Hér nýverið fengum við bréf inn um lúguna þar sem okkur var tilkynnt um hækkaða húsaleigu, og á það bættist svo eitthvað auka vatsgjald, þannig að leigan okkar í næsta mánuðu samsvarar um 190.þús ISK. Svo verður það aðeins viðráðanlegra eftir það eða um 130 á mánuði. Þegar við fluttum hingað var leigan aðeins um 65 þús á mánuði og vel viðráðanlegt. En þetta er eiginlega bara hlægilegt.
Hér er semsagt orðið ansi kalt með grámyglunni sem fylgir því. Reyndar er spáð að morgundagurinn gæti orðið hlýjasti októberdagur í yfir 10 ár. En hverjum er ekki skítsama um það! Til að auka á spennuna við að búa hér þá vofir ennþá yfir okkur hryðjuverkaógn og við erum bara róleg yfir því.
Það styttist óðum í frumsýning hjá okkur í Neuköllner Oper, og ég hef ekki verið boðaður á nógu margar æfingar að mínu mati. Finn til ákveðins óöryggis með þetta. Auk þess sem það virðist ekki vera mjög fastmótað hvernig við eigum að gera sum atriðin, erum hingaðtil bara búin að vera improvisera, sem er hundleiðinlegt og segir manni a leikstjórinn viti ekkert hvað hann er að gera. Honum til varnar má reyndar segja það að hann er stökkva inn í fyrir upphaflega leikstjórann sem hætti við með 2 vikna fyrirvara. Beiðnir um hitt og þetta hafa verið að berast um eitt og annað, sem ég nenni ekki að hugsa um en þarf samt að skoðast.

Við vorum einnig búin að plana að hugsanlega bara hendast heim í jólafríinu til að engin þyrfti að koma hingað. En það er blásið af, þar sem ég er að sýna milli jóla og nýjárs auk þess sem sýningar eru fyrir og eftir jól og áramót. Þetta verður samt sem áður fínt.
Meira var það nú ekki að sinni, auf wiedersehen.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli