17.8.10

Styttist í stóru tímamótin

Sem eru þau að fara að fá reglulegan pening fyrir að syngja, eða ekki syngja. Bara reglulega innflæði peninga.

Fyrsti vinnudagurinn er á fimmtudaginn og það lítur út fyrir að ég þurfi ekki að mæta á neina æfingu þann daginn. Það er að vísu einhver hittingur klukkan 10, en svo er það ekki meira :)

Hérna í Bies er það helst að búið að er að setja klór í vatnið þannig að mannir líður alltaf eins og maður sé á spáni þegar maður þarf að láta vatn renna í einhverjum tilgangi. Ótrúlega óþolandi, þar sem vatnið hérna var stórgott og maður þurfti ekki að filtera það eða neitt, ég var líka að detta í heilsuátak enn eina ferðina því hér er afar gott að skokka. Það hefur ekki gengið betur en svo að nú þar ég að kaupa vatn í meira mæli auk þess sem eftir fyrstu 4 skokkdagana fékk ég yfirgengilegan sársauka á innanverðum fæti sem leiði alveg upp að hné. Þetta gerist bara við skokk eða ef snöggt hökk kemur á fæturna!!! Ég get sem betur fer hjólað án nokkurra vandræða og verð ég bara að sætta mig við að reyna að hjóla mig til heilbrigðis. Það er bara skemmtilegra að skokka því maður fer hægar yfir og auðveldara er að hlusta á tónlist á meðan.

Ég hef áður bloggað um vanvirðingu reykingafólks á sínu nánasta umhverfi, og maður verður afskaplega var við það hérna úti, sérstaklega þó ef maður vill njóta þeirra sjálfsögðu mannréttinda að sitja utandyra í góðu veðri á veitinga- og kaffihúsum. Það er erfitt fyrir mig að tjá hatrið sem kemur upp hjá mér í hvert skipti sem heilalaus reykingasjúklingur kveikir sér í við hliðina á mér. Þetta er líka talsvert vandamál hérna á leiksvæðum, þar sem hópur, augljóslega vitskertra foreldra, kemur saman nánast daglega og keðjureykir á meðan börnin eru látin leika sér, þetta gengur auðvitað svo lang að þarna er ein ólétt í hópnum og hún reykir auðvitað líka með eins og ekkert hafi í skorist!! Sem segir allt sem segja þarf um þetta fólk! Svo væri ótrúlega gaman að vita hvað vakir eiginlega fyrir reykingafólki að drullast ekki til að reykja bara öll á sama tíma...... auðvitað þurfa þau að skipta því þannig að einn reykir í einu, til að tryggja það að loftið haldist mengað sem lengst! Jæja þetta blogg leysir ekki vandamál þessa fólks frekar en mín, en það er gott að koma þessu frá sér.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli