5.12.08

Eflaust eru einhverjir búnir að bíða eftir þessu bloggi :)

En loksins er það búið, loksins er það byrjað.

Í nótt kl 2:24 kom í heiminn lítil stúlka, 3595 gr að þyngd eða rétt rúmar 14Merkur(fyrir þá sem verða endilega að hafa það í gömlu gullvigtinni sem er bara notuð á Íslandi) 51.cm á lengd er stúlkan, og hin rólegasta miðað við allt.  Hjartsláttur barnsins í lok fæðingar hélst í stöðugum 130 slögum, sem er bara nokkuð gott, og virðist þetta jafnaðargeð bara fylgja henni...... allavega enn sem komið er :)

Soffía stóð sig eins og hetja og kláraði dæmið á rétt rúmum 4 tímum, sem er nú bara nokkuð gott held ég, maður var farinn að búa sig undir miklu meiri tíma.   Hún er allavega hress og kát, en nokkuð þreytt eins og gefur að skilja.   Fæðinging fór fram í vatni, sem var nú ekki alveg eitthvað sem við vorum beint búin að ákveða, en mér skilst að það hafi munað mjög miklu fyrir Soffíu.   Þó vatnið dragi ekki úr verkjum, þá hjálpar það mikið til við slökun milli verkja og er þægilegri fyrir barnið..... það segja allavega ljósmæður :) 

Flestir eru nú líklegast búnir að frétta þetta á einn eða annan hátt, en hér kemur semsagt "opinbera" yfirlýsingin, ásamt mynd af ungfrúnni sem erfa mun auðæfin.
Stoltur faðir er sá sem bloggar núna.

23 ummæli:

  1. Elsku Egill minn - þú tekur þig svo vel út og svei mér þá ef hún er ekki bara sterkan Egilssvip ... varirnar eru þó frá múttunni :)

    SvaraEyða
  2. Æhji litla krúttið! Innilega til hamingju með þetta allt saman!

    Kv,
    Vala frænka

    SvaraEyða
  3. Elsku Egill og Soffía. Okkar innilegustu hamingjuóskir með prinsessuna.

    Magnús og Sigurlaug

    SvaraEyða
  4. Innilega til hamingju :) Svei mér ef það er ekki þó nokkur Drafnar svipur þarna!

    SvaraEyða
  5. Mikið er hún falleg, innilega til hamingju og gangi ykkur vel :)

    Kv. Guðný frænka

    SvaraEyða
  6. Egill rosalega er mín falleg hún er bara yndisleg. Til hamingju litli frændi þetta er alveg yndislegt. Situr hér gamla frænka með tár í augunum :)

    Knús Hulda

    SvaraEyða
  7. Til lukku elsku fólk með prinsessuna.

    hafið það gott
    Knús Helen

    SvaraEyða
  8. Innilegar hamingjuóskir frá öllum í Sælukoti.

    SvaraEyða
  9. Innilega til hamingu með skvísuna. Ekkert smá fín. Bið innilega að heilsa móðurinni. Og æðisleg mynd af ykkur saman. Ekkert smá stoltur greinilega
    kv. Ósk

    SvaraEyða
  10. Elsku Egill og Soffía.

    Innilega til hamingju með prinsessuna, hún er æðisleg!!

    Sigrún og Ari

    SvaraEyða
  11. Hjartans hamingjuóskir. og aldrei verður lífið samt eftir þetta!

    Megi ykkur öllum heilsast vel og þið njóta blessunar.

    Helga Ág.

    SvaraEyða
  12. Til hamingju bæði tvö, glæsilegur árangur hjá ykkur.
    Svo hef ég heyrt að söngvarar fái fyllri og þéttari rödd eftir fyrsta barn... eða átti það bara við um söngkonur, ekki gott að segja.
    Til lukku
    Maggi baritenór

    SvaraEyða
  13. til hamingju med litlu prinsessuna, tvilik fegurd;) hafid tad sem allra best.
    kv. thorvaldur fraendi og asta fraenka;)

    SvaraEyða
  14. Elsku Egill og Soffía! Innilega til hamingju með þessa gullfallegu prinsessu :)Gangi ykkur vel :)

    -Herdís Frænka

    SvaraEyða
  15. Elsku Soffía og Egill.

    Við óskum ykkur innilega til hamingju með litlu dömuna.

    Kv. Allir í Kirkjuholti.

    SvaraEyða
  16. Og enn hrúgast inn hamingjuóskir frá Hveratúnsfamilíunni...

    Til hamingju með nýju dömuna, hún er gullfalleg (og mér finnst ég sjá einhvern Kvistholtssvip á henni...)
    Hafið það nú gott, litla fjölskylda.

    SvaraEyða
  17. Kæru Egill & Soffía duglegasta, Innilegar hamingjuóskir með prinsessuna! Líði ykkur sem best og gangi ykkur allt í haginn! Framtíðin er björt! Verðum í sambandi og sjáumst hress!!! :-) Ykkar, Þröstur frændi, Una Björk & Þorri

    SvaraEyða
  18. En gaman að sjá myndir af litlu prinsessuni, mikið er hún falleg!

    Enn og aftur til hamingju með hana bæði tvö :)

    Bestu kveðjur, Herdís Björnsd.

    SvaraEyða
  19. Elskurnar mínar, hjartanlegar hamingjuóskir með litlu dúlluna. Góðar kveðjur og heilsist öllum sem best.
    Ásta og Gústi

    SvaraEyða
  20. Nú sit ég nú bara hérna skælandi - innilega til hamingju, aftur. Voða kjúttípæ þessa dama.
    Kv. Kristín Ósk

    SvaraEyða
  21. Til hamingju!! Hún er algjört krútt!!

    Kveðja Marín frænka :D

    SvaraEyða
  22. Svakalega er hún sæt og falleg! Innilegar hamingjuóskir til ykkar beggja.

    SvaraEyða
  23. Velkomin í heiminn litla dama.
    Elsku Egill og Soffía, innilegustu hamingjuóskir.
    Annar Tungnamaður fæddist í kvöld þegar Dagný Rut Gretarsdóttir eignaðist son. Sá var ekki að láta bíða eftir sér, átti að fæðast rétt undir ólin, 20. held ég.

    Bestu kveðjur,
    Aðalheiður

    SvaraEyða