Í nótt kl 2:24 kom í heiminn lítil stúlka, 3595 gr að þyngd eða rétt rúmar 14Merkur(fyrir þá sem verða endilega að hafa það í gömlu gullvigtinni sem er bara notuð á Íslandi) 51.cm á lengd er stúlkan, og hin rólegasta miðað við allt. Hjartsláttur barnsins í lok fæðingar hélst í stöðugum 130 slögum, sem er bara nokkuð gott, og virðist þetta jafnaðargeð bara fylgja henni...... allavega enn sem komið er :)
Soffía stóð sig eins og hetja og kláraði dæmið á rétt rúmum 4 tímum, sem er nú bara nokkuð gott held ég, maður var farinn að búa sig undir miklu meiri tíma. Hún er allavega hress og kát, en nokkuð þreytt eins og gefur að skilja. Fæðinging fór fram í vatni, sem var nú ekki alveg eitthvað sem við vorum beint búin að ákveða, en mér skilst að það hafi munað mjög miklu fyrir Soffíu. Þó vatnið dragi ekki úr verkjum, þá hjálpar það mikið til við slökun milli verkja og er þægilegri fyrir barnið..... það segja allavega ljósmæður :)
Flestir eru nú líklegast búnir að frétta þetta á einn eða annan hátt, en hér kemur semsagt "opinbera" yfirlýsingin, ásamt mynd af ungfrúnni sem erfa mun auðæfin.


Stoltur faðir er sá sem bloggar núna.
Elsku Egill minn - þú tekur þig svo vel út og svei mér þá ef hún er ekki bara sterkan Egilssvip ... varirnar eru þó frá múttunni :)
SvaraEyðaÆhji litla krúttið! Innilega til hamingju með þetta allt saman!
SvaraEyðaKv,
Vala frænka
Elsku Egill og Soffía. Okkar innilegustu hamingjuóskir með prinsessuna.
SvaraEyðaMagnús og Sigurlaug
Innilega til hamingju :) Svei mér ef það er ekki þó nokkur Drafnar svipur þarna!
SvaraEyðaMikið er hún falleg, innilega til hamingju og gangi ykkur vel :)
SvaraEyðaKv. Guðný frænka
Egill rosalega er mín falleg hún er bara yndisleg. Til hamingju litli frændi þetta er alveg yndislegt. Situr hér gamla frænka með tár í augunum :)
SvaraEyðaKnús Hulda
Til lukku elsku fólk með prinsessuna.
SvaraEyðahafið það gott
Knús Helen
Innilegar hamingjuóskir frá öllum í Sælukoti.
SvaraEyðaInnilega til hamingu með skvísuna. Ekkert smá fín. Bið innilega að heilsa móðurinni. Og æðisleg mynd af ykkur saman. Ekkert smá stoltur greinilega
SvaraEyðakv. Ósk
Elsku Egill og Soffía.
SvaraEyðaInnilega til hamingju með prinsessuna, hún er æðisleg!!
Sigrún og Ari
Hjartans hamingjuóskir. og aldrei verður lífið samt eftir þetta!
SvaraEyðaMegi ykkur öllum heilsast vel og þið njóta blessunar.
Helga Ág.
Til hamingju bæði tvö, glæsilegur árangur hjá ykkur.
SvaraEyðaSvo hef ég heyrt að söngvarar fái fyllri og þéttari rödd eftir fyrsta barn... eða átti það bara við um söngkonur, ekki gott að segja.
Til lukku
Maggi baritenór
til hamingju med litlu prinsessuna, tvilik fegurd;) hafid tad sem allra best.
SvaraEyðakv. thorvaldur fraendi og asta fraenka;)
Elsku Egill og Soffía! Innilega til hamingju með þessa gullfallegu prinsessu :)Gangi ykkur vel :)
SvaraEyða-Herdís Frænka
Elsku Soffía og Egill.
SvaraEyðaVið óskum ykkur innilega til hamingju með litlu dömuna.
Kv. Allir í Kirkjuholti.
Og enn hrúgast inn hamingjuóskir frá Hveratúnsfamilíunni...
SvaraEyðaTil hamingju með nýju dömuna, hún er gullfalleg (og mér finnst ég sjá einhvern Kvistholtssvip á henni...)
Hafið það nú gott, litla fjölskylda.
Kæru Egill & Soffía duglegasta, Innilegar hamingjuóskir með prinsessuna! Líði ykkur sem best og gangi ykkur allt í haginn! Framtíðin er björt! Verðum í sambandi og sjáumst hress!!! :-) Ykkar, Þröstur frændi, Una Björk & Þorri
SvaraEyðaEn gaman að sjá myndir af litlu prinsessuni, mikið er hún falleg!
SvaraEyðaEnn og aftur til hamingju með hana bæði tvö :)
Bestu kveðjur, Herdís Björnsd.
Elskurnar mínar, hjartanlegar hamingjuóskir með litlu dúlluna. Góðar kveðjur og heilsist öllum sem best.
SvaraEyðaÁsta og Gústi
Nú sit ég nú bara hérna skælandi - innilega til hamingju, aftur. Voða kjúttípæ þessa dama.
SvaraEyðaKv. Kristín Ósk
Til hamingju!! Hún er algjört krútt!!
SvaraEyðaKveðja Marín frænka :D
Svakalega er hún sæt og falleg! Innilegar hamingjuóskir til ykkar beggja.
SvaraEyðaVelkomin í heiminn litla dama.
SvaraEyðaElsku Egill og Soffía, innilegustu hamingjuóskir.
Annar Tungnamaður fæddist í kvöld þegar Dagný Rut Gretarsdóttir eignaðist son. Sá var ekki að láta bíða eftir sér, átti að fæðast rétt undir ólin, 20. held ég.
Bestu kveðjur,
Aðalheiður