminginn af því sem það kostar að flytja búslóðina til Íslands. Við erum líklegast að fara missa fataskápana og aðra kommóðuna á Þriðjudaginn kemur, sem er svosem fínt, en þá þurfa fötin öll að fara í kassa :(
Það er líklega til mikils ætlast, en okkur fjölskylduna vantar c.a 4 herbergja íbúð í Reykjavík frá og með Ágúst/September á þessu ári, þannig að ef einhver sem þetta blogg les veit um eitthvað sem er að losna, eða er að leigja og leita að ábyrgum og góðum leigjendum, þá endilega senda mér skilaboð :)
Við erum búin að redda núna E-104 fyrir Soffíu vegna þess að hún flytur á undan okkur til Íslands. Við hin eigum áfram lögheimili í Þýskalandi, því ég er enn samningsbundinn hérna til loka Júlí. Ég er í kjölfarið búinn að semja við góða konu hérna um að leigja okkur litla íbúð fyrir lítinn pening fram til 1.Ágúst. Svo verður að koma í ljós hvað gerist. Soffía þarf allavega að leita sér að vinnu líka og við erum að fara detta í venjulegt fjölskyldulíf., og líklegast þennan sama góða rythma og maður var vanur, þar sem lífið missir ákveðin tilgang annan en þann að mæta í vinnuna og gera það sama á hverjum degi. Það er svosem visst öryggi í því, en er það það sem ég vil? Nei ég held ekki. Ætli maður finni sér þá ekki fljótlega eitthvað að gera eins og venjulega :)
Í lokin hérna smá myndir af þeim systrum 4 mánaða gömlum.

Svo verdur kannski möguleiki ad leigja radhús i Danmörku (3 svefnherergi og stofa).
SvaraEyðaÉg og Søren erum ad vinna i thvi ad komast til Malasíu/Singapore fra ca. 1/9 2012. Erum ekki komin med samning en erum s.s. ad vinna i thvi.
Thá thurfum vid náttúrulega ad leigja radhusid okkar. Svo ef thad er áhugi - láttu vita :o)
Bkv.
Ása