Ég hef tekið á það ráð að prufa að tala ekki um uppkomandi áheyrnarprufur eða annað slíkt, þar sem mín reynsla hefur sínt mér að þeim mun fleiri sem ég segi frá þeim mun verr gengur það. Þetta er ein af staðreyndum míns lífs. Ég mun því segja frá eða ekki, eftir því hvernig mér gengur, að loknum slíkum prufum í framtíðinni, einungis til að sanna eitthvað fyrir sjálfum mér :)
Hér er allt í góðu gengi, og æfingar ganga nú bara alveg ágætlega í Neukölln sérstaklega miðað við þá staðreynd að frumsýning er eftir mánuð.
Júlíuhornið
Júlía vex auðvitað og dafnar eins og flest börn. Við fórum í IKEA í gær og keyptum handa henni svona vagn sem hún getur stutt sig við á meðan hún labbar, og að sjálfsögðu notar hún það mikið, hún reyndar kemst bara í eina átt, þar sem hún kann ekki alveg að snúa við. Það eru einnig ekki ófáir marblettirnir sem hún er komin með eftir hin og þessi áföllin henni hefur tekist að lenda í. Hún borðar líka óheyrilega mikið og finnst gott að ljúka kvöldmáltíðinni með því að hakka í sig skál af bláberjum.

Meira var það ekki í bili......
Engin ummæli:
Skrifa ummæli