4.3.09

Þá er búið að eyðileggja fyrir manni sumarið!!

Ég var búinn að hugsa mér að eyða sumrinu í að finna mér eitthvað að gera og undirbúa hin og þessi hlutverk úr ýmsum óperum, núna er orðið ljóst að það mun ekki gerast!  Heldur mun ég einungis undirbúa eitt hlutverk og einhverjar aríur.   Ástæðan fyrir þessu er að í dag var ég í svona auka áheyrnarprufu fyrir sumaróperu, eina þá stærstu hérna í Þýskalandi.  Ég komst ekki í alvöru áheyrnarprufuna vegna þess að ég var á Íslandi og sendi því inn DVD.  Skipuleggjendur hátíðarinnar óskuðu eftir að fá að heyra mig syngja í eigin persónu og það gerðist nú í lok dags.  Mér var boðið hlutverk á staðnum og ég beðinn að taka sumarið frá.   Ég tók tilboðinu náttúrulega og þakkaði pent fyrir mig.  Ég hef reyndar aldrei sungið eins vel og í áheyrnarprufunni í dag :)

Það er kannski ekki rétt að segja að sumarið sé ónýtt, en það er allavega að mestu frátekið :)
Mér var semsagt boðið hlutverk "Claudio" í óperunni "Der Liebesverbot (Ástarbannið)".   Ég á eftir að leggjast aðeins yfir þetta en mér skilst að þetta sé svínerfitt hlutverk með einu háu C!!! Allavega þá eru þetta í raun góðar fréttir þrátt fyrir að titill greinarinnar virki neikvæður :)

Ég mun því opna mér bjór í kvöld og hugsa minn gang.  Því söngvarar sem taka þátt í þessari hátið fá mikla athygli hjá Bayreuth, og stóru húsunum hérna í Þýskalandi, svo ekki sé nú talað um Metropolitan í New York.   Allavega maður mun gera sitt allra besta og ég mun hvergi spara til að gera þetta sem best úr garði.     Það er ekki mikið borgað fyrir þetta, þar sem litið er á reynsluna sem borgun.  Þó fáum við frítt fæði og húsnæði og 500 evrur í dagpeninga á meðan á æfinga og sýningatímabili stendur.

Frumsýning er 27.júní kl 20:00
Svo verða einhverjar aukasýningar annarsstaðar í ágúst.

Óperu gala
2, 3 og 4 Júlí kl 20:00
Með Brandenburger Staats Orchester
Hér syngur undirritaður 2-3 aríur

Það er því spennadi sumar framundan hjá mér og mikill stökkpallur.

11 ummæli:

  1. frábærar fréttir! til hamingju með þetta og gangi þér vel :)

    -Herdís frænka

    SvaraEyða
  2. Ich will gern ein Billett kaufen. Wie viel ?

    SvaraEyða
  3. Jibby cola - áfram Egill!

    :)BKBen

    SvaraEyða
  4. Sie können Karten kaufen an der website der Kammeroper :)

    SvaraEyða
  5. Glæsilegt. Til hamingju öll þrjú

    SvaraEyða
  6. Frábært! Megi þetta nýtast þér sem best á alla enda og kanta!!!
    ættarfylgjan

    SvaraEyða
  7. Frábært, frábært :)
    kv. Kristín Ósk

    SvaraEyða
  8. Þá styttist í að okkur verður boðið í Metropolitan :)
    Frábært og Brake a Leg!
    Kveðja Auja og Anfinn

    SvaraEyða
  9. Glæsilegt :o)

    SvaraEyða
  10. Helvítis óperustjórnendur alltaf að eyðileggja fyrir fólki... Vonandi geturðu samt gert eitthvað af viti í sumar.

    Til hamingju ;)

    SvaraEyða