28.10.11

Framhaldið og ýmislegt

Það var svosem ekki sérstaklega auglýst hérna á blogginu, en ég er nýlega búinn að syngja fyrir hjá Starlitzatsóperettunni í Dresden.  Ekki var það dæmt sem neitt sem skiptir máli, og það að mestu vegna þess að ég stóð mig ekki vel.  Þetta er gegnumgangandi þema í fyrirsöng hjá mér, og ég er bara ekki viss um að þetta sé þess virði lengur.  Ég hef ekki haft ánægju af þessu í rúmt ár, og það lítur ekki út  fyrir að  það muni breytast á næstu mánuðum og vikum. Mig langar að að fara breyta um, og kannski gerist það á næstu mánuðum.........vonandi.  Þetta er bara þvímiður of erfitt.  Og fólk segir mér að hala þetta bara út, en hversu lengi á maður að halda út.  Ég bara get þetta ekki lengur, fjölskylda og álag er = vanlíðan og vesen. Kannski má dæma mig utfrá því hversu mikill aumingi ég er, en mér finnst of mikið að lifa heilt ár án þess að líða vel og hafa gaman af því sem ég er að gera, núna veit ég að ég er að fara klára 2 ár en þess, og það er mjög erfitt.

Í dag hentumst við á markaðinn hérna í Görlitz og fengum nýupteknar sætar kartöflur sem ég hef aldrei séð áður, og við gerðum afar fína súpu úr því.  Byggða á Rikku bókinni fra Hagaup.  Það er líklega ein skemmtilegasta matreiðslubók sem ég hef komist í tæri við, þannig að það var ákaflega gaman.

Við erum búin að ákveða nokkurnvegin tímasetningar á Íslandi í Febrúar, og það sem mun bera hæst er að ég held tónleika í Aratungu 18.Feb kl 17:00 ef allt gengur upp og við ætlum að skíra Emilíu í Skálholti kl 14 þann 19.Feb.  Það eru því dagar sem nánasta fjölskulda er beðin að taka frá  :)

Annnars er lítið annað að frétta í bili og ég sendi kveðjur á alla :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli