8.8.10

Við erum úr lífsháska!

Ekki það að við höfum einhverntíma verið það :) En fréttir hafa verið að berast héðan frá Sachsen, nánar tiltekið Görlitz og nágrenni að hér hafi áin Neisse flætt yfir bakka sína og héðan hefur þurft að flytja eitthvað af fólki. Við búum frekar hátt yfir sjávarmáli þannig að við vorum aldrei í neinni hættu. Við fórum í hjólreiðatúr í dag í góða veðrinu að virða fyrir okkur verksummerkin, eins og líklega allir sem eru í fríi á sunnudögum. Það var mikið af fólki allstaðar að skoða ánna og óskundan sem hún hefur valdið. Það var ansi magnað og á sama tíma nokkuð hræðilegt að sjá eyðilegginguna sem þetta hefur valdið. Um 1450 manns þurftu að yfirgefa heimili sín í gærkvöldi.

Ég hef fengið nokkra tölvupósta og símhringingar í dag frá vinum og kunningjum í þýskalandi sem voru að kanna hvort ekki væri allt í lagi hjá okkur. Það er magnað að standa svona fyrir utan þetta og vita ekki neitt. Það fyrsta sem ég frétti af flóðinu var að ég fékk tölvupóst þar sem einn vinurinn var að spyrja hvort ég væri í einhverri hættu :) Ég vissi ekkert hvað hann var að tala um, það var um kl 23 í gærkvöldi. Þá fór maður nú að skoða þetta nánar og þá kemur í ljós að þetta er bara töluvert alvarlegt mál og hér flæddi inn á fjölmörg heimili á örfáum tímum. Við sleppum þó ekki alveg, því við vorum á fá fréttir af því að hér hefði flætt inn á vatnsból og því er ráðlagt að sjóða allt drykkjarvatn áður en þess er neytt. Og hvað það kann að standa lengi er ekki vitað!!

Svona er nú lífið í Görlitz :)

Mamma gamla á svo afmæli í dag og því ber að fagna. Hún fær að sjálfsögðu bestu kveður héðan frá okkur, litlu fjölskyldunni í Görlitz.

Hér eru svo nokkrar flóðamyndir.
ATH hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
(Fleiri flóðamyndir og Júlíumyndi má svo sjá í albúminu hennar hérna)

Hér var lokað fyrir alla umferð, þetta er við menntaskólann

Neðstu íbúðirnar algerlega fullar af vatni
hér er létt samanburðarmynd á því hvernig þetta leit út áður en flæddi, á svarthvítu myndinni má sjá Pabb og Mömmu ásamt Soffíu á gangi. Á litmyndinni má svo sjá að vatnið nær töluvert hærra en þau!

1 ummæli:

  1. Er þetta nokkuð að plaga þig, er þitt vatn ekki rautt eins og góðum tenórum sæmir ;-) Alltaf gaman að droppa inn og fá fréttir af þér gamli minn...

    Kv
    aev

    SvaraEyða