17.8.08

Daglegt líf hefst á morgun

Jahhá, það er alltaf gott að vera kominn heim, en tilfinningin eftir hluti eins og Lofer fær mann alltaf til til að líða eins og eitthvað vanti í lífið. Það á nú líklegasta eftir að breytast á næstu mánuðum..... :) En þetta er svona svipað og manni leið eftir að hafa horft á síðustu myndina í "Lord of the Rings" trílógíunni....... hvað tekur nú við?!?!? Maður er búinn að upplifa ævintýr lífsins á stuttum tíma og hefur séð hvað þetta þetta hefur upp á að bjóða. Það er því erfitt að hendast í "hversdagsleikan" og láta sem ekkert hafi gerst.

Ég sótti mér "Assassins Creed" í gær og er nú að byrja að spila hann, það er kannski ekki gott að vilja alltaf meira í lífinu, en ég held að það sé það sem er rétt að gera.... allavega þangað til annað kemur í ljós. Maður veit svosem ekki hvað er betra, en maður verður að reyna... ekki satt? Lífið býður upp á margt, en maður þarf alltaf að vinna fyrir því, sama hvað það er..... er það þess virði? já! ég held það, því það er það eina sem er í boði í raun og veru. Barn mun breyta miklu, en mun það breyta öllu? ..... nei held ekki, en það mun eflaust setja ýmislegt í ákv samhengi sem áður hefur verið dulið.....eða kannski ekki, kannski verðu allt óbreytt! Maður getur ekki ákv svona án þess að vita eitthvað :) Ég bíð því bara þolinmóður eftir því sem koma skal.

Nú í Salzburg hitti ég stórmerkilega konu sem er sannarlega búinn að gera margt í óperubransanum um æfina, og fékk ég þessa litlu mynd með henni, en þetta er engin önnur en Grace Bumbry, yndisleg kona, nú 71 árs gömul og syngur ennþá eins og engill. Vá hvað þetta er eitthvað sem ég stefni sterklega að. Ekkert smá flott að fá að hitta eina af stærstu messósópran söngkonum síðustu 100 ára!
Ég þakka bara fyrir það sem ég hef og það sem ég hef að hlakka til.

Þakka innilega öllum þeim sem settu inn uppbyggileg og flott komment á síðustu færslu, ekki var um "öfuga sálfræði" að ræða, því ég hélt í raun og veru að "mitt" fólk hefði kannski ekki þann áhuga á "óperu listinni" sem þarna kom fram. Ég gleðst yfir því að fólk kann að meta þetta og vona að slíkur verði áhuginn næstu árin :)

Þrössi stórvinur minn er að skella sér hingað ásamt spúsu sinni í september, og það verður eflaust skemmtilegur tími, hlakka til sjá kallinn :) Það er margt að hlakka til og ekkert til að kvíða fyrir, hvað er maður þá að væla??! :)

2 ummæli:

  1. LOL...
    Horfði á þetta á endanum :)
    Flott hjá þér.

    SvaraEyða
  2. Líklega best að vera á jörðinni með þetta allt saman - og jafnvel dálítið í lausu lofti líka - með jarðtenginguna örugga. En, hver veit það, svo sem?

    Þetta voru afar jarðbundin viðbrögð.:)

    SvaraEyða