Það er kannski ekki rétt að segja að sumarið sé ónýtt, en það er allavega að mestu frátekið :)
Mér var semsagt boðið hlutverk "Claudio" í óperunni "Der Liebesverbot (Ástarbannið)". Ég á eftir að leggjast aðeins yfir þetta en mér skilst að þetta sé svínerfitt hlutverk með einu háu C!!! Allavega þá eru þetta í raun góðar fréttir þrátt fyrir að titill greinarinnar virki neikvæður :)
Ég mun því opna mér bjór í kvöld og hugsa minn gang. Því söngvarar sem taka þátt í þessari hátið fá mikla athygli hjá Bayreuth, og stóru húsunum hérna í Þýskalandi, svo ekki sé nú talað um Metropolitan í New York. Allavega maður mun gera sitt allra besta og ég mun hvergi spara til að gera þetta sem best úr garði. Það er ekki mikið borgað fyrir þetta, þar sem litið er á reynsluna sem borgun. Þó fáum við frítt fæði og húsnæði og 500 evrur í dagpeninga á meðan á æfinga og sýningatímabili stendur.
Frumsýning er 27.júní kl 20:00
Svo verða einhverjar aukasýningar annarsstaðar í ágúst.
Hér syngur undirritaður 2-3 aríur
Það er því spennadi sumar framundan hjá mér og mikill stökkpallur.
Bravissimo!
SvaraEyðafrábærar fréttir! til hamingju með þetta og gangi þér vel :)
SvaraEyða-Herdís frænka
Ich will gern ein Billett kaufen. Wie viel ?
SvaraEyðaJibby cola - áfram Egill!
SvaraEyða:)BKBen
Sie können Karten kaufen an der website der Kammeroper :)
SvaraEyðaGlæsilegt. Til hamingju öll þrjú
SvaraEyðaFrábært! Megi þetta nýtast þér sem best á alla enda og kanta!!!
SvaraEyðaættarfylgjan
Frábært, frábært :)
SvaraEyðakv. Kristín Ósk
Þá styttist í að okkur verður boðið í Metropolitan :)
SvaraEyðaFrábært og Brake a Leg!
Kveðja Auja og Anfinn
Glæsilegt :o)
SvaraEyðaHelvítis óperustjórnendur alltaf að eyðileggja fyrir fólki... Vonandi geturðu samt gert eitthvað af viti í sumar.
SvaraEyðaTil hamingju ;)