21.10.11

Það kemur sem koma skal og veikindaleyfi!!

Nú það er kannski best að segja frá fundinum sem ég átti með stjórnanda hússins hér á Mánudaginn.  En það var svosem ekki mikill fundur þannig séð.  Þeir horfa bara á þetta sem stöður við húsið, annarsvegar er "aðaltenór" staðan sem þegar er setin, og hinsvegar er buffotenór staðan sem ég fylli.  Og það mun ekki breytast var mér sagt.  En samt sem áður fékk ég frest til að segja upp til 15 Janúar nk, en um miðjan Desember ætt að liggja fyrir hvað verður í boði fyrir mig, en ég á ekki von á því að það verði eitthvað groundbreaking.  Svona hálfvitaskapur, að hanga bara í því í hvaða hlutverk þú hefur ráðið einhvern, í stað þess að sjá möguleikana, er mér gjörsamlega hulin ráðgáta.  Þetta bitnar að sjálfsögðu bara á mér, og ég er að öllum líkindum á leið héðan.

Við erum svo líklega á leið til Íslands í Febrúar, þar sem ég hef í hyggju að halda tónleika í Aratungu og hugsanlega líka í Reykjavík einhversstaðar, þó á það nú allt eftir að koma í ljóst, vonandi fyrr en síðar. Ætlunin er líka að frændi hennar Emilíu, Kristján Valur, muni skíra hana í Skálholtskirkju.  Og vonandi náum við að púsla saman einhverri veislu til að halda upp á það.

Ég hef verið í smá kreppu siðustu daga, ég hef verið að vinna 9-14 og 18-21/22 flesta daga síðustu vikur, síðan 25.Agúst.  Á þeim tíma hefur hjólinu mínu verið stolið, smábarn bæst í fjölskylduna, 2 frumsýningar, auk tveggja neyðaratvika sem urðu til þess að ég þurfti með stuttum fyrirvara að taka yfir tvær sýningar.  Svo hefur álagið af vanlíðan Emilíu, og orkuboltanum Júlíu ekki verið til þess að stuðla að hvíld eða nokkurskonar slökun þegar heim er komið.  Því gerðist það um daginn að eitthvað brotnaði í hausnum á mér og ég fór aftur í eitthvað svakalegt panik ástand, sem ég hef ekki upplifað lengi.  Auk þess hef ég verið að verða veikur í rúma viku, alltaf vakað til 2 um nætur, mætt í vinnu, auk þess að koma Júlíu í leikskólann.  Mörgun finnst þetta kannski ekki merkilegt eða mikið, en fyrir mig var þetta einum of mikið.  Læknirinn minn mat mig í útbrennsluástandi og skipaði mér í lágmark vikufrí og lét mig fá diazepam(valíum) til að slaka á og sofa.  Ég þarf að reyna að gera það næstu daga.  Þetta hljómar eflaust verr en ég upplifi það, en hvíldin er vissulega góð.

Fleirra var það nú ekki að sinni en að vanda....nokkrar myndir:

Júlía fékk naglalakk í gjöf frá mömmu sinni :) og elskar það.




Fegurð undirhökunnar


Engin ummæli:

Skrifa ummæli