Ég hef fengið nokkra tölvupósta og símhringingar í dag frá vinum og kunningjum í þýskalandi sem voru að kanna hvort ekki væri allt í lagi hjá okkur. Það er magnað að standa svona fyrir utan þetta og vita ekki neitt. Það fyrsta sem ég frétti af flóðinu var að ég fékk tölvupóst þar sem einn vinurinn var að spyrja hvort ég væri í einhverri hættu :) Ég vissi ekkert hvað hann var að tala um, það var um kl 23 í gærkvöldi. Þá fór maður nú að skoða þetta nánar og þá kemur í ljós að þetta er bara töluvert alvarlegt mál og hér flæddi inn á fjölmörg heimili á örfáum tímum. Við sleppum þó ekki alveg, því við vorum á fá fréttir af því að hér hefði flætt inn á vatnsból og því er ráðlagt að sjóða allt drykkjarvatn áður en þess er neytt. Og hvað það kann að standa lengi er ekki vitað!!
Svona er nú lífið í Görlitz :)
Mamma gamla á svo afmæli í dag og því ber að fagna. Hún fær að sjálfsögðu bestu kveður héðan frá okkur, litlu fjölskyldunni í Görlitz.
Hér eru svo nokkrar flóðamyndir.
ATH hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
(Fleiri flóðamyndir og Júlíumyndi má svo sjá í albúminu hennar hérna)
ATH hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
(Fleiri flóðamyndir og Júlíumyndi má svo sjá í albúminu hennar hérna)

Er þetta nokkuð að plaga þig, er þitt vatn ekki rautt eins og góðum tenórum sæmir ;-) Alltaf gaman að droppa inn og fá fréttir af þér gamli minn...
SvaraEyðaKv
aev