Á fimmtudag fengum við ánægjulega heimsókn frá Auju og Anfinn sem voru á ferðalagi um Sachsen héraðið og ákváðu að líta hérna við hjá okkur. Ég sýndi þeim hérna aðeins um bæinn og óperuhúsið áður en þau henntust af stað til frekari ævintýra á svæðinu :)

Kona og dóttir eru svo farin frá mér! Tímabundið samt :) Þær eru nefnilega farnar til Íslands að njóta lífsins. Það þykir mér afskaplega gott, þar sem ég veit að það er ekki auðvelt að hanga hérna í litlu þýsku þorpi og hafa ekkert fyrir stafni á meðan ég hef alltaf nóg að gera. Auk þess er alltaf gott að fá smá "alone time". Ég læri best þegar ég get einbeitt mér algerlega, án þess að hafa áhyggjur af öðrum.
En af nægu er að taka í áhyggjubankanum, þar má meðal annars minnast á umsókn okkar um barnabætur hér í þýsklandi. Við þurfum að skila allskyns pappírum, og ég er svosem búinn að fá þetta mest allt nema einn pappír sem ég þarf frá útlendingastofnun, það verður fróðlegt að sjá hvernig það gengur, þar sem þau vilja fá launaseðla og annað sem ég get líklega ekki framfært. En það kemur allt í ljós í næstu viku.
Hér er búið að vera glimmrandi gott veður síðustu daga og hitinn í klringum 28 gráður, en þó
ekki rakt, þannig að þetta er afar notalegt.
Ég hef aðeins myndir til að ylja mér um hjartaræturnar þessa dagana og hérna er ein sem tekin var af ungfrúnni í fullu fjöri við að gera það sem henni þykir skemmtilegast af öllu, en það er að sulla.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli