Ég fór í dag að sækja pakka sem foreldrar mínir höfðu verið svo elskulegir að senda mér. Pakkinn var stopp í tollinum og innihélt nammi og 4 mánaða skammt af magasýrutöflunum mínum sem ég hafði haft mikið fyrir að redda og fá foreldra mína til að kaupa og græja fyrir mig. Nema hvað þegar þetta kom, þá tókur tollararnir töflurnar 200 og hentu þeim í ruslið!!!! Ég fékk ekki einusinni kost á að senda pakkann til baka! Það eru bara reglur að það má ekki senda pillur í pósi sama hvaða nafni þær nefnast, og hananú! Mig langaði að steindrepa helvítið sem afgreiddi þetta því fyrirlitningin og skilningsleysið er svo mikið að maður finnur fyrir Nazismanum hérna í öllum hornum. Og það er auðvtiað ekki bara þetta, ég hef ákv skilning fyrir því að þetta megi ekki. Það er bara allt hérna sem er eitthvað fáránlegt að það er eftitt að lýsa því. Oftar en einusinni hefur maður verið kominn á fremsta hlunn með að fara bara heim, þetta er varla þess virði að láta sig hafa allan þennan skít. Og þegar maður fer að velta þessu fyrir sér, þá þarf maður að fara hugsa í tæka tíð um hangikjötið og svínið sem maður ætlar að gæða sér á um jólin, því ekki er víst að því verði hleypt hérna inn, slíkt er ruglið. Maður hlítur að geta fengið þetta í gegnum sendiráðið, annað er varla hægt?!
Nú svo ber kannski að segja frá glaðningi dagsins: en í dag barst mér ný myndavél sem mig er búið að langa í, og það er aldrei betri tími að fá sér nýja þegar sú gamla bilar........ þeir sem ekki trúa því verða bara að eiga það við sig og sína neikvæðni :) ALLERDINGS, hún kom með póstinum í dag, og þrátt fyrir sérlega slæma stöðu evrunnar kostaði hún um helmingi minna en heima á Íslandi, sem er náttúrulega bara hreinn sparnaður í vasann hjá mér, maður fer eitthvað fínt út að borða fyrir það :) Nú vélin er
Canon EOS 450d, þessi vél er að fá stórgóða dóma allsstaðar, og fyrstu prófanir leiða í ljós að hérna er á ferðinni svakaleg græja, ekki það að ég kunni almennilega á þetta, en til þess er leikurinn gerður.... að læra kannski aðeins að taka myndir. Svo er nú að koma að þeim tíma ævinnar þar sem, skv ítarlegum rannsóknum, fólk tekur yfirleitt flestar myndir :) Það er því gott að vera undirbúinn. Karl faðir minn lét því þessi orð falla í kjölfarið "aumingja blessað barnið :)"
Hér að neðan gefur svo að líta nokkar tilraunamyndir sem teknar voru á EOSinn í dag og kvöld.


LIFI EOSinn !!
ekki slæmar þessar myndir, virkar allavega hverrar evru virði :)
SvaraEyðaEn bíddu hvað er vater að tjá sig, veit ekki betur en séu til heilu myndasyrpurnar af mér :)
já þjóðverjahelvítin eru svona assgoti ströng á þessu... :S
Þeir er' ekki auðveldir, Þjóðverjar
SvaraEyðaog Egill er ekki hress.
En kannski samt ágætis kunningjar,
því keypt' 'ann sér EOS.
Bloggskapur, svokallaður
Mögnuð græja. Til hamingju. Svona á að venja sig af magatöflunum. Kaupa sér leikfang því þá líður manni betur. Ef svo stressið sýrir mann upp þá bara taka upp leikfangið og smella af :)
SvaraEyðaÞjóðverjinn er bara að fara eftir reglum: Það má ekki flytja inn töflur; og þá má ekki flytja inn töflur. Einfaldara getur það ekki verið! :-)
SvaraEyðaTil hamingju með vélina! Þetta er ekki amarlegt sorp! Svo vitnað sé til síðu gagnrýnendanna sem þú vísar til: „CMOS sensor, 3.0" LCD monitor, Live View with both AF modes (contrast-detect and passive), 14-bit processing and RAW, spot metering, improved AF, 3.5 fps“
HAHAHAHAHAHAAH maður veit alveg hvað ca. TVÖ af þessum orðum þýða! Það verður gaman að læra á þetta leikfang :-)
Sendiráðið reddar hangikjeti, annað hvort beint eða fáránleg magn-innkaup fyrir Íslendingafélagið á staðnum, sem er víst nokkuð öflugt (svo deilist það út). Sama á þorrablótum þar sem sendiráðin redda öllu til félagsins á hverjum stað, sem heldur risa veislu...