25.8.08

Leðurblakan sigrar en Ísland ekki

Þá er fínni helgi lokið, þar sem helst bar að við skelltum okkur í bíó sama í fyrsta skipti í allavega 6 ár, vill ég meina. S telur að það sé styttra síðan, en þvímiður held ég að það sé bara hreinlega rangt hjá henni.

Nú við skelltum okkur niður í bæ um helgina, frúin hentist í C&A til að versla sér einhver föt og ég fót í Saturn og MediaMarkt til að skoða með minniskort í nýja EOSinn.... þar sem ekkert slíkt fylgdi með. Eins var ég að skoða linsur og blitzgerät ásamt töskum og nýju batterýi fyrir græjuna. Ég keypti minniskort, fann tösku sem ég ætla að kaupa og fékk næstum hjartaáfall yfir verðinu á blitzinu og linsunum... en ég svosem vissi það fyrir að þetta væri nú ekki ódýrasta sportið :) En það verður nú einhver bið á að ég fjárfesti í þessu dýra dóti, allavega á meðan hitt virkar svona svakalega vel ennþá.

Að loknum verslunarleiðangri var svo haldið til Cinestar í Sonycenter við Potsdamerplatz, þar sem, eins og áður hefur komið fram, eina kvikmyndahús borgarinnar er sem sýnir myndirnar eins og þær eiga að vera.... oftast! Þar byrjuðum við á að fara versla okkur inn miða á Batman, og völdum bara aðra biðröðina af handahófi og viti menn, þar fremst var gul fjölskylda (ekki það að það skipti endilega einhverju máli), en þau voru endalaust að blaðra og spyrja um hitt og þetta og fólk í röðinni var orðið frekar pirrað, þau fóru þó að lokum, og næst í röðinni var einhver eldri kelling sem tók líka aldeilis tíma sinn í að spyrja um hitt og þetta og á meðan hún var að blaðra, fengu um 6 manns afgreiðslu í röðinni við hliðina, maður getur alltaf pirrað sig á svona fólki!!

Nú myndin fannst mér hreinlega ein sú besta sem ég hef séð í nokkur ár í kvikmyndahúsi, það gekk nánast allt upp og aldrei var dauður punktur. Það er reyndar pirrandi að hafa ekki fengið að sjá hana fyrr en rúmum mánuði eftir að hún var frumsýnd á Íslandi en svona er bara þýskaland í dag. Svo var borðað á Subway áður en haldið var heim á leið.

Nú ég nennti svo ekki að horfa á leikinn fína á sunnudeginum, en gleðst yfir árangri handboltaliðsins á ÓL.

Ég er búinn að henda inn nokkrum myndum sem teknar voru á EOSinn að sjálfsögðu.

1 ummæli:

  1. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. :)
    EOSinn er ekki að klikka verulega

    SvaraEyða