22.8.08

Að takast á við sigurinn....

Jahh, hvað skal segja..... ekki neitt. Fínt að íslenska liðið vann, og líklega horfir maður nú á úrslitaleikinn.....held ég.

Annars horfði ég nú á seinnihálfleikinn í dag, og þótti gaman að. Ég var þó á leið á æfingu þar sem mér var boðið að syngja tenórhlutverkið í Verdi Requiem, það skal þó tekið fram að ég var bara að syngja það á æfingunni, ég er ekki að fara syngja það opinberlega, en sama hvað, maður hefur gott af því að læra alla þessa hluti þar sem þetta er bara reynsla sem mun koma sér vel síðar meir. Þetta smellpassar mér þó það sé soldið "trikkí" á köflum. En svona er það nú bara.

Hér er veðrið, eins og vanalega, með leiðinlegra móti, þó kannski búið að vera allt í lagi í gær og í dag. Mér sýnist nú á öllu að svona miðað við allt og allt þá er nú búið að vera betra sumar á Íslandi en hérna hjá okkur, þó við höfum nú fengið frábæra daga.

Ég er farinn að fara aftur í undirleikstíma hjá Eddy Scholz, sem er bara fínasti kall, og hann veit alveg hrikalega margt, og bara klár gaur. Þarf að fara hringja í Reiner Goldberg til að fá fleiri tíma hjá honum, nú og svo er ég auðvitað byrjaður að hitta Janet aftur. Þetta gengur auðvitað upp og ofan eins og gerist, og ég þarf helst að fara fá mér eitthvað æfingahúsnæði, því það er svolítið truflandi að vera alltaf hérna heima, það ruglar mann aðeins í ríminu. Búinn að senda nóturnar af íslensku músíkinni sem ég er að fara syngja á húskonsertinum í október, og byrjaður að undirbúa það, ásamt audition efni fyrir ZBF.

Annars er bara allt fínasta að frétta héðan, óléttan er orðin þung og Soffía kvartar skiljanlega undan því. Við keyptum púða um daginn sem er svona óléttupúði til að sofa með, mjög þægilegur..... þó maður sé ekki óléttur, svona púðar eru nefnilega líka notaðir gegn almennum bakvandamálum.


MATARHORNIÐ (er á sínum stað í þetta skiptið :))
Grænmeti og kjúklingur í Satay sósu (þetta er í raun fáránlega einfallt)

Mala 500gr af salthnetum, í einhverskonar vél (skola saltið af fyrst)
hella dós af kókosmjólk í pott og byrja að hita, hella svo hnetum samanvið og sjóða á lágum hita í smá stund. Hérna kemur sköpunargleðin inn. Mér finnst stórgott að setja samanvið þetta hvítlauk (1-4 rif), 1/2-1 tsk rautt karrý (gefur sterkara bragð), 2 msk soja sósa, og fiski- svartbauna- eða ho shin sósa (í raun bar eitthvað af þessum söltu austurlensku er fínt).

Mér finnst voða gott að setja saman við þetta líka smá kjötkraft ef þetta er ekki orðið nógu salt, svo auðvitað rúma msk af sítrónusafa. Auðvitað má ekki gleyma sykrinum (hvítan eða brúnan, fer eftir því hvað maður er í miklu heilsu átaki :) (2-3 msk) , þetta er ekki traditionalt að nota hann held ég, en gefur hrikalega gott bragð. Svo er gott að þynna sósuna ef hún verður of þykk, með annaðhvort meiri kókosmjólk eða venjulegri mljólk. Ath það er allt í lagi að hafa hana soldið þunna, því hún kemur til með að þykkna við að standa.

Grænmetið og kjúklingur (best að byrja á kjúlla fyrst) er svo bara steikt í smá stund, fínt að sulla yfir það smá sojasósu. Alls ekki ofsteikja það því það er best að hafa það pínu stökkt. Svo er sniðugt að skera hálfa gúrku í svona matskeiðar stóra báta og henda útí 5 mín áður en á að bera fram.

Svo er bara hægt að bera sósuna fram með matnum, eða hreinlega blanda öllu saman (sem ég geri alltaf) því að er bara lang þægilegast. Fínt að hafa hrísgrjón með þessu til að drekka í sig sósuna.......mmmmmmm, slurp!

(afbrigði af þessu er svo að skera kjúkling í góða bita, grilla á teini og nota Satay sósuna sem ídýfusósu)

Grænmeti og annað sem er gott að nota:
Sveppir (400 gr)
Paprika (2-3 stk) allir litir
Laukur (2-3)
Gulrætur (2-3)
Hvítlaukur (2-3 rif)
Eins er líka hægt að fá í búðum eitthvað sem heitir baby corn, eða eitthvað svoleiðis eða WOK blöndur í niðursuðudósum, sem innihalda bambus, baunaspírur og ýmislegt fleira sem er gaman að nota og gefur spennandi bragð.
Jæja nóg í dag, meira síðar........ verðið sæl.







1 ummæli:

  1. nammnamm nokkuð ljóst hvað verður hér á matseðlinum á næstunni :)

    SvaraEyða