28.8.10

Þreyta, leiði, gleði og gaman!!!

Síðustu dagar hafa verið blandnir ýmsum tilfinningum og hughrifum. Allt frá því að gefast algerlega upp til þess að halda að þetta sé málið! Það er erfitt að þurfa að undirbúa 5 hlutverk, þó lítil séu, á örstuttum tíma. Ekki erfitt af því að það þarf að læra þetta, heldur erfitt vegna þess að maður þarf að gera það á mjög stuttum tíma og vera svo ekki fullkominn þegar maður fer á æfingu. Lærdómurinn sjálfur er ekki leiðinlegur, en að geta ekki sýnt sitt besta á æfingum er það erfiðasta sem ég lendi í, og það gerist þvímiður of oft. Þannig er það bara með suma að þetta tekur aðeins lengri tíma en gott væri. Það er erfitt að sjá alla kollega sína fara með flott og góð aðalhlutverk á þessu ári, en vera sá eini sem þarf að syngja öll aukahlutverkin sem eru bæði lítil og einföld. Ég hef verið heppinn hingað til og unnið með góðu fólki sem kann að meta það sem ég hef fram að færa, en hérna er það svo að maður hefur lítið að segja og þarf að sætta sig við það sem að manni er rétt. Mig langar í raun ekki að gera þetta lengur, allavega ekki undir þessum kringumstæðum. Ég hef ekki þann bakgrunn sem flestir mínir kollegar hafa, þ.e tónlistarnám, spila á hljóðfæri, alast upp við klassíska tónlist á heimilinu osfrv, ekki það að ég sé vanþakklátur fyrir það sem ég hef og kann, en maður upplifir sig bara lítinn og einskis virði þegar maður er ekki metinn af því sem maður hefur sýnt að maður getur og kann. Kannski lagast þetta á næsta ári og kannski ekki. Ef ég verð enn í sömu stöðu er það mér ljúft og óljúft að upplýsa að ég er á leið heim til Íslands að lokinni dvöl hér í Görlitz. Það er þó komið afar vel fram við mig á allan hátt og mér sýndur skilningur á því að ég sé að gera þetta í "fyrsta skipti" og að þýska er ekki mitt móðurmál, og það er alls engin pressa eða skammir sem ég finn fyrir, þvert á móti er fólk afar ánægt með það sem ég hef hverið að gera. Líklegast er mest af þessu úr minni eigin sköpun, en það er nú víst svo að hamingja og gleði kemur ekki utan frá, og því þarf ég að ná að sætta mig einhvernveginn við þetta þannig að gleði hljótist af.

Þessa dagana er Altstadtfest hérna í Görlitz og það er afar mikið um að vera útum allan bæ,ég fór á rölltið í dag og hér eru nokkrar myndir frá hátíðarbænum Görlitz.




Engin ummæli:

Skrifa ummæli