Þá sit ég hér á kaffihúsi í Dortmund að bíða eftir að lestin mín fari eftir svona tvo tíma. Ég var semsagt í fyrirsöng hérna í Dortmund. Og eftir reynslu síðustu áheyrnarprufu í Bonn má svosem segja að sett hafi að mér óhug við tilhugsunina um að syngja fyrir aftur, en í þessum bransa verður maður að minstakosti að reyna að fara á bak aftur ef maður dettur. Þannig er það bara að maður getur ekki verið fullkominn alltaf. Ég syng beest í umhverfi þar sem ég kynnist lítillega því fólki sem ég er að vinna með og eins skemmir svosem ekki að vera á vingjarnlegum nótum við þá sem eru að "dæma". En það var einmitt það sem gerðist í dag. Áheyrnarprufan var semsagt haldin sérstaklega fyrir mig! Ég var farinn að búast við að þurfa að bíða og bíða og stressast og strssast. En í tók við mér afskaplega viðkunnalegur maður sem ég veit núna að er aðal kallinn þarna og við spjölluðum heillengi, eins spjallaði ég fullt við píanóleikarann og við unnum vel saman.
Ég það var gott að vita til þess að nákvæmlega kl 14:15 átti ég að stíga á svið og syngja. Það gekk allt eftir og ég fékk velgengisóskir frá öllum sem gengu framhjá mér :) þar sem allir vissu að ég var að fara syngja fyrir. Það var ótrúlega heimilislegt og þægilegt. Það var gott að syngja í húsinu, og ég tel að ég hafi skilað því allra besta sem ég á til í þessari prufu. Það verður svo auðvitað að koma í ljós hvort þau hafi upplifað það sama og ég :)
Ég er núna að sturta í mig DAB sem er bjór þeirra Dortmúndinga, á meðan ég bíð ferðarinnar heim. Mér finnst ég öllu meiri maður og söngvari í dag en í gær og það er góð tilfinning.
Nú er bara að vona að lestarferðin verði ánægjuæleg og þá er dagurinn fullkominn. Ég sagði hér í síðasta eða þarsíðasta bloggi að ég ætlaði ekki að tala mikið um uppkomandi prufur og það hefur svo sannarlega skilað sér og mun ég þvi halda því áfram.
Bestu kveðjur frá Dortmund.
Gaman að heyra að þetta hafi heppnast vel :)
SvaraEyða