14.5.09

Flott kvöld, velgengni og svo framvegis.....


Gærdagurinn og gærkveldið var í alla staði vel heppnað!!  Ég er mjög ánægður allvega þó líklegast megi alltaf gera betur.

Þetta hófst reyndar allt á þriðjudeginum þegar við fórum til Frankfurt and der Oder, þar var æfing með hljómsveit og þess á milli farið til Póllands og fengið sér að borða á Egypskum veitingastað :) Þetta var allavega voða gaman.

Mæting var svo í Mercedes höllina kl 15:00 í gær og þar var öllu klabbinu rent í gegn einu sinni fyrir kvöldið, mér gekk ekki alveg nógu vel á æfingunni, en í staðin gekk mér mjög vel um kvöldið......þegar það skipti einhverju máli! :)  Ég er bara svakalega sáttur við daginn og kvöldið.   Fólk var ánægt og ég gaf eiginhandar áritun :)  Nú tekur svo bara við að læra Liebesverbot fyrir Júní.  Í dag er ég að fara hitta eina sóprönu sem syngur á móti mér og við ætlum að rúlla yfir dúettinn okkar með Eddy, pínóleikara.   Það er því hvergi slakað á og það er að vissuleiti gott mál.
Martin Fischer-Dieskau gaf sér tíma í mynd :)
Nú það voru að sjálfsögðu tekin vídeó á staðnum og hér koma þau "exclusively" fyrir lesendur þessarar síðu :)

Gjörið svo vel, (það eru einhverjar hljóðtruflanir vegna þess að vídeóvélin mín er í einhverri steik)

Pourquoi me Reveiller - Werther (Massenet)



La donna e mobile - Rigoletto (G.verdi)




6 ummæli:

  1. Flott myndbönd, til hamingju með velheppnað kvöld :)

    SvaraEyða
  2. úff gæsahúð hérna megin :)
    Vel gert!

    SvaraEyða
  3. Scheisse gut :)
    Gekke kki líka vel með O sole mio auf Deutsch?

    SvaraEyða
  4. þetta var glæsilegt minn kæri -

    sjáumst svo á MORGUN í stuði - súkkí súkk :)

    BKBen

    SvaraEyða
  5. Stórglæsilegt! :)
    kv.Herdís

    SvaraEyða
  6. Vá hvað þú syngur ótrúlega vel Egill! Klárlega fallegasta íslenska tenórröddin! Gangi ykkur fjölskyldunni allt í haginn á braut frægðar og frama.

    SvaraEyða