27.9.09

Bundestagswahl 2009

Mest lítið hefur nú verið að gerast hér á Kurfürsten síðustu daga. Í dag eru þó sambandsþingkosningar hér í Þýskalandi og í kjölfarið væntanlega einhver hryðjuverk sem vinir okkar múslímarnir ætla að bjóða uppá. Það hlítur að vera afskaplega gott að vera á því plani sem þetta lið er, sem og annað öfgalið. Haldandi það að einhver öfga afstaða komi til með að bjarga þeim, hversu heimskt þarf fólk eiginlega að vera?

Nú hér í Berlín er búið að vera algert neyðarástand á S lestunum síðustu vikurnar (U-lestarnar ganga sem betur fer eðlilega), en það er vegna þess að ekki hefur verið reglubundið viðhald á bremsukerfum þeirra. Því er rúmlega einn þriðji af öllum lestum úr umferð, búist er við að þetta verði komið í samt lag um 13.desember!! Það er eiginlega með ólíkindum að þetta hafi getað gerst. Þetta hefur valdið miklum truflunum á samgöngum eins og augljóst er. Ég hef til að mynda verið að fara til kennarans míns í Schmöckwitz, en það er um eins og hálftíma leið undir venjulegum kringumstæðum, stærstur hluti þeirrar leiðar er með S lest. Það hefur í raun verið ómögulegt að segja til um hvort hvenær eða hvernig lestarnar ganga. Laugardaginn fyrir viku lagði ég af stað 2 tímum áður en tíminn átti að hefjast og það var rétt svo að ég náði því, með því að skipta 5 sinnum um lest!! Þetta er alger bull! En í gær fór ég og ákvað að vera bara snemma í því, þar sem ég átti tíma kl 11, ég lagði því af stað korter fyrir 9, og allt gekk vel, S-lestin gekk bara fínt og var ég því kominn á áfangastað á tæpum klukkutíma, sem þýddi að ég var kominn klukkutíma fyrir áætlun, sem betur ver vaknar Wolfgang um kl 6, og því var lítið mál að flýta tímanum :) (Til skýringar: S-bahn er ofanjarðar og U-bahn er neðanjarðar, fyrir þá sem ekki þekkja til)

Margt er að gerast þessa dagana og mér var nýlega boðið í áheyrnarprufu fyrir hlutverk Ítalska söngvarans í Rosenkavalier í Stuttgart. Vandamálið var kannski helst það að símtalið fékk ég á miðvikudegi og áheyrnarprufan var á Föstudegi! Það var því engin leið að gera það, enda er ég ekki viss um að ég hefði skilað því neitt sérstaklega vel, en maður veit svosem aldrei.

Ég er búinn að vera fylgjast hérna með Júlíu litlu þeytast um alla íbúð að tæta og leika sér. Hún spjallar mikið þessa stundina þar sem hún er að reyna að ná í DVD diskana mína. Það er hreint ótrúlegt hversu hratt hún lærir og maður myndi eflaust gefa mikið fyrir þann hæfileika væri hann í boði. En þetta er henni lífsnauðsynlegra en mér og því kannski ekki skrítið :)

Að lokum er hér ein nýleg af ungfrúnni með nýja hundinn sinn, sem hún hefur mikið gaman af.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli