Það hefur gengið brösulega að koma sér í gang aftur eftir Lofer, maður er einhvernveginn í einhverju limbói og nennir eiginlega ekki neinu. Ég hugsa að ef ég væri ekki að vinna, þá myndi ég sofa fram yfr hádegi alla daga.
Ég fór um daginn að finna mér herbergi til að leigja til að ég geti nú æft mig samviskulaust. Þó ég megi nú faktískt alveg æfa mig hérna heima utan "ruhigzeit" þá bara líður mér ekki vel með það, eins hefur maður bara gott af því að komast áðeins út úr húsi. Nú þetta kostar svo peninga eins og allt annað og þarf ég að borga litlar 8 evrur fyrir klukkutímann þarna, sem er nú alveg slatti ef maður er að æfa sig 4 sinnum í viku, en þett er bara eitthvað sem þarf að gerast.
Í gær fékk ég svo heimsókn frá Einari og Gunnari, og við skemmtum okkur hið besta, við Soffía ákvað svo að við myndum bjóða þeim í mat, og þeir voru hérna alveg fram yfir miðnætti að spjalla og spekúlera í söngtækni og horfa á snillinga syngja á youtube. Þetta eru alltaf skemmtilegar stundir. Hér gengur annars allt sinn vana gang, og ég reyni að berja mig áfram í lærdómnum að loknum vinnudegi, þó það reynist nú oftast erfitt að halda einbeitingunni þegar maður er orðinn þreyttur.
Ég er svo búinn að hringja í Reiner Goldberg og ætla að reyna að hitta hann nokkrum sinnum í viðbót, eða bara svo eftir því sem það passar. Píanóleikarann er ég svo að fara hitta á laugardag og þá reynir maður nú að vera betur undirbúinn en oft áður.
Af óléttumálum er það að frétta að allt gengur ennþá vel, þrátt fyrir einhverja þreytu í frúnni. Eflaust er þetta frekar óþægilegt, en ég hugga mig við það að hún þarf ekki að vakna til að fara vinna og getur í raun bara sofið eða hvílt sig þegar hún þarf þess... sem er gott. En við erum nú að klára að fylla út pappíra um fæðingarorlof (í mínu tilviki) og fæðingarstyrk. Það er nú frekar bjánalegt að þurfa að ákveða allt orlofið sitt eitt ár fram í tímann, ætli maður þurfi ekki að reyna að gera þetta í einhverri samvinnu við vinnuveitanda. En maður þarf víst að setja eitthvað á þessi blöð. Við erum ekki enn búin að fá skírteinið frá Krankenkassanum hérna í Berlín, en vonandi kemur það í síðasta lagi í næstu viku.
Vonandi fara vinir okkar og kunningjar í Krankenversicherung að drullast til að senda ykkur kortið ;-)
SvaraEyðaHafið þið það rosalega gott og munið bara hvað það ER magnað að búa í Berlín! Það verður allavega ekkert smá gaman hjá okkur, og þvílík dagskrá alla daga :-))
Hið daglega líf er líklegast bara lífið sjálft, í sinni tærustu mynd.
SvaraEyðaLofer og EOS eru síðan nokkurs konar kryddtegundir.
Svo er nú það, að öllum líkindum.