14.8.08

Söngur villiandarinnar

Þá er maður kominn heim og farinn að vinna og slaka aðeins á. Slenið er að ná tökum á manni eftir þessa miklu og stífu vinnu sem er að baki. Skrítið að nota sumar"frí" í þetta :)

En allavega þá er gott að vera kominn heim, og sjá að erfinginn hefur stækkað umtalsvert í minni fjarveru :) Það er allavega allt eins og það á að vera, og mér skilst að hætta á meðgöngueitrun og sykursýki sé liðin hjá......... eða er allavega ekki mikil. ´

Ég er byrjaður að skoða núna dúett úr Il trovatore, sem ég er að fara syngja í október, eins verð ég með einhver góð íslensk lög þar líka, við eigum þó eftir að hittast og æfa eitthvað fyrir þetta, þannig að þetta er kannski ekki alveg farið af stað ennþá.

Í Salzburg keypti ég svona "ekta" Mozartkúlur, ss ekki þær sem fást út um allan heim, heldur bara í Salz ef ég skildi þetta rétt, þær eru ansi góðar, og ef fólki langar að smakka þá verða þær til hérna eitthvað áfram fyrir gesti :)

Ég er búinn að vera upptekinn við vinnu síðan ég kom heim, en í gærkvöldi henti ég inn smá videói frá Lofer, en það er einmitt seinni hluti melodrama senunnar sem ég birti hér. Eflaust nennir engin nema mamma og pabbi að horfa á þetta, en ég læt þetta samt hér inn. Fyrir þá sem ekki þekkja forsögu málsins, þá er þetta svona leiklistahópur sem ferðast um og sýnir "Commedia dell'arte" sýningar, og þeirra sýning fjallar um konu sem er að halda framhjá, en í þetta skiptið komst Canio (ég) að því að hún var í raun og veru að halda framjhá, þannig að hann klikkast á sviðinu og drepur hana og elskhuga hennar, mjög krafmikið :) Þess má líka geta að Kristján Jóhannsson er að fara syngja þetta í íslensku óperunni heima í september.

7 ummæli:

  1. óðgeðslega var þetta flott hjá þér. Gæsahúð og læti hérnameginn. Ef maður hefði nú séð þetta læf. Til lukku með hæfileikana :)
    knús Hulda frænka

    SvaraEyða
  2. Bara láta vita að ég horfði til enda. Helvíti flott.

    SvaraEyða
  3. Ekkert smá flott! ég horfði líka á þetta til enda :)

    SvaraEyða
  4. Sæll pabbi,

    Já, tek undir með öðrum - þetta var ljómandi gott. Ekki hundraðogtíu prósent á því að ég hefði gert þetta mikið betur :-)

    Hvernig er það, ætlarðu að geyma eina Mózartkúlu handa mér fyrir 25. sept?

    Bestu kveðjur til mömmu!

    Þinn,
    Hressasti

    SvaraEyða
  5. vá vá - ekkert smá flott hjá þér, til lukku með þetta :-)

    p.s. ég horfði líka til enda sko

    SvaraEyða
  6. Ó, já. Á endanum tókst mér að hlaða þessu öllu inn og horfa og hlusta. Þetta reyndist vera hið ágætasta morð sem þarna átti sér stað. Örugg frammistaða, að sjálfögðu.

    SvaraEyða
  7. Til hamingju. Þetta er örugglega mjög flott hjá þér.
    (horfði Ekki á þetta)
    Gufuknúna kerfið myndi þýða sólarhrings áhorf. Þar fyrir utan virðist öfuga sálfræðin þín virka flott. Allir að horfa á glæsileikann...
    Haltu áfram á þessari braut

    SvaraEyða