Hér hefur kólnað allverulega á síðustu dögum og ég þarf að klæða mig vel áður en hjólað er til vinnu. Það er afar gott að klæða sig í vettlinga til dæmis, því slíkur er kuldinn. Á meðan fréttir maður af hitabylgju á Íslandi :) Magnað alveg hreint.
Af Júlíu hef ég aðeins gott frétt, hún blómstrar fyrir norðan í sveitinni hjá ömmu og afa. Þar kemst hún brot úr degi í leikskóla, sem henni þykir ekki leiðinlegt, eða ætti ég að segja sem henni þótti ekki leiðinlegt fyrstu dagana. Núna er hún ekki alveg eins sátt, en fer þó án vandræða. Hún spjallar við pabba sinn í símann af og til og mér þykir merkilegt að heyra hvað hún er orðin mun skýrmæltari og orðmeiri en áður. Og ég fæ það á tilfinninguna að hún sé virkilega að reyna að segja mér eitthvað merkilegt :) Þær mæðgur eru svo væntanlegar aftur til mín þann 20.sept, sem verður mikið gleðiefni.
Þreyta hefur verið að gera vart við sig síðustu daga, en þá aðallega andleg þreyta vegna vinnuálags, mér finnst ég ekkert get einbeitt mér lengur og er eiginlega kominn með alveg nóg af því að læra mismunandi texta á þýsku. En ég reyni að hugga mig við að það sér nú fyrir endann á þessu. Fyrsta frumsýning er á sunnudaginn kemur, og svo sú næsta föstudaginn eftir það. Eftir það þarf ég bara að einbeita mér að því að læra þrennt í einu í stað 5 :) Úff ég verð bara þreyttur að hugsa um þetta. En best að fara henda sér í lærdóm á meðan ég hef enn geðheilsu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli