Daginn eftir tók svo við gönguferð í blíðskaparveðri um Treptow Park, sem er ekki langt frá. Gunnar og Erla voru með í för og var gengið ansi mikið. Á þriðjudeginum var svo lagt snemma af stað að ná í bílaleigubíl til að keyra í Tropical Islands, sem er í uþb 60km fjarlægð frá Berlín. Komið var við á McDonalds í morgunmat og svo var haldið af stað. Ungfrúin var nú ekki upp á sitt besta í bílferðinni en það lagaðist þegar við vorum komin vel af stað. Þegar í TI var komið var heljarinnar biðröð fyrir utan og maður fékk smá sjokk yfir hvað þarna voru margir. Við komumst þó inn á endanum og það verður að segjast að þetta er nú helvíti flott. Við byrjuðum á að henda okkur á Sauna svæðið sem við vissum ekki að væri nektarnýlenda, en þar er semsagt bannað að vera með myndavélar eða í sundfötum, sérstaklega skemmtilegt, þar sem maður gat ekki alveg nýtt sér það sem var í boði þar.....kannski seinna :) En restin var mjög fín, þó aðeins of mikið af fólki allsstaðar og því kannski ekki eins afslappandi og þetta gæti verið. Svo var haldið heim á leið og komið við á "Gulastaðnum"
sem heitir núna La Rosa, eða eitthvað svoleiðis. Ekki klikkaði það frekar en fyrridaginn. Hér er að hefjast spergiltími, þannig að hann verður í boði á öllum veitingastöðum í einhverju formi, ég fékk mér að sjálfsögðu svoleiðis með hollandaise og kengúrukjöti, klikkar ekki.
Svo var það bara læra, læra, læra í dag og á morgun er það Wolfgang, Eddy og ungbarnasund á Föstudag....... veit ekkert hvenær ég á að hafa tíma til að slappa af :)
Alllavega, það eru komnar inn nýjar myndir á myndasvæði Júlíu hérna
Byrja að slappa af upp úr sjötugu - þá verður nægur tími :)
SvaraEyðaMyndir sleppa, að vanda.
virðist bara hafa verið frekar góð páskahelgi :)
SvaraEyðaSé ykkur eftir 9 daga !